Vikan - 06.09.1979, Page 8
ÁBENDING:
Það eru aðeins fáar umbúðir sem
fullnægja öllum þessum kröfum. Venju-
lega er nauðsynlegt að nota bæði innri og
ytri umbúðir. Bestu innri umbúðir eru
frystihimna í álpappír eða sellófan. Slíkar
umbúðir eru vatnsgufuþéttar og lykt- og
loftþéttar, en þeim verður þó að hlífa
með ytri umbúðum, t.d. plastpokum.
Álbakkar með loki fyrir fullgerða rétti,
beraldin eða grænmeti og álpokar með
sellófanhúð þarfnast ekki annarra
umbúða. Álpokarnir eru tilvaldir fyrir
ávexti, grænmeti og kjöt sem skorið er i
teninga. Þá er einnig hagkvæmt að geyma
tertur og sandkökur i álpappír, því þær
bakast, frystast og þiðna í sömu umbúð-
unum.
Munið að innri umbúðirnar eiga að
falla eins þétt að vörunni og mögulegt er.
Varan heldur sér því betur sem minna
loft kemst í snertingu við hana. Þess
vegna er ekki nægilegt að setja einungis
plastpoka utan um kjöt. Hann leggst ekki
nógu vel að því.
Munið að á umbúðapakkanum á að
standa, að í honum séu frystiumbúðir, en
ekki að þar sé um venjulegar heimilis-
umbúðir að ræða. Álpappírinn á að vera
a.m.k. 0.02 mm á þykkt og plastpokarnir
0.04-0.05 mm þykkir. Slíkar upplýsingar
eru venjulega prentaðar á umbúðirnar.
Gjarnan má nota þunna plastpoka sem
ytri umbúðir. Plastöskjurnar geta líka
verið hentugar í frystinn.
ÁBENDING:_________________________
Munið að vökvar þenjast við frystingu.
Fyllið því aldrei öskjurnar alveg — skiljið
eftir 2 sm borð.
Endurnotkun
Öskjur undan jógúrt eða aðra plastbik-
ara má gjarnan nota undir ýmsar smá-
leifar, fryst grænmeti, eggjahvítur, barna-
mat eða megrunarfæði. Glös með skrúf-
uðu loki henta líka vel, en menn skyldu
varast að hafa mörg hlið við hlið. Þeim
hættir til að springa í miklum kulda.
Fyllið þau ekki alveg. Ef ekki eru til lok á
slíka bikara eða önnur ílát, má loka þeim
með álpappir eða tvöföldu frystisellófan,
sem haldið er á sínum stað með frystilím-
bandi eða gúmmíteygjum.
Munið að merkja vel allar umbúðir,
skrifa á þær innihald, magn og dagsetn-
ingu, áður en frysting fer fram. Þetta er
mjög nauðsynlegt og því hefur VIKAN
látið útbúa MINNISKORT, sem gerir
það að verkum að hægt er á augabragði
að sjá hvað í frystinum er, án þess að
opna hann. Á þetta minniskort er skrifuð
tegund matvöru, magn, dagsetning og
geymsluþol. Einnig er mikilvægt að lag-
færa tölurnar, i hvert skipti sem eitthvað
er tekið úr frystinum.
Athugið frystiafköstin______________
Þegar keyptur er frystir, eru m.a.
gefnar upplýsingar um, hve mikið magn
hann geti tekið til frystingar i einu. Það
er mjög sjaldgæft, að afköst hans séu slík,
að hann geti t.d. fryst heilan eða hálfan
skrokk í einu. Ef þú þarft hins vegar að
frysta meira en frystirinn ræður við í
einu, ættirðu heldur að láta eitthvað af
kjötinu i kæliskápinn í einn eða tvo daga
og frysta það síðan smám saman.
ÁBENDING:________________________
Munið að stilla frystinn á frystingu
a.m.k. sólarhring áður en honum er ætlað
að frysta stóran skammt af einhverjum
matvörum.
Það veltur auðvitað á ýmsu. Ef
maður á t.d. garð, getur borgað sig að
frysta mikið af grænmeti og sliku. Sé hins
vegar nauðsynlegt að kaupa hráefnið,
verður hagnaðurinn minni, því að i
verslunum fæst ágæt fryst matvara, sem
hægt er að kaupa allan ársins hring. Auk
þess er ekki víst að þær vörur sem
keyptar eru fullnægi fyrsta boðorði
frystingarinnar:
Frystið aðeins alveg nýja og
gallalausa vöru___________________
Sé tveimur störfum sinnt í einu, getur
verið kostur að búa til mat til mánaðar í
senn. Þá er t.d. hægt að nota eina helgi í
mánuði til þess að láta alla fjöiskylduna
vinna við það. Þetta getur verið mjög
skemmtilegt, auk þess sem það er dæma-
laust gott að þurfa ekki að þjóta í verslun
rétt fyrir lokun, ef eitthvað vantar.
Meðhöndlun matvæla fyrir
frystinguna_______________________
Öllu grænmeti, öðru en agúrkum,
rabarbara og kryddjurtum, á að bregða
sem snöggvast i sjóðandi vatn (eins og
fyrr hefur verið sagt) eða undirbúa á
annan hátt fyrir frystingu, þar eð efna-
kljúfarnir eyðileggja það annars. Rétt er
að hafa hugfast, að einstaka grænmetis-
tegundir þurfa mismunandi langan tíma í
slíku hitabaði. Suðutíminn reiknast frá því
andartaki, þegar suðan kemur upp á
vatninu, eftir að grænmetið hefur verið
látið út í það. Þegar suðan hefur varað
nógu lengi, er grænmetið tekið upp úr
með gataskeið eða spaða og látið um leið
í ílát með ísvatni, þar á það að vera eins
lengi og í hitabaðinu. Þá er það tekið upp
aftur, vatnið látið renna vel af því, síðan
látið í umbúðir og frysting hafin.
ÁBENDING:
Kartöflur henta ekki til frystingar. Ef
ætlunin er að útbúa rétti með kartöflum,
verður að bæta þeim í, þegar rétturinn er
þíddur til neyslu.
BERALDIN__________________________
Þau verða best, ef þau eru látin beint í
frystiumbúðir við tínsluna, t.d. álpoka. Ef
fólk kaupir berin, er hætt við að þau séu
óhrein og verður þá að þvo þau. Er þá
best að setja þau í stóra skál með köldu
vatni, láta þau liggja í vatninu um tima
og taka þau svo upp úr. Þá verða óhrein-
indin yfirleitt eftir í vatninu.
ÁBENDING:_________________________
Hellið aldrei vatni og berjum i sigti. Þá
vilja óhreinindin fylgja þeim áfram.
Berin eiga að vera eins þurr og hægt er,
þegar þau eru fryst. Látið því renna vel
af þeim. Beraldin verða best, ef sáldrað er
yfir þau 2-3 dl af sykri á hvert kíló af
súrum berjum, en aðeins einum dl, þegar
berin eru sæt.
STEINALDIN________________________
Eins og apríkósur, ferskjur, kirsuber og
plómur, má frysta steinaldin með stein-
unum eða án þeirra. Ef þau eru fryst með
steinunum, á að bæta sykri á þau. Þau
geymast þannig í 8 mánuði, en séu þau
geymd lengur, vilja þau verða beisk á
8 Vikan 36. tbl.