Vikan


Vikan - 22.09.1977, Blaðsíða 43

Vikan - 22.09.1977, Blaðsíða 43
,,En — 7” Hún leit á markgreif- ann, sem sat og þagði. ,,En hvað er þetta?” „Heilsugœslustöð, — spitali fyr- ir fátæklinga.” Reginu létti. Auðvitað, Carla bara vann hér, — aðalskona, sem fómaði sér fyrir hina fátæku. „Komið,” sagði markgreifinn hljóðlátlega. „Hún biður eftir okkur, kæru vinir.”- Edward hljóp hinum megin við bílinn til að hjálpa honum út. Bömin hópuðust í kringum hann. „Já, ungamir mínir,” sagði gamli maðurinn og brosti. „Ég gleymi ykkur ekki.” Regína sá að hann var með stóran sælgætispoka í annarri hendi. Hann rétti baminu, sem næst stóð pokann, og sagði því að skipta þessu milli þeirra allra. Hávaðinn af rifrildinu vegna úthlutunar sæl- gætisins barst á eftir þeim alla leið að spítalanum. Inni angaði allt af sótthreinsandi efnum. Allt var hreint og nýmálað. Þau fór í gegnum móttöku- herbergið og inn í annað stórt herbergi, þar sem vom raðir af bekkjum fyrir sjúklinga sem biðu. Innst í herberginu biðu nokkrar konur eftir hjúkmnarkonu til að vigta börn sin. „öll þjónusta hér er ókeypis,” sagði markgreifinn. „öðm vísi vill Carla ekki hafa það. Það fær enginn borgað kaup.” „Er það hagkvæmt?” spurði Edward og hnyklaði brýrnar. „Það hefur verið það. Ég held að það sé komið að því, að þetta verði að breytast. Þetta byrjaði í svo smáum stíl, en hefur vaxið svo ört, að það þarf að koma á fullkomnari stjórnun. Það er orðið erfitt að láta alfa þessa vinnu hvila á sjálfboða- liðum.” „Það hlýtur að mega með einhverjum hætti útvega spítalan- um fé til að geta greitt kaup? Fátæklingarnir gætu samt sem áður fengið alla þjónustu endur- gjaldslaust.” Markgreifinn brosti. „Ég skyldi verða fyrstur til að leggja fram gjafafé. Og það myndi marga aðra langa að legggja sitt að mörkum. Þetta starf hér er orðið vel þekkt. En Carla má ekki heyra á þetta minnst.” Hjúkmnarkona hafði nú komið auga á þau. Hún gekk í áttina til þeirra, brosti breitt og rétti fram hendurnar. „Ö markgreifi, en ánægjulegt að sjá þig. Hvemig líður þér?” „Alveg ágætlega, vina mín, nema hvað ég er farinn að sjá illa. Ég er kominn með enska vini mina til að hitta dóttur mina.” „Hún er í eldhúsinu. Á ég að kalla á hana?” „Nei, við finnum hana.” Þau fór inn um dyr fjærst i herberginu og inn i dimman gang, sem lá að öðm álíka dimmu herbergi. Regina kom auga á skápa, vask og heljarstórt gamaldags borð. Hinum megin við borðið var kona á fjórum fótum að skúra gólfið. Markgreifinn nam staðar. „Carla.” Konan, sem var að skúra, leit snögglega upp og staulaðist á fætur. „Pabbi.” Hún gekk til hans og rétti honum hendurnar. Um leið og hún kyssti föður sinn á kinnina leit hún yfir öxl hans. „Edward.” Hún yfirgaf föður sinn og rétti Englendingnum höndina. Regína starði á þau, og einhvem veginn fann hún, hvað handtak þeirra var þétt. Góða stund stóðu þau þögul og héldust í hendur eins og timinn hefði numið staðar. Allt í einu áttaði Edward sig. „Mig langar að kynna þig fyrir systurdóttur minni, Reginu Webb.” „Komdu sæl,” sagði Carla og sneri sér að Regínu. Um leið og Regína stamaði einhverju út úr sér starði hún á konuna. Hún þekkti hana af myndinni, en þó var hún svo allt öðm vísi, en hún hafði búist við. Hún var átakanlega homð og jafnvel í þessu dimma herbergi var örið ógnvekjandi greinilegt. Það náði yfir ennið og niður eftir andlitinu, öðmm megin. Að öðm leyti var hún alveg eins og málverkið i kastalanum. Fegurð hennar lá i beinabyggingunni og ekkert ör gat eyðilagt hana full- komlega. En það var erfitt að slíta augun af þessum hræðilegu um- merkjum eldsins. 4 SKUGGA %/ÓNSINS „Hún talar tungu okkar vel, Eward,” sagði Carla. „Ég sá til þess að hún lærði ítölsku,” svaraði hann stuttlega. Carla kinkaði kolli. „Svo hún kynni hana, þegar þú færir aftur hingað.” Eitt augnablik virtist hún hafa mglað hann i ríminu. Edward opnaði munninn til að segja eitthvað, en hætti við það. Það var markgreifinn, sem rauf þögnina. „Ég vissi alltaf að þú kæmir aftur, Edward.” Carla sneri sér að honum. „Pabbi,” sagði hún biðjandi, en svo þagnaði hún líka. „Þú getur kallað það raus gamals manns, ef þú vilt, en ég vissi alltaf að ég myndi sjá hann aftur áður en ég væri allur. Og nú sérðu að hann er kominn.” Carla hló svolítið. „Það þýðir ekkert að andmæla þér, pabbi. Við skulum ekki vera hér. Við skulum fara inn til mín. Ég bý lika héma,” útskýrði hún fyrir Reginu. Hún gekk á undan þeim út úr eldhúsinu og inn í annan dimman gang. Hún opnaði fyrir þeim aðrar dyr. „Þá emm við komin,” sagði hún glaðlega og vék til hliðar, svo þau kæmust innfyrir. Þama i birtunni var örið enn hræðilegra en áður. Það fangaði svo augun, að maður tók varla eftir nokkm öðm í útliti konunnar. Hún var klædd nákvæmlega eins og sveitakonur í Roccaleone klæðast, allt svart, pils, blússa, peysa, sokkar og skór. Hendur hennar vom líka rauðar og hrjúfar. Regína gekk á eftir mönnunum tveim inn í herbergið. Þetta var lítið herbergi með fáum húsgögnum: Rúm, sem leit út fyrir að vera mjög hart, kommóða í lamasessi, og tveir stólar. Það var varla hægt að ímynda sér meiri andstæður heldur en þetta herbergi og kvenlega, fínlega herbergið í kastalanum. En hér var þó að finna lausn á einni ráðgátu. Uppi á kommóðunni hallaðist lítil, beygluð mynd af ungum manni upp að veggnum. Hann stóð á kletti og sneri sér hálfvegis frá myndavélinni. Hann var í grófum fötum og með riffil um öxl. Þótt hún þyrfti að horfa þvert yfir herbergið, þekkti hún þegar í stað, að þetta var mynd af frænda hennar. Hún mundi eftir tóma myndarammanum i svefnherberg- inu í Roccaleone. Þetta var þá eini persónulegi hluturinn, sem Carla hafði með sér í útlegðina.... Carla gaf þeim kaffi og síðan bauðst einn af eldri læknunum, prðfessor Tendi, til að sýna Reginu og markgreifanum spítalann. „Þakka þér fyrir prófessor, þetta var fallega gert,” sagði markgreif- inn, þegar þau voru komin út úr herberginu. Þau ættu að fá að vera ein stutta stund. Þau hafa án efa um margt að tala.” Prófessorinn velti þessu fyrir sér. „Hver er hann? Ég þekkti hann að sjálfsögðu af myndinni. örið er auðþekkj anlegt. ’ ’ Framhald í næsta blaði. 38. TBL. VIKAN 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.