Vikan - 12.06.1975, Blaðsíða 16
Kennari getur ekki sleppt þvi að fara i
skólann, bara af þvi að honum dettur það
i hug. En þegar velja skai milli Monu og
skólans, þá...
1 fyrstu hélt ég það væri
morgun og það væri vekjara-
klukkan, sem hafði hringt. En
þegar ég hafði fálmað I náttlamp-
ann og séð, hvað klukkan var, sá
ég, að ég hafði ekki sofið nema i
nokkrar klukkustundir. Um leiö
hringdi aftur. Það var slminn.
— Já, sagði ég syfjulega.
— Ó, hvað ég er fegin að þú
skulir vera heima, sagði björt
stúlkurödd. — Þú hefur lfklega
ekki búist við þvf að ég hringdi.
Ég veit aö ég hefði ekki átt að
gera það. En ég held þaö hefði
veriö rangt af mér að reyna ekki
að koma þessu í lag.... Heyrirðu
til mfn, Eyvindur?
—. Já, égheyrivel til þin, en ég
er ekki....
— Ég skil meira en þú heldur,
hélt hún áfram. — Og mér þykir
þetta óskaplega leitt. Þú trúir
mér kannski ekki, en ég er búin
aö gráta og gráta hræðilega lengi.
Það er svo asnalegt, að þetta
skuli hafa fariö svona. Ég er búin
að reyna að segja við sjálfa mig,
aö svona gerist hlutirnir, en mér
llður ekkert skár fyrir það. Og ef
ég á að vera alveg hreinskilin, þá
hefði mér aldrei dottiö I hug, að
þetta kæmi fyrir mig. Þú veist
hvemig þaö erTEyvindur, maöur
heldur alltáf, að maður sjálfur sé
öruggur. Svo gerist þaö samt allt I
einu, og þá er maöur alveg óviö-
búinn, eins og....
— Fyrirgeföu, en...
— Þú þarft ekki aö biðjast
fyrirgefningar, Eyvindur. Mér
finnst það alveg óþarfi. 1 fyrstu
fannst mér þú ekki koma vel
fram, en svona bregst fólk jú
alltaf viö. A eftir, þegar maður
áttar sig betur, skilst manni, að
þetta ristir dýpra. Ég áttaði mig
ekki nærri strax. Ég finn það
liggur eitthvað meira að baki.
Þess vegna tek ég það svona.
nærri mér. En mér finnst maöur
ekki geta afgreitt svona I fljót-
heitum. Viö þurfum aö ræöa
máliö og hlusta hvort á annaö,
svo við skiljum þetta betur. Svo
getum við skilið þykkjulaust.
Þess vegna veröur þú að leyfa
mér að útskýra, hvernig þetta
kemur við mig!
Hún hafði fallega rödd. En hefði
ég ekki verið farinn að veröa for-
vitinn, hefði ég liklega sofnað
aftur.
— Þú segir ekkert, Eyvindur,
sagði hún allt i einu.
— Kannski þaö sé af því...
— Af því að þér finnst það ekki
svaravert. En þar skjátlast þér.
Ég fer ekki fram á neina fyrir-
gefningarbeiðni, þaö er ég búin að
segja. Þú þarft ekki að útskýra
neitt. Þótt þú reyndir það, myndi
égekkitrúa þér. Ekki vegna þess,
að ég haldi, að þú ljúgir, að
minnsta kosti ekki viljandi. En þú
sérð þetta ekki i réttu ljósi. Ég
þekki þig betur en þú heldur, og
mér haföi aldrei dottið i hug...
Það kvað við hræðilegur hávaði
I tólinu, og allt I einu var ég glað-
vaknaður.
— Hvað I ósköpunum ertu aö
gera?
— Ég snýtti mér, svaraði hún.
— Má ég ekki einu sinni þurrka
mérum nefið? Núruglaðirðu mig
aftur. Ef þú leyfir mér að tala,
getum við kannski komist til
botns I þéssu. Ef ég má gefa þér
eitt ráð, Eyvindur, þá skaltu
alltaf minnast þess, að á hverju
máli eru að minnsta kosti tvær
hliðar Sjálf hef ég enga gleði af
þessari ráðleggingu, en ég er
afskaplega gjafmild. Ef þaö
kynni að hjálpa þér seinna meir,
þá er ég ánægð, jafnvel þótt þú
verðir þá með annarri. Og það
ertu nú þegar. Nei, það þýöir
ekkert að þræta. Þú skalt bara
ekki láta þér detta I hug, að ég láti
auðmýkja mig. Ekkert getur
orðið eins og áöur milli okkar.
Það verður þú aö skilja.
Mér hlýtur að hafa runnið i
brjóst eitt andartak, en allt i einu
hrökk ég við. Röddin hafði hrópað
eitthvað.
— Hvað er að? Af hverju öskr-
arðu svona?
— Einmitt það, svo ég öskra?
Ég sagði bara nafnið þitt
nokkrum sinnum, því ég hélt að
sambandiö hefði rofnaö. Ég
heyrði eitthvað svo undarlegt
hljóð.
— Ég hef llklega hrotið svolitið,
sagöi ég.
— Hrotiö! Þúhefur sannarlega
kímnigáfu, Eyvindur. 1 fyrsta
lagi veit ég, aö þú hrýtur aldrei.
En þú ert sjálfsagt búinn að
gleyma því, Og af hverju ættirðu
allt I einu að fara að hrjóta,
meöan ég er að tala við þig? Er
svona þreytandi aö hlusta á mig,
eða hvað? Þú hefur sannarlega
breytst upp á síðkastið, Ey-
vindur. Kannski þú hafir ekki
tekið eftir því sjálfur, en þaö hef
ég. Þaö er vegna þess, að ég veit,
að það, sem gerst hefur, hefur
afdrifaríkari afleiöingar en þú
heldur. Það, sem gerðist fyrr i
dag, á ég viö.
— Þaö er orðiö svolítið fram-
oröiö, sagði ég og leit á klukkuna.
— Láttu ekki svona. Þú reynir
alltaf að kjafta þig út úr öllu. Ég
veit þetta er svolítið erfitt fyrir
þig. En hvernig heldurðu, að mér
16 VIKAN 24. TBL.