Vikan - 27.07.1978, Qupperneq 12
Þvottadagurinn er
ekki lengur neinn
sérstakur dagur
Sjálfvirku vélarnar lengja vikuna
hjá húsmæðmnum — en það þarf
þó enn að stjórna vélunum.
Þegar við förum út í búð og
kaupum þvottaefni til þess að
þvo þvottinn okkar í þvotta-
vélinni, dettur okkur líklega
sjaldnast í hug, að það sé hægt
að spara með því að velta verðinu
á þvottaefninu fyrir sér. — En
auðvitað er það hægt. Þvotta-
efni kostar ákaflega misjafnlega
mikið, — á pökkunum stendur
aðeins, hvað pakkinn kostar, en
það er einingarverðið, sem öllu
máli skiptir, þegar verið er að
bera saman verð.
Auðvitað skiptir hæfni
þvottaefnisins lika miklu máli.
Það þarf minna af ákveðnum
merkjum en öðrum. En i
flestar sjálfvirkar þvottavélar er
látið sama eða svipað magn af
þvottaefni.
Tvær þvottavélar
á mörgum heimilum
Formæður okkarhefðuliklega
rekið upp stór augu, ef þær
hefðu séð fyrir, við hvaða
aðstæður við þvoum þvottínn
okkar í dag. Næstum þvi öll
heimili eiga eða hafa aðgang að
sjálfvirkri þvottavél, og margir
hafa einnig aðgang að eða eiga
þurrkara. Sum heimili eiga
þvottavél á hæðinni, en hafa
síðan aðgang að fullkomnu
sameiginlegu þvottahúsi í
kjaliaranum.
í fjölbýlishúsum eru
yfirleitt alltaf þvottahús með
fullkomnum og stórvirkum
vélum, þar sem hægt er að þvo,
þurrka og strauja þvottinn á
broti af þeim tíma, sem það tók
formæður okkar að gera þetta
verk.
Sjálfvirka vélin lengir
vikuna
Ég minnist þess, er vinkona
mín eignaðist sjálfvirka þvotta-
vél fyrir einum 15 árum. Þá
sagði hún, að vélin lengdi
vikuna um að minnsta kosti
heilan dag. Á meðan hún þvoði í
„venjulegri gamaldagsvél með
„bullu” þá þurfti hún að eyða
einum heilum degi í hverri viku
til þvotta. En með sjálfvirku
vélinni gekk þetta fyrir sig, án
þess að hún hefði svo mikil
afskipti af þvottinum.
Mér var sjálfri líkt farið. Mér
fannst lífið brosa við mér, þegar
ég eignaðist sjálfvirka þvottavél.
Og eftir tvö rigningarsumur,
þegar aldrei var hægt að hengja
þvottinn út • þerris, keypti ég
mér þurrkara. Það lengdi vikuna
einnig um heilan dag, kannski
fleiri en einn. Þannig að vikan
hjá vinkonu minni og mér er
einir átta eða níu dagar.
„Þvottadagarnir" úr sög-
unni
Okkur er hollt að hugsa til
þess, hvemig formæður okkur
þurftu að hafa sína þvottadaga.
12 VIKAN 30. TBL.