Vikan

Tölublað

Vikan - 29.01.1976, Blaðsíða 39

Vikan - 29.01.1976, Blaðsíða 39
hana deyja. Þessi maður hafði verndað hana á hættustund, á meðan dauðinn sat um þau bæði og meira að segja kysst hana á ennið til þess að hughreysta hana. Hún greip nú báðum höndum um handlegg grímukiædda mannsins, en þeirri hugsun skaut upp í huga hennar, að hún hefði alveg eins getað haldið um járnstykki. ,,Nei, ekki drepa hann! Hann er að ljúga. Hann veit ekki, hvað hann er að segja. Hann er I mi’nni þjónustu, en ekki Surcoufs. Hins vegar vildi hann ekki játa það af ótta við að koma upp um mig, en mér er ómögulegt að horfa upp á hann deyja mín vegna.” x,,Þú?” sagði ókunni maðurinn og hnyklaði brýnnar. ,,Hver ert þú?” ,,Ég er af aðli rétt eins og þér sjálfir. Eða eruð þér ekki göfugrar ættar? Rödd yðar og talsmáti bcndir til þess. ” Þótt líf hennar lægi við, hefði hún ekki getað sagt, hvernig hún fékk þessa flugu I höfuðið. En hvort sem þetta var guðdómlegur innblástur eða frá andskotanum kominn, þá höfðu orð hennar náð að vekja athygli hins ðkunna manns, og sennilega hafði hún hitt naglann á höfuðið. í augum mannsins vottaði fyrir forvitni. ..Kannski. En hér um slóðir cr ég einungis þekktur undir nafn- inu Morvan. En þú hefur ekki enn sagt mér nein deili á þér.” ,,Nafn mitt er Marianne d’Asselnat. Foreldrar mínir voru leidd undir fallöxina fyrir það eitt að reyna að bjarga drottningunni.” Allt í einu mundi hún eftir hinni einkcnnilegu gjöf frá madame Rovale og sagði ákafri röddu. ,.Segið mönnum yðar að láta yður hafa það, scm þcir tóku frá mér. Þér munuð finna þar enska mynt og pcrlufc-sti móður minnar, en auk þcss blátt nisti, sem hefur inni að halda lokk úr gráu hári. Hertoga- ynjan af Angouleme gaf mér það, en lokkurinn er úr hári hinnar látnu drottningar!” Marianne undraðist sjálf, hversu liðugt henni var um málbeinið og hvað orð hennar hljómuðu sann- færandi. An minnstu fyrirhafnar var hún farin að tala eins og of- stækisfullur konungssinni, þótt hún hefði snúið baki við útflytjendum, eftir að hertoginn af Avaray hafði afneitað henni á gistihúsinu í Ply- mouth. En henni fannst ekki annað en sjálfsagt að notfæra sér þá til þess að bjarga manni úr liði Napóleons og þessa auðheyrilega vinsæla Surcoufs. Orð hennar virtust ætla að hrífa. Morvan talaði valdsmannslega til mannanna tveggja. Þeir stóðu dá- lítið afsíðis og héldu i Jean og höfðu beðið þess eins að fá skipun um að taka hann af lífi. Hann sagði nokkur orð á hrjúfri mállýsku, sem hlaut að vera bretónska. Vinoc bölvaði í hljóði, én rétti því næst foringja sinum þ'að, sem hann hafði stolið frá Marianne. Morvan tók perlurnar og setti þær umyrðalaust i vasa sinn, en rölti svo yfir að einum bálkestinum og hélt á nistinu Í hendi sér. Bjarminn frá eldinum féll á hörkulegt grímuklætt andlit hans og það gneistaði af augunum, eins og væru þau tveir glóandi kolamolar. Marianne leit kviðafull á Jean. Hún óttaðist, að hann hefði heyrt á hve óvenjulegan hátt hún hafði borið hönd fyrir höfuð lians. En svo virtist ekki vera. Hann hallaði sér upp að einum klettinum og var með lokuð augu. Varðrhennirnir héldu honum enn- þá. Hann virtist úrvinda af þreytu og beið þess cins, er verða vildi. Morvan kom nú aftur til baka. Hann hneigði sig af auðmjúkri stimamýkt fyrir Marianne. ,,Ég bið yður að fyrirgefa mér mademoiselle d’Asselnat þessar óviðurkvæmilegu móttökur. En ég gat ekki með nokkru móti vitað, að þér væruð um borð í þessu skipi. Má ég bjóða yður arminn og fylgja yður heim til mín? Þar gctið þér hvílst, en því næst getum við ræðst við. ’ ’ Marianne gladdist yfir því að hafa unnið sér þennan gálgafrest og fór ekki frekar út í þá sálma, hvað maðurinn ætii við með því að segja, að þau gætu ræðst við seinna. ,,En þjónn minn?” spurði hún, áður en hún tók um hina fram- réttu hönd. ,,Ég vona, að þér ætlið að gefa honum upp sakirnar?” Marianne sá votta' fyrir brosi fyrir neðan svörtu grímuna, og henni gast engan veginn að því. ..Vitaskuld. Hann kemur með okkur, en hann hefur verið einum of orðhvatur, og þess vegna ætla ég að láta hafa nánari gætur á honum. Þér takið það vonandi ekki sem móðgun.” Ræningjarnir tveir voru nú aftur komnir í föt, og þcir leiddu Jean Le Bru á milli sín eða öllu heldur teymdu, því að hann var greinilega að niðurlotum kominn. Morvan leit hvasst á hinn unga mann, en gaf síðan mönnum sínum skipun lágri, skýrri röddu. ,,Farið með hann heim. Ég ætla að gefa honum líf. Hann er aðeins þjónn hinnar ungu markgreifafrúar af Asselnat, en hún er I ætt við prinsa okkar, sem eru I útlegð. En hann laug að mér, og þess vegna skal honum refsað. Lokið hann inni I turninum.” Marianne varð aftur yfirkomin af ótta, enda vissi hún, að Morvan ætlaði með þessum lítilsvirðandi orðum að reyna að fá Jean til þess að neita. Ungi maðurinn skipti litum og reyndi af öllum’ mætti að losasig. Hann ætlaði að neita þessu og þar með afneita henni, en þá myndi Morvan líka ekki hika við að drepa hann. Marianne hljóp til hans og tók utan um hönd hans eins fast og hún gat. ,,Láttu ekki svona Jean, það er ekki til neins að tjúga. Ég hef sagt þessum manni það, sem ég þurfti að segja honum, vegna þess að mér fannst það heimskulegt að kasta lífi þtnu á glæ til einskis.” Hann opnaði munninn og ætlaði að hrópa upp yfir sig, en þá þrýsti hún hönd hans svo ákaft, að hann lét sér nægja að yppta öxlum og bölva. ,Jæja, mademoiselle. Ég býst við. að þér hafið rétt fyrir yður, en ég er ekki annað en kjáni!” En augnaráðið. sem hann sendi hcnni. var ekki aðeins laust við allt þakklæti, heldur Itka svo heiftar- fullt að Marianne titraði öll. Nú er Morvan hafði lýst þvt yfir, að hún væri stuðningsmaður hinna útlægu prinsa, vissi hún, að t augum Jean væri hún orðin fjandmaður. Hún var njósnari konungssinna. og vin- skapurinn, scm sameiginlegt skip- brot hafði skapað. var nú ekki lengur fyrir hendi. Þetta særði hana, án þess að hún vissi nákvæm- lcga hvers vegna, en Morvan fylgd- ist með henni, og hún snéri sér undan til þess að vckja ekki frekari grunsemdir. Aðalsmaður átti ekki að bera of mikla umhyggju fyrir þjóni stnum. Raunar hafði hann orð á þvt, um lcið og hún smeygði höndinni undir framréttan arm hans. ,,Þér látið vður annt um Vogar- 24. sept. — merkið 23. okt. Viljastyrkur þinn er ósjaldan á hápunkti — en alltaf skal tilhneig- ing þtn til að taka ekki ákvörðun fyrr en í lengstu lög ná yfir- höndinni. Að lokum neyðist þú þó alltaf til að taka ákvörðun, hvort sem þér líkar betur eða verr. Dreka- 24. okt. — merkið 23. nóv. Þú hefur mikið aðdrátt- arafl fyrir hitt kynið. Sú staðreynd getur reynst þér erfiðari ltfs- förunautur en þig grunar. Afbrýðissemi er nefnilega llka skap- einkenni þitt og I mörgum tilvikum er það alls ekki mjög við- ráðanleg blanda. Bogmanns- 23. nóv. — merkiB 2t. des. Taktu hlutunum með aðeins meiri ró en þú hefur gert undanfarið. Sú hugarró, sem þú leitar svo mjög eftir, verður að koma frá þtnu eigin brjósti. Ræddu vandamálin við vini þtna, sé það gert muntu komast að raun um að góðu ráð- in verða I fleirtölu þess sem sagt verður. Geitar- 22. des. — merkiA 20. jan. Veittu þér meira en tími hefur verið til undanfarið. Leyfðu barninu I þér að njóta sín. Taktu alls ekki á þínar herðar nýjar skyldur, jafnvel þótt ætlast sé til þess af þér. Það verða allir að læra að segja einhvern tíma nei við aðra. Leiði og þreyta hefur ásótt þig um tíma. Það er á margan hátt sjálfs- skaparvíti. Þú virðist hafa nautn af því að kveljast og vera á botn- inum andlega. Svo einn góðan veðurdag er allt gleymt án nokk- urrar sýnilegrar ástæðu — og þá ert þú jákvæð' asta mannvera heims- ins. Til þess að ná árangri svo nokkru nemi verð- ur þú að fórna ein- hverju. Áætlaðu fram- tíð þtna langt fram í tímann og stefndu svo að settu marki með aukinni hörku og dirfsku. Hafðu hugfast að árangurinn kemur ekki hlaupandi upp I hendur þtnar án nokk- urrar fyrirhafnar. 5. TBL. VIKAN 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.