Vikan


Vikan - 01.03.1979, Blaðsíða 50

Vikan - 01.03.1979, Blaðsíða 50
GLA UMGOSINN Sir Richard vissi að þetta var rnjög viðkvæmt mál og hafði verið að íhuga hvernig fara ætti að því til þess að koma Brandon fólkinu frá sem mestri hneisu, fannst að afskipti Piers myndu ekki auðvelda fyrirætlanir hans. Hann leit í annað sinn rannsakandi augnaráði á unga manninn og sagði: „Það myndi ekki koma að neinu gagni, þó að þér gerðuð það, held ég. Yður væri best að láta mig um það.” „Þér vitið eitthvað um málið!" „Já, einmitt. Ég er vel kunnugur Brandon fólkinu og ég veit töluvert um framkvæmdir Beverlys. Það er ekki óliklegt að mjög sérstætt hneyksli eigi eftir að fylgja í kjölfar morðsins á honum.” Piers kinkaði kolli. „Ég óttaðist það. Vitið þér það herra, að hann var ekki allur þar sem hann var séður, og svo þekkti hann mjög einkennilegt fólk. Það kom maður að spyrja eftir honum i gær — ógurlegur ruddi. Ég hugsa að þér kannist við slika gripi. Beverly stóð alls ekki á sama, það var augljóst.” „Áttuð þér heiðurinn af þvi að hitta þennan mann?” „Jah, ég sá hann, en ég talaði ekkert við hann. Þjónninn kom til þess að segja Beverly að kafteinn Trimble óskaði þess að sjá hann. Beverly varð svo mikið um að — jæja, ég vissi hreint ekki hvað var á seyði.” „Aha!” sagði sir Richard. „Sú staðreynd að þér hafið hitt kaftein Trimble getur, og getur ekki, reynst nyt- samleg. Já, ég held að það væri best að þér færuð heim og segðuð ekkert um þetta. Yður verða eflaust færðar fréttirnar um lát Beverlys i fyrramálið.” „En hvað á ég að segja lögreglunni, herra?” „Hvað sent hún spyr yður um," svaraði sir Richard. „Á ég að segja að ég hafi fundið Beverly hér ásamt yður?” spurði Piers fullurefa. „Ég efast um að þér verðið spurður slíkrar spurningar.” „En þeir furða sig örugglega á þvi að ég skuli ekki hafa saknað Beverlys.” „Sögðuð þér ekki að Beverly ætlaði í rúmið? Hvers vegna ættuð þér að sakna hans?” „En í fyrramálið?” „Já, ég held að þér gætuð saknað hans við morgunverðarborðið,” játaði sir Richard. „Ég skil. Jæja, ef yður finnst þetta vera rétt herra, ég vil siður láta það uppi, að ég hafi verið hér í skóginum i kvöld. En hvað á ég að segja ef ég er spurður hvort ég þekki yður?" „Þérþekkiðmigekki” „N-nei. Nei, auðvitað þekki ég yður ekki,” sagði Piers og virtist ánægður með þessa lausn. „Þér eigið eftir að verða þeirrar ánægju aðnjótandi. Ég kom hingað til þess að — hérna — kynnast yður, en þetta er varla rétti tíminn til þess að koma inn á mál sem ég hef rika á- stæðu til að ætla að verði flókið.” „Þér komuð til þess að hitta MIG?” sagði Piers undrandi. „Hvernig getur það verið?” „Ef,” sagði sir Richard, „þér vilduð koma og hitta mig á George á morgun — sem er fullkomlega eðlilegt, þar sem ég fann lík gests yðar — þá mun ég segja yður hversvegna ég kom til Queen Charlton." „Minn er heiðurinn, en ég fæ ekki séð hvaða erindi þér getið átt viðmig.” „Það undrar mig ekki nærri eins mikið og erindi mitt á eftir að undra yður, hr. Luttrell,” sagði sir Richard. 9. kafli Eftir að hafa litið nokkrum sinnum á úrið og skimað í kringum sig eins og hann byggist við að sjá einhvern fela sig i trjánum, fór Piers Luttrell. Honunt hafði létt ntikið en hann virtist vera mjög ruglaður. Sir Richard fór einnig til þess að finna Pen og óþekktu stúlkuna. Hann fann aðeins Pen þar sem hún sat áhyggjulaus á bekknum og spennti greipar urn kné. Hann stansaði og virti hana fyrir sér. „Og hvar," spurði hann i léttum tón, „er félagi þinn?” „Hún ákvað að fara heim,” svaraði Pen. „Ég hugsa að hún hafi verið orðin þreytt á þvi aðbíða eftir þér." „Það er ekki óliklegt. Þú hefur kannski hvatt hana til þess?” „Nei, þess þurfti ekki. Hún var nijög áköf í að fara. Hún sagðist óska þess að hún hefði ekki komið." „Sagði hún þér hversvegna hún hefði komið?” „Nei. Auðvitað spurði ég hana, en hún var svo mikill bjáni. Hún gerði ekki annað en gráta og segja að hún væri slæm stúlka. Veistu hvað ég held, Richard?" „Líklega." „Nú, ég held að hún hafi ætlað að hitta einhvem. Hún virtist einmitt sú kventegund, sem verður rómantísk að- eins af þvi að það er fullt tungl. Hvað ætti hún annars að vera að gera hér á þessum tima sólarhrings?" „Ja, hvað annað?” samsinnti sir Richard. „Ég býst ekki við að þú hafir miklasamúðmeðslíkum bjánaskap?" „Ekki neina,” sagði Pen. „Reyndar finnst mér það bæði bjánalegt og ósiðsamlegt." „Þú ert miskunnarlaus." „Ég heyri það á rödd þinni að þú ert að hlæja að mér. Ég býst við að þú sért að hugsa um það þegar ég klifraði út um gluggann. En ég var ekki að fara til þess að hitta einhvern elskhuga ítunglskin- inu, eða þess háttar.” „Satt er það,” sagði sir Richard og kinkaði kolli. „Lét hún nokkuð uppi um það hver væri elskhugi hennar?” „Nei, en hún sagði mér að hún héti Lydia Daubenacy. Hún var ekki fyrr búin að segja mér það en hún fór út í aðra sálma og fór að segja mér hvað hún væri utan við sig og að hún hefði ekki átt að koma. Reyndar var ég bara ánægð, þegar hún ákvað að fara í stað þess að bíða eftirþér.” „Já, ég þóttist vita það að félags- skapur hennar væri ekki við þitt hæfi. Ég held að það ætti ekki að skipta miklu niáli. Mér fannst hún ekki vera sú kvengerð sem hægt er að treysta fyrir leyndarmáli.” „Jæja, ég veit það nú ekki,” sagði Pen hugsandi. „Hún var svo hrædd að ég held að hún eigi ekki eftir að segja orð um það sem hér gerðist. Ég hef verið að hugsa málið og ég held að hún sé ást- fangin af einhverjum, sem foreldrar hennar vilja ekki að hún giftist." „Það,” sagði sir Richard, „held ég að sé nokkuð rétt til getið.” „Svo það kæmi mér ekki á óvart þó að Enn aukin þjónusta! Ókeypis eyðublöð á afgreiðslunni: Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Lausafé: Kaupsamningar, víxlar. Húsnæði: Húsaleigusamningar. Miðstöð smáauglýsingaviðskiptanna Smáauglýsingaþjónustan. 'l\ iBIADIB Bíll: Sölutilkynningar, tryggingabréf, víxlar, afsöl. Dagblaðiðafgreiðsla Þverholti 11 sími 27022 Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022 50 Vlkan 9. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.