Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 29.01.1976, Qupperneq 50

Vikan - 29.01.1976, Qupperneq 50
TIL RÆKJUVEH Hafið þið ef til vill verið óupplögð til að taka á móti gestum síðustu vikurnar, ef svo er hvernig væri þá að hrista af sér slenið og bjóða upp á tilbreytingu með hækkandi sól. Eftirfarandi uppskriftir eiga það allar sameiginlegt, að í þeim eru rækjur. Pönnukökur meö fyllingu. Búið til pönnukökuhræru úr 2 dl af hveiti og 2 dl af vatni, 1 1/2 dl af rjóma og 3 — 4 eggjum. Þetta verða minnst 8—10 pönnukökur. Fyl/ing i 10 pönnukökur. ifynr 4) Um 300 gr beinlaust svinakjöt, t.d. af kótelettum eða bógi 2—3 msk. smjör eða smjörlíki 1 1/2 tsk. salt 1/2 tsk. paprika um 1 dl þunntsneiddir púrru- hringir 1/5 rauð og 1/2 græn paprika 1/2 dós baunaspírur ( Bean Sprouts) salt, soya 150 gr rækjur. Skerið kjötið í fína strimla og brúnið létt á pönnunni. Kryddið. Skerið púrruna og paprikurnar smátt í teningá og látið allt krauma saman í ca. 5 rríínútur. Áður en baunaspírurnar eru settar saman við, eru þær skolaðar í sigti í 50 VIKAN 5. TBL. rennandi köldu vatni og látið renna vel af. Séu spírurnar ekki fyrir hendi er hægt að nota fín- strimlað hvítkál. Kryddið með salti og kínverskri soya. Að síðustu eru rækjurnar settar saman við og látnar hitna með. fíækjur á ítalska visu (fyrir 2). 100 gr rækjur 1 stór laukur 2 msk. olía 1/2 dós niðursoðnir tómatar 2 msk. tómatkraftur (puré) 1 /2 tsk. oregano salt, pipar, hvítlauksduft 2 msk. hvítvín, ef til er. Laukurinn látinn krauma í olíunni, án þéssað brúnast. Látið renna af tómötunum í sigti og merjið þá síðan á pönnunni með sleif. kryddið með tómatkrafti og kryddi og látið sósuna krauma, þar til hún verður hæfilega þykk. Setjið dálítið af safanum af tómötunum ef nauðsyn þykir eða setjið hvítvín saman við. Að síðustu fá rækj- urnar aðeins að hitna upp með sósunni. Setjið rjúkandi heitt spaghetti á 2 diska og hellið rækjusósunni yfir. Berið smjör með og gjarnan rifinn ost ásamt franskbrauði. Djúpsteiktar rækjur (fyrir 2). Hrærið hræru úr 1 1/2 dl af hveiti og 1 1/2 dl af pilsner. Látið bíða um stund. 150 — 200 gr. rækjur. Hitið olíu í potti eða á pönnu. Hún er hæfilega heit, þegar fransk- brauðsbiti verður gulbrúnn á 2 mínútum. Dýfið rækju í hræruna og látið renna aðeins af, þannig að aðeins verði himna á hverri rækju. Sé hræran of þykk, má setja meira öl saman við. Setjið rækj- urnar út í olíuna. Það á að sjóöa vel í kring um þær. Snúiö þeim við,sem ekki snúast sjálfar. Það tekur ca. 4—5 mínútur að steikja hverja hræru. Látið renna af þeim á eldhúspappír. Berið fram meö sítrónubátum og franskbrauði, og trúlega vill einhver fá remulaði- sósu með. FARESTVEIT HUSMÆÐRAKENNARI

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.