Vikan


Vikan - 01.03.1979, Blaðsíða 11

Vikan - 01.03.1979, Blaðsíða 11
flóttans. Þetta, ásamt því að konur gera nú æ meira að því að viðurkenna eigin vanda- mál, veldur því að hlutfall kvenna í sambandi við áfengisneyslu hefur hækkað jafn mikið og raun ber vitni á síðastliðnum árum. — Þó að konur nái nú æ meira sjálfstæði út á við standa þær ennþá tilfinningalega séð höllum fæti og þá sérstaklega í sambandi við hlutverk sitt sem móðir og kynvera. Það er langt frá því að þær hafi tileinkað sér hið svokallaða frjálsa kynlíf. Þó þær játi því á yfirborðinu, veldur það jafnvel enn meiri tilfinningaflækju hjá þeim en ella. Þeim hættir til að taka ástríðu fyrir ást og eru of fljótar til að bindast elskhuga sínum tilfinningalega. Þetta er sérstaklega óheppilegt fyrir einstæðar konur sem eru að reyna að hætta að drekka. Einnig er ennþá erfitt fyrir flestar konur að sætta sig við hið óumflýjanlega breytingaskeið. — Þessi tilfinningavandamál eiga engu síður við um íslenskar konur en okkur, þó þær íslensku séu mun lengra á veg komnar til sjálfstæðs þroska og ég geti ekki annað en dáðst að sjálfstæði þeirra. — Annað vandamál, sem hefur aukist að mun á síðastliðnum árum, er ofdrykkja aldraðra og á það bæði við um konur og karla. Þetta stafar líka af breyttum þjóð- félagsháttum, fólk lifir nú miklu lengur og hættir til að finnast sem ekki sé lengur þörf fyrir það er aldurinn færist yfir. * Magnús Blöndal Jóhannsson hefur starfað í Bandaríkjunum á vegum Freeport síðan í október 1977 og við báðum hann að seg/a okkurfrá þessu starfi sínu: Mismunandi leiðir að sama markmiði Ég er nokkurs konar milliliður milli islenskra aðila annars vegar og hins vegar Freeport ásamt Veritas Villa og Rheinbeck Lodge. Ég tek á móti fólki, sem kemur að heiman, á flugvellinum og fer með það á Freeport en þar er það í tilskilinn tíma. Eftir tilkomu Reykjadals er sá tími nú skemmri en áður. Á sjúkrahúsinu sjálfu fer ekki aðeins fram hin eiginlega afvötnun, heldur sækir fólk þar og fyrirlestra um áfengissýki, sem gefa góða og raunsæja mynd af þessu mikla vandamáli. — Eftir það hefst hin raunverulega endurhæfing, annaðhvort á Rheinbeck eða í Veritas Villa, eftir því sem fólk hefur ákveðið. Það er mjög mikið atriði að fólk dvelji þar a.m.k. lágmarkstíma, sem talinn er vera 4 vikur. — Þessir tveir staðir vinna að sama markmiði, en með ólikum aðferðum. Á Rheinbeck er allt miklu fræðilegra, Veritas Villa leggur meira upp úr AA fyrir- lestrum og viðtölum við félagsráðgjafa. Endurhæfing eftir Freeport — í því sambandi langar mig til að benda fólki á nauðsyn þess að sækja AA fundi eftir að heim er komið. Staðreyndin er sú að þeir sem stunda fundina vel standa sig mun betur en hinir. — Því miður hefur risið upp nokkur mis- skilningur í sambandi við þessar stofnanir og sá misskilningur síðan blandast persónu- legum sjónarmiðum. Þessi ágreiningur hefur komið illa niður á fólki sem hefur komið hingað, því það fær ekki nægar upplýsingar um báða staðina. Þetta hefur og valdið leiðindum, fólki finnst það dregið í dilka. Þetta er afleitt, því auðvitað vilja allir að fólk fái sem besta lausn á sínum vanda. Það er í rauninni ekki verið að gera upp á milli þessara staða, heldur mismunandi þarfa fólks. Vandamálið á sér djúpar rætur Dominikanska reglan stendur fyrir rekstri á Veritas Villa og það setur auðvitað nokkurn svip á staðinn. Hún fær opinberan styrk til starfseminnar og getur því haldið niðri dvalarkostnaði. Húsreglur eru nokkuð strangar, t.d. fær fólk ekki að fara út eitt síns liðs, og ferðasvæði er takmarkað. En þessar reglur eiga fullan rétt á sér, því Veritas Villa stendur skammt frá borginni Monticelli, þar sem mikið er um bari, spilavíti og alls kyns spillingu. Nokkur opinber fyrirtæki, eins og lögreglan, sorphreinsunaraðilar og Con Edison, senda starfsmenn sína til endur- hæfingar i Veritas Villa ef þeir eiga við áfengisvandamál að stríða. Þeim eru þá settir tveir kostir: Annaðhvort að bæta sitt ráð eða láta af störfum. Þetta fólk kemur til endurhæfingar með nokkuð öðru hugarfari en fólkið sem kemur að heiman. Það hefur gert sér grein fyrir því sjálft að það verður að gera eitthvað í málinu, það er staðráðið í að leggja sig fram við að leysa vanda sinn. — Góð enskukunnátta er ennþá nauðsynlegri fyrir þá sem fara á Rhein- beck, þar sem prógrammið þar er mun fræðilegra. Það byggir mikið upp á sjálfs- könnun, fólk rekur vandamál sín allt aftur í frumbernsku og skrifar mikið niður. — En bæði þessi prógrömm leggja áherslu á að kenna fólki að lifa lífinu og gefnar eru leiðbeiningar um hvernig það eigi að bregðast við alls kyns aðstæðum, sem það hugsanlega kann að lenda í. Því sálkannanir hafa sýnt, að vandamálið á sér oft miklu dýpri rætur en sjálfa áfengis- neysluna. Og eitt er víst, engar aðferðir hafa reynst eins vel við að hjálpa fólki til að rífa sig upp úr böli ofdrykkjunnar og ná aftur fótfestu í lífinu. Að ó leiðinni til Rheinbeck Lodge. Magnús Blöndal Jóhannsson ósamt blaðamanni Vikunnar. 9. tbl. Vikan II
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.