Vikan - 12.06.1975, Page 40
mig dreymdi
Bleikklædd.
Kæri draumráðandi!
Mig langar mjög mikið til að biðja þig að ráða fyrir
mig eftirfarandi draum, sem mig dreymdi fyrir
stuttu.
Hann var á þessa leið:
Mér f annst ég vera stödd inni í tískuverslun að máta
föt. Fyrr en varði var ég komin í buxur og peysu úr
sama ef ni, sem var m jög þykkt og bleikt á litinn. Mig
langaði ekki til að eiga þessi föt, en samt fannst mér
eins og ég yrði að vera í þeim, svo ég fór í þeim heim.
Þá fannst mér eins ogég ætti að fara að vinna í
frystihúsi á Kirkjusandi, en núna er ég í skóla. Ég hef
unnið í f rystihúsi úti á landi í tvö sumur, en aldrei inni
á Kirkjusandi og það hefur aldrei staðið til, að ég færi
að vinna þar. Heima hjá mér var staddur frændi
minn, sem heitir Þ.... Hann ætlaði að aka mér í f rysti-
húsið, en þegar ég kom út að bílnum til hans, sagðist
hann ekki taka mig upp í bílinn í þessum fötum. Og
þótt mig langaði ekkert til að fara í þessum fötum,
fannst mér ég verða að f ara í þeim. Þess vegna fór ég
í strætisvagni, en f rændi minn ók á undan mér.
Þegar ég kom á Kirkjusand, sá ég bílinn hans
frænda míns þar í klessu.
Svo vaknaði ég.
Með fyrirfram þökkum fyrir birtinguna og von um
ráðningu á þessum draumi,
G.H.Á.
Þessi draumur er svolítið einkennilegur, en heppin
varstu, að frændi þinn skyldi neita að aka þér í
draumnum, þvi að þá hefði hann orðið fyrir alvarleg-
um veikindum, eða öðru áfalli. Sú neitun hefur hins
vegar þau áhrif, að draumurinn telst ekki vera fyrir
neinu alvarlegra en því, að þú verður aðtaka að þér að
vinna verk, sem þér er þvert um geð. Reyndu að sætta
þig við það, því að margur verður að gera fleira en
gott þykir.
Sláturtíð.
Kæri draumráðningaþáttur!
Mig langar til að biðja þig að gera mér þann greiða
að ráða fyrir mig þennan draum, sem mig dreymdi
ekki alls fyrir löngu, því að mér þykir allundarlegt að
dreyma svona draum á þessum árstíma, þegar ég er
meira að segja búin með allt slátrið úr f rystikistunni.
Mér þótti vera haust og sláturtíðin stóð sem hæst.
Ég og tengdamóðir mín vorum að gera slátur og sauð
og kraumaði í mörgum pottum hjá okkur. Ég þurfti að
bregða mér frá sem snöggvast, en þegar ég kom aft-
ur, segist tengdamóðir mín vera búin að selja allt
slátrið og haf a keypt mör í staðinn og sé nú að bræða
hann í tólg. Ég lít ofan í P ottana , einn á eftir öðrum,
þeir eru þá ailir f leytifullir af tólg.
Með von um ráðningu.
Húsf reyja.
Þessi draumur gæti nú vel stafað af því, að blóð-
mörinn er búinn úr frystikistunni. Þó skal ég ekki fuil-
yrða neitt um það og víst er, að tólg hefur til þessa
verið talin fyrir góðum fréttum í draumi.
Tveir draumar.
Kæra Vika!
Ég yrði afar þakklát, ef þú sæir ér fært að ráða
fyrir mig tvo eftirfarandi drauma.
Fyrri draumurinn er um mig og strákinn, sem ég er
með og við skulum kalla hann N.
Við sátum tvö við borð í stóru eldhúsi, sem mér
fannst vera heima á íslandi. Allt i einu langaði N í
ávexti og við stóðum upp og f órum að leita. Við rákum
augun í stóran poka, sem var á gólf inu og var fullur af
rauðum og þroskuðum eplum. Við h'reyfðum ekkert
við þeim, en héldum áfram að leita. Við opnuðum
skáp og inni í honum voru skemmdir ávextir og græn-
meti, tómatar, græn epli og fleira, en allt var þetta
óætt. Ég vaknaði upp við það, að við vorum að virða
þetta fyrir okkur í skápnum.
Seinni draumurinn var á þá leið, að ég var að tala
við strák sem heitir M. Svo fór hann í burfu og til mín
kom maður, sem spurði mig, hvað sakkarín væri. Ég
svaraði því játandi og þá sagði hann: Já, hann er
nefnilega sykursjúkur og það er þess vegna, að þú
hef ur ekki séð hann svona lengi. Hann hef ur verið að
hlífa þér við því að vita þetta öll þessi ár.
Mér fannst eins og hann hefði verið mjög veikur á
tímabili, en væri á batavegi.
Dreymin.
P.S. Að lokum þakka ég Vikunni f yrir gott ef ni, og mig
langar til að spyrja, hvernig greiðslum er háttað, þeg-
ar fólk, sem býr erlendis, gerist áskrifendur, og hvað
ársáskrift kostar?
Sama.
Draumarnir eru báðir fyrir því, að þú þarft að velja
á milli annars af einhverju tvennu og þú velur þann
kostinn, sem flestir ráða þér frá.
Viljirðu gerast áskrifandi að Vikunni, skaltu senda
skriflega beiðni þess efnis til afgreiðslu blaðsins að
Síðumúla 12. Áskriftargjaldið er 4.100 krónur hálfs-
árslega, eða 8.000 krónur árlega. Ofan á það bætist
sendingarkostnaður, ef þú getur ekki fengið blaðið
sent i félagspósti (company mail). Áskriftargjaldið er
rukkað með reikningi á gjalddaga og greiðist fyrir-
fram.
Kartöflur.
Hr. Fr. draumráðandi!
Viltu gera svo vel að ráða fyrir mig eftirfarandi
draum?
Mér f annst ég vera í strætisvagni í Sviss, en ég vissi
ekki, hvert ég var að fara. Með mér var gömul kona,
sem einu sinni bjó í næsta húsi við mig og var góður
vinur minn.
Allt í einu sneri bílstjórinn sér við og spurði farþeg-
ana, hvort þeir vilji kaupa kalktöflur, en enginn gaf
neitt út það. Þá spurði hann mig, hvort ég vilji ekki
kaupa töflur, því að þetta geti verið eina tækifærið
fyrir mig að fá þær næstu fimmtán árin. Ég svaraði
því til, að mér væri sama, ég tæki bara áhættuna.
Þegar hér var komið draumnum, var ég vakin svo
draumurinn varð ekki lengri.
Vinsamlegast birtist sem fyrst.
Virðingarfyllst.
S.K.
Þú hafnar boði, sem mörgum þætti freistandi.