Vikan - 12.06.1975, Qupperneq 45
Hér leggur upp eini billinn, sem haföi á aö skipa kvennaliöi. Hann hafn-
aði i 38. sæti, en ekki geta allir veriö fyrstir, og aöalatriöiö er aö vera
meö.
Ekki voru allir keppnisbilanna nýir af nálinni, eins og sjá ntá á þessari
mynd. Einum og hálfum tima áöur en skila átti bllunum til skoöunar
brotnaði girkassahiisiö i gamla „Bjúkkanum’’, en þvi var snarlega
reddað meö rafsuðu. Þrátt fyrir háan aldur og brotin girkassa hafnaöi
þessi Buck I 12. sæti, en hann var geröur út af Bílaþjónustunni I Súöar-
'ogi.
Á þessari mynd eru aörir og þriöju I 1. flokki, þaö eru þeir, Halldór Sig-
urþórsson og Karl Rosenkjær á Peugot 404 árg. ’63 og Karl Harry
Sveinsson og Jón Gestur Viggósson á pólskunt FIAT 125, en þeir kepptu
fyrir Davlö Sigurösson h.f.
Sigurvegarar I jeppaflokki uröu þeir Ilallgrlmur Marinósson og Baldur
Hlööversson á FORD Bronco árg. ’68. Þeir sjást hér taka á móti verö-
launum sinutn.
Hér er Ómar Ragnarsson hvorki fréttamaður eöa skemmtikraftur,
heldur rally-ökumaður fyrst og fremst. Hann heföi hafnað t einhverju
af efstu sætunum, ef smáóhapp heföi ekki orðið til aö tefja hann um 12
min. á einni leiöinni. Þrátt fyrir óhappiö ætlar Ómár örugglega aö taka
þátt I næstu keppni aö eigin sögn.
Halldór Jónsson rallysigurvegari sest hér inn I bíl sinn eftir vel heppn-
aðan dag.
24. TBL. VIKAN 45