Vikan - 12.06.1975, Page 30
Nýjung í eldhúsinnréttingum!
LITAVER
dS
GRENSSVEGI 18-22-24 - SÍMAR 82444 32262 30480
Kalmar
eldhúsinnréttingar
sænsk gæðavara
Ef þú vilt fá eldhúsinnréttingu nákvæmlega
eins og þú þarfnast, þá ættir þú að kynna
þér sænsku Kalmar eldhúsinnréttingarnar
hjá Litaveri
Margar tegundir skápa. Mikið úrval lita. Mál-
aðar, plasthúðaðar eða úr við. Kalmar eld-
húsinnréttingarnar, skapa rétta útlitið jafnt í
nýjum húsum sem gömlum.
ERTU AÐ BYGGJA? ÞARFTU AÐ BREYTA? VILTU BÆTA?
að þvæla og hún köld og gleymd I
gröf sinni. Og svo var eins og
fætur hennar létu undan, hún féll
niöur I einn stólinn Og grét nú, án
þess að reyna að leyna þvi. Við
Lucy gátum þá heldur ekki tára
bundist.
Þannig kom faðir okkar að
okkur, þegar hann var á leið sinni
niður I kjallara.
— Hamingjan sanna, hvað
hefur komið fyrir? spurði hann.
— Binnie finnur ekki silfur-
skálina hennar mömmu, kjökraöi
Lucy.
Ég held að þetta hafi veriö i
fyrsta sinn, sem ég sá föður minn
reiöast ofsalega.
— Reynið þið að átta ykkur og
hættið þessu væli á stundinni,
sagði hann hörkulega. — Hafið
þið algerlega misst glóruna?
Skammist þið ykkar ekki fyrir að
koma þannig fram við Rósu á
sjálfan brúðkaupsdaginn hennar?
Ellen og Lucy, viljið þið gjöra svo
vel að fara upp til hennar núna
strax.
— Já, pabbi.
Skugginn af þessum atburði
hefur alltaf blandast saman við
minningar minar frá þessum degi
og það næsta sem ég man vel, var
að við stóðum á brúnni og veif-
uöum til pabba og Rósu, þegar
þau lögðu af stað i fyrstu ferð sfna
saman og þeirri ferð var heitið til
London...
Þetta var um hausið 1883 og þá
fór ég fyrst að hafa reglulega
gaman af bókum. Ég var að ljúka
við að lesa Guy Mannering og
langaði til að ná mér' i meira
lestrarefni, svo ég ákvað að fara
til Saxelby og fá lánaða bók hjá
ungfrú Southern, Lucy var
kvefuð, svo hún lá i rúminu.
Ég varð svolitið miður min,
þegar ég kom þangað, þvi ungfrú
Southern var lika kvefuð og lá
fyrir, en herra Southern sat við
lestur i dagstofunni.
Ég sagði honum erindi mitt.
— Ég skal hjálpa þér að finna
Hrúts
merkið
21. marz —
20. april
Nauts-
merkið
21. aprll —
21. mai
Tvibura-
merkið
22. mai —
21. júni
Krahba-
merkið
22. júnl —
23. júll
Ljóns
merkið
24. júll -ir
24. ágúst
Meyjar
merkið
24. ágúst —
23. sept.
NU er komið að þvi, að
þú sérð árangur verka
þinna og þú getur
sannarlega verið
stoltur af afrekum
þlnum. Láttu það ekki
á þig fá, þótt einhverj-
irláti sér fátt um finn-
ast. Það er fyrir öllu,
að þU sért sjálfur
ánægður.
ÞU ert í einhverju
minni háttar félags-
skap, þar sem þess
verður farið á leit við
þig, aö þU stjórnir
starfseminni. Þér
finnst þetta ósköp ein-
falt I fljótu bragði, en
athugaöu vel þinn
gang, þvi að liklega er
starfið umfangs-
meira, en þú heldur.
Alltbendir til þess, að
þetta verði góð vika á
flestan hátt. Þú
verður áreiðanlega
boðinn I samkvæmi,
llklega meiri háttar
veislu, og þótt þú kvlð-
ir hálfpartinn fyrir
henni, skemmtirðu
þér reglulega vel,
þegar allt kemur til
alls.
Vinir þinir og kunn-
ingjar skilja alls ekki,
hvemig þU getur alltaf
verið reiðubUinn að
leggja fram starfs-
krafta þina I þágu á-
kveöins málefnis, en
þU skalt ekki láta það
á þig fá, þvi að þetta
veitir þér miklu
meira, en þú lætur af
hendi.
Gætirðu þess ekki
vandlega, að ekkert
sláist upp á vinskap-
inn innan fjölskyld-
unnar, er hætta á þvi,
að þú lendir i slæmri
klipu. Farðu varlega I
peningamálunum og
láttu ekki telja þig á
að festa fé i vafasömu
fyrirtæki.
ÞU verður að-venja þig
á meiri þolinmæði.
Haldirðu uppteknum
hætt, kemurðu aldrei
neinu i verk fyrir
hamagangi. Þolin-
mæöin þrautir vinnur
allar, stendur ein-
hvers staðar, og meö
svolitilli seiglu eru þér
flestir vegir færir.
30 VIKAN 24.TBL.