Vikan


Vikan - 22.09.1977, Blaðsíða 47

Vikan - 22.09.1977, Blaðsíða 47
— Cagade? En ráðskonan hafði fullyrt, að hann hefði ekki vikið að heiman? — Það er til nokkuð, sem heitir segulband, og inn á það má leika tónlist og raul, söng og raddir. Svo er hægt að klifra niður brunastig- ann, skjótast nokkrar húslengdir, heimsækja vininn Hill, fremja morðið, hlaupa heim, snúa aftur eftir tvo klukkutíma og finna líkið. — En hvernig fékk Hill tíma til að skrifa nóturnar? — Síðasta ósk dauðadæmds manns. Cagade brotnaði undireins og sagði okkur, hvernig allt gerðist. Þegar Hill áttaði sig á, til hvers hann var kominn, bað hann um að fá að Ijúka laginu, hann ætti aðeins fáeinar nótur eftir. Og Cagade hafði ekki brjóst í sér til að neita honum um það. — Og ástæðan? — Eiginmaður, sem stóð í vegi fyrir hamingju tveggja elskenda. STUNDARÞÖGN. Stúlkan horfir á iögregluforingjann. Það er eins og hún veigri sér við að halda viðtalinu áfram. Hún strýkur hárlokk frá andlitinu. FuIItrúinn kemur enn inn. — Get ég fengið að tala við lögregluforingjann í einrúmi, segir hann. — Er það varðandi slysið? Fulltrúinn kinkar kolli. — Við skulum leyfa blaðamann- inum að heyra það. Hún vill eflaust heyra. hvernig við vinnum, ekki bara hlusta á sögur. Fulltrúinn kinkar kolli. — Eins og lögregluforinginn vill. — Hafið þið yfirheyrt þau? — Já. — Og hvað? — Lögregluforinginn hafði á réttu að standa. Þau hafa verið elskendur i um það bil tvö ár. En það kemur augljóslega þessu slysi ekkert við. Þeim ber nákvæmlega saman um. hvernig þetta átti sér stað. Og öll ummmerki á staðnum koma heim og saman við frásögn þeirra. Lögregluforinginn nýr hökuna. — Engin ummerki á bílnum? — Nei, ekki svo mikið sem rispa. — Hvernig bíll er þetta? — Ja, segir fulltrúinn, — það er reyndar svolítið merkilegt. Hinn látni hefur greinilega verið með biladellu, sankað að sér gömlum árgerðum og þess háttar. Átti margar bíldruslur í skúrnum hjá sér. Þessi bill er Mercedes-Benz 170, árgerð 1951. — Jahá, segir lögregluforinginn. — Athyglisvert tómstundagaman. Og engar rispur á bílnum? — Nei, ekki ein einasta. Lögregluforinginn klórar sér í yfirskegginu. Hann snýr sér i stólnum, svo að hann snýr beint að blaðakonunni, meðan hann heldur áfram samtalinu við fulltrúann. — Segið mér fulltrúi, þér vitið, hvernig bilhurðir eru gerðar? — Ja, hvað á lögregluforinginn við? — Bílhurð sveiflast á hjörum, ekki satt? Og hjarirnar eru annað hvort að framan eða aftan. — Já, að sjálfsögðu. — Þetta var Mercedes 170, árgerð ’51. Hvorum megin eru hjarirnar á honum? — Það... ég hef ekki hugsað út í það. — Ég get upplýst fulltrúann um það. Hurðin er með hjörum að aftan. Þvi hefur verið breytt siðan, það er óþægilegra að stjast inn í bilinn, þegar hjarirnar eru að aftan. — Ja, fyrst lögregluforinginn segir þetta, 'er það áreiðanlega rétt. Ég held ég muni þetta núna. — Og hvað gerist, þegar fitlað er við handfangið á slíkum bíl á ferð? — Maður... maðurdetturút, eins og henti þennan mann. — Og hurðin slengist aftur, eða hvað? Mótvindurinn gripur hana af afli. og hún hlýtur að slengjast á afturhurðina eða hreinlega rifna af. - Já? — En þið funduð ekki svo mikið sem rispu á bilnum, sögðuð þér? - Nei. Fulhrúinn ræskir sig. — Á ég að laka þau föst? spyr hann. — Nákvæmlega það. sem þér eigið að gera, segir lögreglu- foringinn. Fulltrúinn hverfur á brott skömmustulegur á svipinn. — Eiginmaður, sem stóð í vegi fyrir hamingju tveggja elskenda? spyr stúlkan. Lögregluforinginn rís á fætur. Slúlkan stingur niður blokkinni og blýantinum og lyftir töskunni á öxl sér. — Þakka yður fyrir að vilja fórna mér tíma, segir hún. — Min var ánægjan, segir lögregluforinginn og horfir á eftir henni, þegar hún gengur út. JOHN EKBLOM leikari hugsar: Þetta er i þritugasta og sjöunda skipti, sem ég leik hlutverk lögregluforingjans í enska saka- málaleikritinu „Sextugsafmæli lögregluforingjans.” Túlkun mín á hlutverkinu er ágætlega sannfær- andi. Ég hef ágæta meðleikara. Eva konan mín er góð í hlutverki blaðamannsins. Og Rolf Blom, sem leikur fulltrúann, er ungur og efnilegur. Nú er fyrsti þáttur á enda eftir nokkrar sekúndur. Ég á að ganga yfir sviðið og leggjast á hvilubekk- inn. Ég hef fengið lof fyrir túlkun mína. Leikritinu hefur verið vel tekið og gengið fyrir fullu húsi. Það er bara eitt smáatriði, sem veldur mér áhyggjum. Það eru tólf skref yfir sviðið að hvílubekknum, og nú geng ég þessi tólf skref í þrítugasta og sjöunda skipti frammi fyrir áhorfendum. Smáatriðið... já, það eru augna- tillit þeirra Evu og Rolfs Blom. Er eitthvað á bak við þau? Ég gæti skilið hana. Aldursmunur okkar er mikill Nú? í dag eru skrefin yfir að hvílubekknum fjórtán. Ég leggst fyrir. Brátt mun ég heyra lófatak áheyrenda úr myrkum salnum á bak við mig. Svolítið dreift til að byrja með, af því fólk áttar sig ekki strax á þvi, að fyrsti þáttur er á enda. Svo tekur járntjaldið, þetta þunga skröltandi eldvarnarteppi, að falla niður á milli sviðs og áhorfenda- salar. Þá magnast lófatakið. Og þegar tjaldið fellur að gólfi, get ég risið á fætur og fengið mér öl að drekka. Lófatakið hefst. Ég ligg á bakinu á hvílubekknum. Heyri járntjaldið hyrja að falla. Svo loka ég augunum og hlusta á skröltið i tjaldinu og lófatak fólksins. Ég minnist upphafsatriði leiks- ins. F.va sat á hvilubekknum. Hún reis sneggra og kröftugar á fætur en hún var vön að gera. Hvilubekk- urinn ýttist eina tvo metra fram eftir sviðinu. Það hafði aldrei gerst áður. Tvo metra fram eftir sviðinu, nær sviðsbrúninni. Af því leiðir, að.... John Ekblom leikari heyrir lófa- takið. Svo verður allt hljótt. Járntjaldið fellur með brauki og bramli að gólfi og malar allt, sem á vegi þess verður. Sápa og shampó í sama dropa. fi ■ Doppeldusch i steypibaðið J.S. Helgason sf sími 37450 38. TBL.VIKAN 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.