Vikan - 12.06.1975, Blaðsíða 23
ÍSUMAR-
BÚSTAÐINN
svefnpláss og dýnurnar
eru margar.
Svona dýnur má fá
skornar eftir máli, og hægt
er að fá þær klæddar, eða
maður getur klætt þær
sjálfur með hverju sem
vill. Þessi lausn á reyndar
ekki bara við í sumarbú-
staðnum, þótt við séum í
þeim hugleiðingunum
núna. Svona nýting á hús-
rými á líka ágætlega við hjá
ungu fólki, sem er að Byrja
búskap í lítilli íbúð.
Enda þótt íslendingar
hafi um margt að hugsa
þessa dagana, eins og á-
standið í efnahagsmálum
og atvinnumálum þjóðar-
innar, þá er þó áreiðanlega
efst í hugum flestra að
njóta sumarsins sem mest
og best. Borgarbúinn þráir
að komast úr borgarysnum
í sveitasæluna og dreymir
um lækjarnið og lólukvak,
og hann leggur á sig langar
bílferðir i rykmekki um
hverja helgi til þess að
komast i jarðsamband ein-
hvers staðar í sveitinni.
Margir eru svo lánsamir
að hafa náð sér í landskika
undir sumarbústað, og þá
þarf ekki að spyrja að leið-
arlokum þeirra, þegar lagt
er af stað úr bænum um
helgar. Og þegar húsið ér
risið, þarf að búa það ein-
hverjum þægindum, þótt
kröfurnar séu ólíkt hóf-
legri en þegar um heilsárs-
bústaðinn er að ræða.
Sumarbústaðir eru yfir-
leitt mjög litlir að flatar-
máli, og þar gildir að nýta
hvern fermetra sem best.
En það getur orðið gest-
kvæmt í litla bústaðnum,
og oft þarf að hýsa miklu
fleiri en rúmstæði eru fyr-
ir. Lausnin, sem sjá má á
meðfylgjandi myndum, er
afar þægileg og skemmti-
leg. Hún felst í því að eiga
dálítið af svampdýnum,
sem hlaðið er saman yfir
daginn og þjóna þá sem
setubekkur, en á nóttunni
má gera úr þeim eins mörg
24. TBL. VIKAN 23