Vikan

Eksemplar

Vikan - 29.01.1976, Side 20

Vikan - 29.01.1976, Side 20
Þú skilur vafalaust ekki, hvað ég er að bulla, en þetta er algjör sannleikur. Ég hitti nefnilega jólasveininn í gær. Alveg réttan jólasvein, á ég við. Ekki bara Gluggagægi, Pottasleiki, Bjúgnakræki,. eða hvað þeir nú allir heita. Nei, ég hitti raunverulega jólasveininn, sem er vel þekktur um öll lönd og heitir Santa Claus, eða Father Christmas, í hugum flestra, og ég held, að hver einasti maður þekki hann raunverulega nokkuð vel, þótt mjög fáir hafi séð hann. Það eru nefnilega mjög margir sem skrifa honum sendibréf, og þá auðvitað alveg sérstaklega rétt fyrir jólin. Fæstir vita það sennilega, að það er hægt að skrifa honum hvenær sem er, — og að það þarf ekki að kosta neitt. Ekki einu sinni frímerki. Ég hefi sjálfur séð það, og þá er það rétt. Ég sá öll bréfin, sem hann fékk núna fyrir jólin, og sum komu jafnvel eftir jól, með engu frímerki og jafnvel engu heimilis- fangi. Samt vissi póstmaðurinn alveg uppá sína tíu fingur, hvert bréfið átti að fara. Og allir, sem sendu jólasveininum bréf, fengu svo sent bréf frá honum með fallegri mynd, og innan í bréfinu stóð: Halló, þakka þér fyrir fallega bréfið. Vertu viss um, að ég geri mitt besta til að jólin verði sem ánægjulegust fyrir þig. Vertu góður. Þinn Jóla- sveinn. Og svo var líka kveðjan gamla: Gleði- leg jól og farsælt komandi ár. Bréfin, sem ég sá, voru flest frá Bretlandi, af því að litlu börnin þar vita alveg, að jóla- 20 VIKAN 5. TBL. Jólahátíðin er búin. Hjá flestum. Sumir eru svo heppnir, að hjá þeim eru jól allt árið. Hjá mér eru jól ennþá, og ég vona, að þau vari lengi, lengi. sveinninn á heima hérna á Islandi. Foreldrarnir og skólakennararnir segja þeim víst frá því annars gætu þau alls ekki vitað það. Ég skal bara sýna ykkur nokkrar utanáskrift- ir á umslögunum. Myndin er af þrem umslög- um. Á því efsta stendur: FATHER X-MAS, ICELAND, eða JÓLAPABBI, ÍSLANDI. Á bréfinu í miðju stendur: SANTA CLAUS, NORTH POLE, ICELAND, eða JÓLASVEINN- i WQuld |it€ INN, NORÐURPÓLNUM, ISLANDI. Og á því neðsta stendur TO FATHER CHRISTMAS, SNOW CASTLE, ICELAND, eða JÓlAPABBI SNJÓKASTALA, ÍSLANDI. Og þannig er það jafnan með þau bréf, sem hingap koma, að utanáskriftimar eru ekki samhyöða. Flestir nefna Norðurpólinn á Islandi. Óg annað er athugavert: Á engum þessara bréfa er frímerki. Efsta bréfið skartar að vísu jólamerki, en það

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.