Vikan - 29.01.1976, Blaðsíða 15
Þessi uppháu kvenstígvé/ sáum við hjá
Só/veigu við Laugaveg. Þau eru finnsk að upp-
rum og mjög vinsæl, var okkur sagt, sem sést
best á því, sagði vers/unarstjórinn, að sama
fó/kið kemur oft aftur eftir um það bil þrjú ár
og kaupir sams konar stígvé/. Skinnið í þeim
er sagt mjög gott og góð sútun. Þau þo/a
betur sa/t á götunum en ýmsir aðrir skór.
Vetrar-,,útgáfan" hefur dá/ítið þykkari sóla,
jafnvel með gúmsólafóðringu á milli tveggja
leðursóla. Þessi stígvél kosta þar frá 15-17
þúsund, sem er með dýrari skófatnaði sem við
sáum.
LORELLA mokkaslnur fyrir kvenmenn og karl-
menn hjá Sólveigu. Sólinn er sérstaklega
varinn með gúm/agi á mi/li leðurlaga, eða að
leðrið er haft sérstaklega þykkt. Þeir ,,anda"
var okkur sagt, þannig að maður verður síöur
fótrakur í þeim. Margir kaupa tvenn pör /
einu. Sú óheppni fylgir þessum skóm, að
verksmiðjan, sem framleiðir þá, fékk sérstaka
viðurkenningu fyrir þá á einhverri sýningu, —
og auðvitað þurftu þeir þá að hækka verðið!
Þessvegna kosta þeir um 7 þúsund krónur /
dag.
Svartir reimaðir skó/akennaraskór. Virðulegir,
þægilegir. Auðvitað enskir, þvf miður. Verð
kr. 9.500.
1N I
LBIT
lega minna gildi en kvenmanns. Og
það er kannski líka bara sjálfum karl-
mönnunum að kenna.
Hér sjást nokkurs konar tramparar með hrá-
gúmmísólum, ekta vetrarskór og mjög þægi-
legir. Góðir í hálku, því sólinn er mjúkur
og hrufóttur að neðan. Verð kr. 8.900.
Hér sjáum við þrjár gerðir af loðfóðruðum
kuldaskóm fyrir konur. Þeir eru fæddir i
Þýska/andi og heita auðvitað BAMA, fást i
Rímu. Þeir ódýrustu kosta kr. 9.980, næstu
kr. 11.880 og þeir dýrustu kr. 15.950, eða
svona vikukaup. Sanngjarnt?
Cowboy stígvé/ á karlmenn, sem TöstTTn
15.000 og er ve/ hægt að nota a/lt árið um
kring. Seljast eins og heitar lummur. Okkur
fannst dálítið erfitt að komast í þau, en okkur
var sagt, að það mundi lagast með aldrinum
(þ.e. stígvélanna).
Hér er uppstilling á nokkrum tegundum karl-
mannaskóa, sem eru vinsæ/ir ennþá í dag,
og þá frekar meðal yngri manna (og styttri),
því vafalaust eru þeir ekki eins þægilegir til
gatnatramps og aðrir með þynnri og eðlilegri
sólum. Þessi skór hjá Sólveigu eru enskir
og kosta allt frá 4.700 upp 19.500 kr.
Þrenna uppháa Cowboyskó, eða raunar st/gvé/
sáum við að lokum, með gúmmí- eða /eður-
sólum. Mjög vinsælir. En verð er nokkuð
misjafnt, eða frá kr. 6.000 til 10.000.