Vikan - 12.06.1975, Side 4
Fylgi Glistrups viröist fara vaxandi þessa dagana
— Viö sjáum.. að kannanir
Gallupstofnunarinnar sýna vax-
andi fylgi við yður þessa dagana.
Hver er ástæðan fyrir þvi, að
loksins tókst að mynda nýja rikis-
stjórn?
— Gömlu flokkarnir eru múl-
bundnir af úreltum stefnuyfir-
lýsingum. Okkar stefna er hins-
vegar sniðin eftir óskum nútim-
ans. Við vorum að visu illa leiknir
ikosningunum. Tilraun til þess að
knésetja okkur tókst samt ekki. —
Stjórnarmyndunin dróst á lang-
inn og varð að lélegum leikþætti.
Fólk missti tiltrúna á getu og
röggsemi stjórnmálamanna. —
Jafnaðarmenn hafa erfiðum hlut-
verkum að gegna. Niðurstöður
hafa sýnt, að þeir geta aðeins
stjórnað, þegar allt leikur I lyndi.
Vandamál dagsins i dag eru of
stór, til þess að stjórnin geti tekíð
þau réttum tökum. Ég spái henni
ekki langlifi.
— Hvað tekur þá við?
— Fólk kemur auga á fleiri
möguleika I okkar flokki, einfald-
lega einu vonina. Auðvitað getur
svo farið, að hinir verði neyddir
til að taka tillit til okkar aðal
stefnumála. Það þarf þó mikinn
kraft til þess, eftir þá útreiö sem
við fengum. Undanfarið hálft
annað ár hefur þingið verið starf-
rækt i aðeins 5 mánuði, svo að um
nýjar kosningar verður ekki að
ræða. Maður má ekki láta flækja
sig I allskonar úreltum siðvenj-
um. Nú verðum við að fá að taka
þátt, hafa áhrif, — og getum við
aöeins komið i gegn 20-30% af
hugmyndum okkar, þá erum viö
ánægðir. Fjárveitingaræði rikis-
valdsins er eins og krabbamein,
sem drepið getur okkar vestræna
lýðræöi.
— Hvernig viljiö þér svo hefja
aðgerðir?
— Við höfum á stðastliðnum 20-
30 árum upplifað óhemju vel-
gengni hér heima, og lifsafkoman
hefur gjörbreyst. begar sjálft
þjóðarbúið er orðið svona vel
efnað, er alveg ástæðulaust fyrir
rikið að láta útgjöldin aukast
svona án allra takmarka.
— Stjórnmálamenn hafa yfir-
boöiö hver annan með sifellt nýj-
um tilkostnaöi — án nokkurs
samráðs við meiri hluta þjóðar-
innar. Við .verðum þessvegna að
minnka fjárlögin stórlega.
Skattaþrýstingurinn, þ.e.a.s.
sameinaðir skattar, beinar og
óbeinar greiðslur til rikisins, gera
i dag 54% að meðaltali. Sam-
kvæmt okkar stefnuskrá getur
þetta lækkað nú þegar niður i 48%
og eftir eitt ár i 35% — en siðan
niður i 32%.
— Það er þrennt, sem við
viljum alls ekki hrófla við, og þar
á ég við ellistyrkinn, fjárveiting-
ar til sjúkrahúsa og svo um-
hverfisvernd, baráttu gegn
hverskyns mengun. Við viljum
jafnvel frekar auka fjárveitingar
til þessara liða. Lækkun á skött-
um mundi leiða til betri vinnuaf-
kasta og aukinnar vinnugleði. Við
reiknum með, að þjóðarfram-
leiðslan myndi aukast um 7-8% á
ári.
— Núverandi stjórn verður
auðvitað að leggja fram
sparnaðaráætlun, en það er i
fyrsta skipti, sem fjárlög fela i
sér niöurskurð. Gallinn er bara
sá, að jafnaðarmenn geta ekki
gengið nógu langt i þessum efn-
Dýrt í Danmörku
Okkur islendingum finnst dýrt
aö lifa á islandi, en danir eru
heldur ekki beint hrifnir af dýr-
tiöinni þar I landi.
Vissuö þiö t.d., aö ef afskap-
lega venjuleg fjölskylda á litinn
bii þar I landi og notar hann aö-
eins öðru hvoru til einkaaksturs,
þá kostar hann samt sem áöur
300.000 á ári. Ef hjónin reykja
svo 20 sigarettur á dag samtals,
kostar þaö 95.000 á ári. Drekki
þau svo tvo Tuborg eöa Carls-
berg og tvær gosdrykkjaflöskur
á dag, kostar þaö 54.000 kr. á
ári. Þessi munaður kostar þau
sem sagt samtals 449.000 kr. á
ári. Til þess aö geta veitt sér
þetta þarf fjölskyldan aö þéna
tvöfalda þá upphæö, eöa sam-
tals 898.000 kr. — hinn
helmingurinn fer I beina skatta
og gjöld. Skattar og gjöld af
ofannefndum munaöi er þó eftir
sem áöur 270.000 (söluskattur,
bensinskattur, tappagjald o.fl.
o.fl.) Svo raunverulega fá hjón-
in til munaöarneyslu aöeins
u.þ.b. 108 þúsund kr. isl. af
þessum 898000 kr. tekjum.
Þannig tekur danska rikiö I dag
gróft sagt 9 af hverjum 10 krón-
um, sem danir afla. — Og er þá
nokkur furða, þótt fólkiö vilji
breytingar, sem sumir telja
Glistrup einan færan um aö
koma á.
Astæöan fyrir þvi, aö rikiö
seilist svo frekt I vasa almenn-
ings er m.a. sú, aö I dag vinnur
tæplega þriöji hver vinnufær
dani hjá rikinu, eöa um 736.000
manns. Rikið sér I æ rikari mæli
fyrir'stærri fjölda af fólkinu en
áöur, litt vinnandi fólki og fólki,
sem alls ekkert vinnur, oft á tiö-
um aö ástæöulausu, er haldiö
uppi af rikinu.
Frá margra bæjardyrum séö,
er á hvers manns ábyrgö aö
skila heiöarlegri vinnu og vinna
fyrir sér sjálfir. Og þeim, sem
enn eru fylgjandi þvi aö draga
hlassið, fer óöum fækkandi.
mwl.
4 VIKAN 24. TBL.