Vikan

Issue

Vikan - 12.06.1975, Page 29

Vikan - 12.06.1975, Page 29
inum og leyfarnar af látnu kon- unni. Ég man hvaö mér fannst það skrítið, aö hún skyldi hafa geymt þessa Urklippu. En ég setti þetta lfka eitthvað isamband viö fram- komu hennar viö Solomon gamla. Ég mundi hve mér haföi sárnaö ruddaleg orö hennar, sem særöu gamla manninn og svo fór ég að hugleiöa aö þaö heföi margt breyst hjá okkur siöan. Ég haföi þaö á tilfinningunni, aö hún heföi veriö allt ööru visi, þegar hún var á Appelby End. Pabbi vildi endilega búa hjá Southern systkinum vikurnar á undan brúökaupinu; —hann svaf þar og gekk svo heim til morgun- verðar á hverjum morgni. Það er sennilegt, aö þess vegna sáum viö herra Southern mjög sjaldan um þetta leyti. Einn morguninn sátu þeir, hann og pabbi, á veröndinni fyrir framan dyrnar og tottuðu pipur sinar. Þeir voru aö rabba saman og tóku ekkert eftir mér, en ég var aö klippa rósir rétt hjá. Þeir voru að ræða stjórnmála- skoöanir Gladstones og aögeröir hans I Sudan, þegar ég varö vör viö einhverja breytingu i rödd fööur mins. — Svei mér ef ég veit hvaö þú átt viö, Oliver, sagði hann. — Ég held þú skiljir þaö fullvel. Herra Southern var þögull um hriö, svo hélt hann áfram: — Mér er það vel viö þig Jona- than, aö mér finnst að málefni þin snerti mig lika. — Jæja, komdu þá meö þaö sem þér liggur á hjarta. Þú veist vel, að ég reiðist þér ekki, ég þoli þér allt það sem ég myndi ekki þola nokkurri annarri mann- eskju. — Þaö er bara, að mér finnst þú dálitiö fljótur á þér. Hvers vegna geturöu ekki beðiö? Þú hefur alltaf skoöað málin frá öllum hliöum, áöur en þú tekur ákvörðun. Það er svolitið annaö aö sjá fyrir konu, sem hefur smekk fyrir dýra hluti, heldur en tveim ungum dætrum, sem ekki gera neinar kröfur. — Ég er ekki 1 neinu hraki með peninga, ef það er þaö, sem þú hefur i huga. Þú ert vonandi ekki aö láta I það skina, aö ég hafi ekki ráö á þvi að eignast eiginkonu? -Þaö hvarflar ekki að mér. Svo reikna ég lika meö að hún eigi eitthvað sjálf. — Þá er það ekki hjónaband mitt, sem þú ert mótfallinn? — Mótfallinn er nú ekki rétta oröiö. Maður giftist sjálfs sin vegna, ekki vegna þess hvaö öörum finnst, eða til að gera vinum sinum til geös. Þaö eina, sem ég á viö, er hvort ekki væri skynsamlegt að biöa svolítiö. — Hverju ætti það svo sem að breyta? sagöi pabbi ákveðinn. — Þú ert fullur af hleypidómum. Láttu það ekki koma upp á milli okkar, Oliver. Það sem að þér er, er að þú ert svo kaldur og ákveöinn, aö þú skilur ekki svona blóöheita náunga eins og mig. Bíddu bara viö, þinn timi kemur áöur en varir. — Þú vanmetur mig. — Áttu við að þú hafir ein- hverja i huga? Svona nú, út með þaö. Hver er hún? Segðu mér þaö. — Ég er ekki likur þér, ég kann aö þegja og ég ber ekki tilfinn- ingar minar utan á mér. En trúöu mér, ef tilfinningar manns eru nógu heitar og innilegar, þá getur maöur beöiö lengi, ef nauðsyn krefur. Mér heyröist óvenjulegur inni- leiki i rödd hans og ég heyrði aö faöir minn var undrandi, en ég var meö allan hugann við rós- irnar, þegar ég gekk eftir stignum til þeirra. — Hérna er rós i hnappagatiö þitt, pabbi. Ég stakk gulri terós i hnappagatiö á jakkanum hans. En svo datt mér i hug, þaö sem ég haföi heyrt herra Southern segja og ég fann til meö honum, svo ég stakk hvitri rós i jakkann hans. Hann ljómaði bókstaflega. — Þakka þér fyrir, Ellen, sagöi hann. Ég held að þetta hafi verið i fyrsta sinn, sem ég sá hann brosa. Eitthvaö hlýtur að hafa komið fööur minum á óvart lika: aö minnsta kosti ljómaöi ásjóna hans, þegar ég yfirgaf þá, og ég heyröi hann segja að minnsta kosti tvisvar: — Jæja, Oliver, þú kemur mér sannarlega á óvart. Skoöanamunurinn haföi greini- lega ekki eyöilagt vináttu þeirra, þvi aö einu gestirnir viö giftingar- athöfnina voru þau Southern syst- kinin og svo komu þau heim til - okkar til aö skála fyrir brúð- hjónunum. Ég man óljóst eftir þessum degi. Ég man eftir þvi, að Rósa kom niöur stigann, klædd mjög glæsilegum, filabeinsgulum kjól og meö baröastóran hatt, skreyttan strútsfjööur, á höfðinu, og aö við Lucy fylgdum þeim út aö vagninum. Þaö sem ég man sérstaklega eftir var Binnie. Þegar við komum heim frá kirkjunni, hlupum við niöur i eldhús, til að sýna okkur i skrúðanum. Binnie haföi verið eitthvaö niöurdregin upp á siðkastið. Nú var hún greinilega i mjög vondu skapi. Ég sá alltaf hættumerkin. En hún lagöi samt frá sér boröbúnaðinn, sem hún var að fægja og virti okkur fyrir sér. — Já, ég sé þetta stáss, það er aö minnsta kosti fjörutiu shillinga viröi. — Ertu reið, Binnie? spurði Lucy. — Eöa ertu bara þreytt? — Nei, elskan min, en ég er alveg miöur min. Ég finn hvergi sælgætisskálina hennar mömmu ykkar. Ég er búin að leita alls- staðar. Hún er úr hreinu silfri. — Það skiptir engu máli, sagði ég. — Þaö er til nóg af svona skálum. — Engin svo falleg. Móöir ykkar haföi mikiö dálæti á þessari skál og hún heföi ábyggi- lega óskaö þess, að hún yrði notuð I dag. Og svo brast hún i grát, en áttaöi sig fljótlega og greip fyrir munninn. — Hvaö er ég eiginlega GISSUR GULLRASS E.FTIR' BILL KAVANAGU £. FRANK FLETCHER Í2g ætla&i aö vera i nýju skyrtunni minni. I 24. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.