Vikan


Vikan - 22.09.1977, Blaðsíða 48

Vikan - 22.09.1977, Blaðsíða 48
í VERSLUN MEÐ VINNU- VEITANDA Kæri draumráðandi, Mig langar að biðja þig um að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi fyrir stuttu og get ekki gleymt. Mig dreymdi að ég væri á leið í vinnuna, og var að ganga eftir Hafnargötunni. Þá mætti ég vinnuveitanda mínum. Við fórum inn í búð við Harnargötuna, sem heitir Kyndill. Það var svo margt fólk í búðinni að við snérum við. En vinnuveitandinn snéri sér við í dyrunum og tók lykil upp úr vasa sínum og ætlaði að læsa búðinni, en lykillinn brotnaði í, þegar hann ætlaði að fara að læsa hurðinni. Hann náði brotunum úr skránni, og hélt á þeim í hendinni en meðan hann var að þessu, gekk ég út á götuna, og þá varð allt svart, svo ég leit upp í himininn, og hann var líka svartur. Þá sá ég, hvar flugeldur þaut upp í loftið og sprakk þar. Það birti mikið frá flugeldinum, svo ég labbaði áfram. Þegar ég var búin að labba smáspöl, datt prikið af flugeld- inum rétt fyrir framan mig og það var brotið. Ég tók prikið upp og ætlaði að eiga það og fara með það heim til mín og við það vaknaði ég. Ég vona að þú getir lesið eitthvað úr þessu. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. GÞ. Vinnuveitandi þinn mun verða fyrir einhverri óheppni um stund- arsakir, en einnig er hætt við að þú lendir sjálf í einhverjum vand- ræðum, og þú verður aðeins að treysta á sjálfa þig í þeim erfið- /eikum. Þú auðgast á óvæntan hátt og mikil gleði er i uppsiglingu hjá þér. i ÓKUNNUGU HÚSI Kæri draumráðandi! Mig dreymdi fyrir stuttu tvo drauma (sömu nóttina), sem ég ætla að biðja þig að ráða. Sá fyrri var svona: Mér fannst ég vera á Mig dreymdi gangi í ófullgerðu húsi, með einhverju fólki, sem ég þekki, en get þó ekki munað hverjir voru, nema eiginmaður minn. Þetta var mjög stórt hús og gengum við í hvert herbergi. Allir veggir voru gráir (málað'ir ) en það var tjaldað fyrir alla glugga með bláum gluggatjöldum, sem voru illa sett upp. Að lokum komum við í eitt herbergi, sem var fullgert, með mjög fallegum húsgögnum. Mér leið illa þar, því mér fannst húsráðendurnir ver að koma, og ég væri í algjöru óleyfi þarna. Seinni draumurinn var mjög stuttur. Hann var á þá leið, að mér fannst ég vera að þvo. Giftingar- hringurinn var alltaf að renna framan af fingrinum en svo festist hann á liðamótunum. Ég var lengi að reyna að losa hann, en ekki man ég, hvort ég tók hann af mér, eða lét hann kyrran. En þessi hringur var kúptur og frekar grannur, en minn er sléttur oj breiður. Með þökk fyrir ráðning- una, SMF Fyrri draumurinn boðar þér snögg umskipti, sem verða á lífsvenjum þínum. Þin bíður aukin ve/megun og heimi/ishamingja, og þú átt skemmtilegt tímabil í vændum. Síðar draumurinn er fyrirboði smávægi/egra erfiðteika, sem þú mætir í hjónabandi þínu, en þeir eru ekkieins alvarlegs eð/is ogþér virðist í fyrstu og aiit fer vel að lokum. Á ÞVÆLINGI UM AKRANES Kæri draumráðandi, í nótt dreymdi mig eftirfarandi draum. Mér fannst ég vera stödd uppi í sveit. Með mér þar voru börn mín tvö, lítill bróðir minn og ársgamall strákur, sem ég hef gætt undanfarið. Fannst mér ég hafa tekið rútu þangað sem ég var. Veður var dumbungslegt og rigningarsuddi. Þó vorum við ekki blaut. Við gengum áfram og komum þá í kauptún, sem ég hef aldrei komið í áður. Af vöru- merkjum verslana þar mátti ráða, að þetta væri Akranes. Aldrei hef ég komið þangað í rauninni. Þegar ég vissi, hvar ég var, ákvað ég að leita að húsi, sem ég vissi að gamall vinur minn býr í. Ég kom í götuna og leitaði að húsinu, en fann ekki þetta eina númer, en allt annað í kring. En ég var staðráðin í að hætta ekki leitinni, fyrr en ég sæi, hvernig hann byggi. Ég rúllaði kerrunni um götur staðarins og reyndi að finna byrjun götunn- ar. Þvældumst við lengi um. Þurftum við að ganga í gegnum hús til að komast út á næstu götu. Einhverja ábendingu virðist vinur minn hafa fengið, að ég væri að leita hans, því ég fékk þau skilaboð að hann byggi þeim megin sem brúin væri, en ég skyldi passa mig að fara ekki þeim megin, sem kvennaskólinn væri. Hélt ég áfram og kom seinna að lítilli göngubrú, að mér fannst. Mikið vatn var þar umhverfis, sem mér fannst vera afleiðing allrar rigningarinnar. Ég sá marga menn, sem líktust vininum, en hann var enginn þeirra. Alveg var ég auralaus og átti ekki fyrir farinu heim. Allir peningar höfðu farið í rútuferðina. Var ég því að hugsa um að fara á puttanum heim, en fyrst ætlaði ég að finna vininn. Man ég ekkert meira úr þessum draumi. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna, Ásta. Þessi draumur er fyrirboði breytinga, sem verða á llfi þínu, annaðhvort af völdum starfs þíns, eða hjúskapar. Sjá/fsálit þitt á eftir að biða einhverja hnekki, og líkur eru til að þú eigir við minniháttar veikindi að striða um tima. Regnið er gæfumerki, og brúin bcrðar þér velgengni og hamingju. EGG i NÆRFÖTUM Kæri draumráðandi! Hér er draumur, sem ég vil gjarnan að þú ráðir fyrir mig, eins vel og þú getur. Að vísu er hann hluti úr draumi, sem ég man ekki rétt vel. Það var kvöld, og ég var að hátta mig og var komin í náttföt. Síðan ætlaði ég að taka saman fötin mín, en þá sá ég að nærfötin voru orðin fölgræn og þegar ég tók þau upp, datt stórt fölgrænt egg út úr þeim. Það var allt í sprungum og þegar ég fór að skoað það betur, brotnaði það og rauðan sprakk og fór í köggla. Allt í einu er vinkona mín, sem býr erlendis, komin til mín og við skoðuðum þetta með hálfgerðum hryllingi. Þá sagði hún allt í einu hálfill: „Þetta er þessi helv.... pilla." Meira man ég ekki og ég er ekki í neinum barneignahugleið- ingum eða neitt slíkt. Með von um birtingu, Virðingarfyllst, E.G. Þú kemst að einhverju fjöt- skyldu/eyndarmáli, sem veldur þér miklum áhyggjum. Sennilega áttu eftir að striða við minniháttar veikindi um tíma, en erfiðleikarnir ganga fljótt yfir. Að finna egg i draumi, boðar ógiftum giftingu, en þó er hætt við að þú verðir fyri'r eignatjóni, mannorðsspjöllum eða svikum, þar sem það brotnaði. Rauðan boðar aftur á móti gleði og góðar fréttir. 48VIKAN38. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.