Vikan - 26.04.1979, Qupperneq 48
Vikan prófar léttu vínin 17.
Suðurfrönsk rauðvín
Tugir berjateg-
unda í einni
rauðvínsflösku
Rhone-dalur er elst af hinum kunnu
vínræktarsvæðum Frakklands. Þar
ræktuðu Rómverjar vin löngu fyrir
Krists burð. Fram eftir öldum komu
heimsins bestu vin frá þessu svæði. Og
fyrir aðeins hundrað árum var Rhone
talin jafnoki Bordeaux og Búrgundar.
Síðan hefur heldur sigið á ógæfu-
hliðina hjá vínbændum þessa forna
svæðis. Bordeaux og Búrgund hafa tekiö
örugga forustu og Rhone-dalur situr
eftir ásamt Loire-dal I þriðja til fjórða
sæti. Rhone-vínin hafa ekki versnað, en
þau hafa staðið i stað.
Cote Rotie og Hermitagc vantar
Frægust eru þrjú svæði við Rhone.
Nyrst eru Cote Rotie og Condrieu. I
miðjunni er Hermitage. Og syðst, suður
undir Avignon, er Chateauneuf-du-
Pape. Frá því svæði fæst eitt vín í
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, en
ekkert frá hinum tveimur.
Samtals eru það 15 svæði við ána
Rhone, sem hafa eigin staðsetningu i
gæðakerfi franska ríkisins. Næst á eftir í
virðingarstiganum eru 14 svæði, sem
hafa leyfi til að bera hið sameiginlega
nafn: Cotes-du-Rhone-Villages. Siðust
koma svo 150 svæði eða hreppar, sem
mega kalla vín sín: Cotes-du-Rhone.
Af siðasta flokknum eru þrjú vín i
Ríkinu. 1 gæðaprófun Vikunnar kom í
ljós, að þau voru ekki þekkjanleg í
sundur. Af því mætti ætla, að eitt slíkt
vín mundi nægja. Hafa mætti í staðinn
fyrir hin tvö vínin eitt frá Cote Rotie og
annað frá Hermitage.
13,5$ áfengisinnihald
Vínih frá Rhone eru mestmegnis
rauðvin, andstætt við vinin frá Loire,
sem eru aðallega hvítvín. Þessi rauðu
vín eru oft svört og bitur, þegar þau eru
ung, en verða mjúk og bragðdjúp með
aldrinum. Ilmur þeirra er yfirleitt góður.
Nyrst á svæðinu eru rauðvínin fremur
fínleg, en syðst eru þau öflug og höfug.
Chateauneuf-du-Pape er aldrei innan við
12,5% að áfengisstyrk og sú tegund,
sem hér fæst, er 13,5 %.
1 Þýskalandi og Búrgund er yfirleitt
48 Vlkan 17, tbl.