Vikan - 29.01.1976, Síða 14
COWBOY-stígvél á kvenfólk hjá Rímu. Aöat-
lega ætluð tll notkunar v/ð gallabuxur, eða
aðrar uppbrettar. Spönsk að uppruna og selj-
ast grimmt. Verð kr. 9.950 (eða bara 10 þús-
und og fimmtíu ka/l tilbaka).
Hér sjáum við þaö, sem koma skal. Kvenskór
með tiltölulega mjóum og háum hæt. Fallegir
á fæti. Sýna kvenfótinn betur. Verð: 7-8 þús-
undaðeins.
Hér eru frönsk upphá kvenstígvél falleg á
fæti eins og vel má sjá. Dömurnar í búðinni
köl/uðu þetta kósakkastígvél og sögðu, að þau
stæðu varia við hjá þeim. Verð kr. 15.800.
Hér eru ítölsk mjög faiieg dömustígvél, sem
alltaf eru í móð, var okkur sagt. Og iiturinn
sem er ryðrauður, er ákafiega vinsæll. Verð
aðeinskr. 12.980.
VIKá
Við skruppum í skóleit í vikunni.
Ekki til að kaupa skó á VIKUNA. Hún
er vel skóuð, en við höfðum áhuga
á því, að þú fyndir fljótlega góða,
ódýra og fallega skó handa þér, ef
þeir gömlu skyldu vera farnir að gefa
sig. Við litum inn í þrjár skóverslanir
í miðþænum (gamla) og forvitnuð-
umst um vinsælustu skóna og þá, sem
þeir mæltu helst með.
Verslunin SÓLVEIG, Laugavegi 69
sýndi okkur nokkrar tegundir af kven-
skóm og karlmannaskóm, sem þeir
mæltu sérstaklega með, svo og versl-
unin RÍMA í Austurstræti, en þar er
skóverslun fyrir kvenfólk og önnur
fyrir karlmenn.
Það var samdóma álit, að kvenfólk
keypti langmest af svokölluðu stígvél-
um, eða skóm, uppháum allt að hnjám
Annars virðist kvenskótískan vera að
breytast og leita aftur til mjóu hæl-
anna, sem við sáum fyrir um 10 árum
Vel má vera, að þeir séu verri til að
ganga á, óstöðugri og fari verr með
fætur, en óneitanlega verður ekki
annað um þá sagt en að þeir séu
klæðilegri kvenfólki. Kvenfólk virðist
líka meira fara eftir smekk en karl-
menn. Þeir virðast fyrst og fremst
kaupa þá skó, sem eru þægilegri
og henta betur veðurfari. Númer tvö
hjá þeim virðist vera fegurð á fæti,
enda hafa karlmannsfætur óneitan-
Það er best að segja það eins og er, að
þessir skór eru ekki faiiegir að okkar áiiti,
en þeir munu vera i tísku hjá yngri mönnum
bæði hér heima og erlendis og vafalaust
nokkuð þægiiegir. Þeir eru reimaðir og kosta
kr. 8.950.