Vikan

Issue

Vikan - 29.01.1976, Page 31

Vikan - 29.01.1976, Page 31
vegna peninganna — sjálfur átti h^nn ekkert annað en nafnið og lajhdareign í niðurniðslu. Jæja. FrU Waverly myndi að öllum likindum ekki ræna sinum eigin syni og greiða sjálfri sér lausnar- gjald. En hvað um eiginmann hennar? Aðstæður hans eru aðr- ar, er þaðekki? Hann á rika konu. Það er ekki nákvæmlega það sama og að vera rikur sjálfur. Ég held frúnni sé ekki sérlega hug- leikið að ausa út peningum — nema til þess séu rikar ástæður. En herra Waverly — það sér hver auli — hann ér bon viveur. — Óhugsandi, hrópaði ég. — Alls ekki. Hver rak alla þjónana? Herra Waverly! Hann geturhafa skrifað bréfin, seinkað klukkunni, byrlað konunni sinni eitur og þar að auki gefiö Tred- well fyrsta flokks fjarvistarsönn- un. Tredwell hefur aldrei geðjast að frú Waverly. En hann er hlýðinn við húsbónda sinn og reiðubUnn til að framkvæma hverja skipun hans. Þrir menn komu nálægt þessu: Waverly, Tredwell og vinur Waverlys. Þar sló lögreglan vindhögg vinur minn. Þeir gættu ekki að þvi, hver maðurinn i gráa bilnum var. Það var þriðji aðilinn. Voila: Hann tekur litinn dökkhærðan dreng upp i bilinn i næsta þorpi. Hann ekur inn um austurhliðið og út um suðurhliðið á nákvæmlega réttu augnabliki. Enginn sér and- lit hans og heldur ekki númerið á bilnum, og þvi getur auðvitað enginn séð heldur hvort það er Johnnie, eða einhver annar drengur, sem situr við hlið hans. Svo þykist hann ætla að aka til London. Tredwell hefur lika skilað sinu hlutverki með prýöi. Hann hefur fengiö landshorna- flakkaranum bréfið og pakkann og sagt honum að afhenda hvort tveggja, þegar klukkuna vanti tiu minútur i tólf. Ef maðurinn skyldi þekkja hann, þrátt fyrir falskt skeggið, fær Tredwell fyrsta flokks fjarvistarsönnun hjá hús- bónda sinum. Waverly flýtir sér sjálfur aö fela drenginn i leyni- herberginu um leið og lætin byrja Uti fyrir og lögregluforinginn hleypur út. Siöar um daginn, þegar lögregluforinginn er farinn og fröken Collins er ekki heima, er auövelt aö flytja drenginn á öruggan felustaö. — En hvað um hundinn? spurði ég. — ÞU sagðir fröken Collins hafa logið. — Þaö var bara svolitið grin. Ég spurði hana, hvort til væri leikfangahundur i húsinu, og hann er áreiöanlega til þar. 1 barnaherberginu. Herra Waverly setti nokkur leikföng i leyni- herbergið til þess að Johnnie yröi rólegur. Hann hefur áreiöaníega leikiö sér aö hundinum inni iher- berginu meöan lögreglan var að leita hans. 1 sömu andrá kom herra Waverly inn i herbergið. — Monsieur Poirot, sagði hann. — Hafiö þér komist að nokkru? Hafið þér nokkra hugmynd um, hvar drengurinn er niðurkominn? Poirot reif blað úr minnisblokk- inni sinni og rétti honum þaö. — Héma er heimilisfangiö, sagði, sagði hann. — En þetta er óskrifaö blað. Hér stendur ekki neitt! Nei, því að ég ætla að biðja þig að skrifa heimilisfangið fyrir mig. — Hvað i — Herra Waverly stokkroðnaði. — Ég veit allt, monsieur. Ég gef yöur tuttugu og fjóra tima til að sækja drenginn. Þér getið áreiðanlega útskýrt, hvernig hann er allt i einu kominn i leitimar. Ef þérgerið ekki eins og égsegiyður.neyðistég til þess að segja konunni yðar, hvernig i öllu liggur. Herra Waverly lét fallast i stól og faldi andlitið i höndum sér. — Hann er hjá gömlu barnfóstrunni minni — ekki ýkja langt héðan. Hún hefur gætt hans vel. — Það efast ég ekki um. Ef ég tryði þvi'ekki, að innst inni séuð þér góður faðir, hefði ég ekki gefið yður nýtt tækifæri. • — Hneykslið, sem... — Já, einmitt. Aldrei hefur fallið blettur á nafn ættar yðar. Leggið ekki heiður yðar að veði oftar. Verið þér sælir, herra Waverly. Æjá. Meðal annarra orða: Strjúktu alltaf almennilega Ut i hornin, þegar þú skúrar fram- vegis. Jk. STIGATAFLA 1) a: 1 - b: 7 - c: 3 - é: 5 2) a: 5 - b: 7 - é: 1 - <*: 3 31 a: 5 - b: 3 - c: 7 - d: 1 4) a: 7 - b: 5 - c: 1 - d: 3 5) a: 5 - b: 7 - c: 3 - d: 1 6) a: 3 - b: 7 - c: 1 - d: 5 7) a: II - b: 5 - c: 7 - d: 3 8) a: 5 - b: 3 - c: 1 - d: 7 9) a: 5 - b: 3 - c: 7 - d: 1 10) a: 3 - b: 5 - c: 1 ■ d: 7 11) a: 7 - b: 5 - c: 3 ■ d: 1 12) a: 5 - b: 7 - c: 3 ■ ■ d: 1 13) a: 5 - b: 7 - c: 1 • d: 3 14) a: 5 - b: 7 - c: 3 ■ d: 1 15) a: 7 - b: 5 - c: 3 ■ d: 1 16) a: 7 - b: 5 - c: 1 ■ d: 3 17) a: 1 - b: 7 - c: 3 ■ d: 5 18) a: 7 - b: 5 - c: 1 - d: 3 19) a: 5- b: 2 - c: 7 - d: 3 - e: 1 - f: 8 - g: 4 - 20) a: 5 h: 6 - b: 3 - c: 7 ■ d: 1 ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT HÚSGAGNAÚRVAL Á 2 HÆÐUM Húsgagnaverzlun Reykjavíkur h.f. Brautarholti 2, er rétt við Hlemmtorg Nýjar gerðir af sófasettum Mikið úrval Staðgreiðsluafslúttur eða góðir greiðsluskilmólar ®Húsgagnaverslun Reykjavíkur hf. BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 11940 HÚSEIGENDUR — ATHUGIÐ Smíðum staðlaða hringstiga við allra hæfi Vélsmiðja Guðjóns Olafssonar Sími 3-12-80

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.