Vikan - 29.01.1976, Page 46
ÁRNl
BJARNASON
*■
A
FLEYGI
.FERÐ
V______/
MiKMXN PRÖFAR
Vélsleðar njóta sívaxándi vin-
sælda hér á íslandi, margir kaupa
þá bara fyrir sportið, en aðrir til
vinnu. Okkur datt í hug að reyna
iqkkra sleða, og hér birtist árang-
urinn af fyrstu reynsluförinni, sem
farin var niður í Laugardal.
En áður en viðsnúumokkur að
vélsleðanum, er rétt að fara
nokkrum orðum um þann ágætis
hlífðarfatnað, sem fenginn var að
láni hjá Hitatæki h.f. Þessi hlífðar-
föt eru sérstaklega gerð fyrir
akstur á vélsleðum í miklum kulda,
og sönnuðu þau ágæti sitt þennan
frostkalda janúardag, sem við
notuðum til reynsluaksturs. Það
var 13°frost, aumingja Ijósmynd-
arinn var hreint að krókna, þótt
vel væri klæddur, en ökumaður
sleðans fann ekki fyrir kulda í
þessari múnderingu, þótt hann
þeysti um Laugardalinn á sleð-
anum, svo það má með sanni
segja að Hitatæki h.f. selji hita-
tæki.
Hjálmur, samfestingur, vettl-
ingar og klossar kosta 41.000.00
kr. það er kannski dýrt, en þó vel
þess virði, ef búið er að kaupa
vélsleða á rúmar 400.000.00 kr. til
þess að frjósa ekki í hel. Öryggis-
hjálminn teljum við algjöra nauð-
syn, þótt margir geri grín að svona
höfuðfati, getur lífið oltið á því
hvort hjálmurinn er meö eða ekki.
Samband íslenskra samvinnu-
félaga hefur umboð fyrir vélsleö-
ann, sem er af geröinni Yamaha
SW440D. Vélin er tvígengis,
46 VIKAN 5. TBL.