Vikan - 06.09.1979, Blaðsíða 63
um. Það var bara það að mig
langar til að spyrja þig nokk-
urra spurninga.
Hvað þarf maður að vera
gamall til að komast í
hjúkrunarskólann? Hvað er
Vikan eiginlega orðin gömul?
Hvað heldur þú að ég sé orðin
gömul? Ég þarf nú ekki að
spyrja um stafsetninguna
(hrceðileg) og svo svona í end-
inn, gætuð þið ekki birt plakat
af Village People og Meat
LoaJ?
Auðvitað vona égað bréfið fari
ekki I hina margumtöiuðu
ruslafötu.
Með fyrirfram þökk fyrir
P.S. Ég sendi smábréfsnepil,
sem Helga ruslafata getur
japlað á meðan þú lest bréfið.
Til þess að komast inn i
Hjúkrunarskóla Islands þarftu
að hafa lokið bæði grunnskóla
og menntaskóla. Námið þar
tekur svo 3-4 ár. Vikan er á
fertugasta og fyrsta aldursári og
Pósturinn telur öruggt að þú
sért talsvert yngri. Plakat af
Village People birtist í 31. tbl.
1979 og annað eins birtum við
af Meatloaf í 22. tbl. 1979.
Það er rétt hjá þér að varla er
hægt að hrósa stafsetningunni
en Helgu þótti mikið vænt um
sendinguna.
Hef skrifað
fimm sinnum
Hæ, hæ, Póstur minn!
Ég vona að þetta bréf lendi
ekki I ruslafötunni. Ég hef
Þetta er einhver sem stendur á öndinni.
ég held að pabbi hafi misst af strætð.
fréttamenn okkar rœða við nokkra
aðra fréttamenn um frétta-
mennsku...
birtinguna.
Dísa á Hofi.
Þau segja að ég sé
bara barn ennþá „
o
Kæri Póstur!
Ég er áskrifandi að Vikunni og mér finnst hún vera mjög
gott blað. Eini gallinn við það er að þið þurfið alltaf að
skrifa Vikan utan á öll plakötin. Mér, og kannski fleirum,
flnnst það eyðileggja alveg plakötin. Það er svo asnalegt að
hafa það, af hverju gerið þið það alltaf? Jæja, nóg um það.
Eg þarfað biðja þig um hjálp út af foreldrum mínum og
ófædda barninu. Það er nefnilega málið að ég er ófrísk
(komin tvo mánuði á leið). En ég þori ekki að segja
mömmu og pabba frá því, því að þau verðæfokreið, ef
þau frétta að ég er barnshafandi. Þau eru alltaf að segja
mér að ég eigi ekki að eignast barn ung, þau segja að ég sé
ekki nógu þroskuð líkamlega til þess og að ég sé bara barn
ennþá. En ég þarf alltaf að æsa mig upp á móti og segja
þeim að ég sé ekkert barn ennþá og að ég sé nógu þroskuð
til að eignast barn (þetta var bara óvart að ég varð ólétt).
Er ekki hægt að fá fóstureyðingu án þess aðforeldrar viti
af því?
Hvenær er maður fullorðinn? Eg vona að þú birtir þetta,
ástin mín.
E.S. Ég bý hjá stráknum sem ég er með. Hafa
foreldrar mínir nokkurn rétt til að segja mér að ég megi
ekki eiga barn? Stundum held ég að þau séu eitthvað
dúmm, dúmm í heddinu stóra.
Sigga.
Aðalástæðan fyrir því að við merkjum þau plaköt, sem í
Vikunni birtast, er að sjálfsögðu sú staðreynd að þau birtast í
Vikunni og því sjálfsagt að það komi einhvers Staðar fram.
Vikan er ekki ein um þetta, öll eríend blöð gera slíkt hið sama,
til dæm is þýska unglingablaðið Bravo.
Því miður verður Pósturinn að játa að hann er alveg
hjartanlega sammála foreldrum þínum. Þú ert alltof ung til
þess að eiga barn, bæði andlega og sennilega líkamlega einnig.
Það er varla hægt að segja nákvæmlega til um hvenær þú
getur átt von á því að verða fullorðin, því það er mjög teygjan-
legt hugtak. Varla er mögulegt að tala um ákveðinn árafjölda
í því sambandi og víst er að sumt fólk verður jafnvel aldrei
„fullorðið”. Þegar þetta birtist er orðið of seint fyrir þig að
hugsa um fóstureyðingu, þvi Vikan hefur mjög langan
vinnslutima. Hafir þú raunverulega verið komin tvo mánuði á
leið getur þú lítið gert annað en reynt að gera það besta úr því
sem komið er. Spurningum um umráðarétt foreldra þinna yfir
þér er ekki hægt að svara, því þú tekur ekki fram, hvað þú ert
gömul. Þú ættir þó að gefa þér betri tíma til þess að hlusta á
foreldra þína og leita ráða hjá þeim á hvaða aldri sem þú ert,
því þau eru örugglega ekki að reyna að vinna þér tjón með
ráðleggingum sínum.
skrifað þér fimm sinnum og
ekkert af þeim bréfum hefur
birst. Nú koma spurningarnar.
Eg er voða hrifin af strák.
Hann lítur oft hýrum augum á
mig en ég veit ekki hvað ég á
að gera. Spurning: Hvað er
heimUisfang Donnu Sommer?
Vonandi er Helga ekki svöng.
B. G.
Þú átt mikið hrós skilið fyrir
þrautseigjuna og ekki má minna
vera en að þú fáir svar i þetta
sinn. Heimilisfang Donnu
Sommer hefur Pósturinn því
miður ekki, en reki það á fjörur
hans síðar skal það samstundis
birt. Það er harla fátt, sem þú
ættir að gera í sambandi við
strákinn, nema að bíða og vona
að tækifæri gefist til að kynnast
honum nánar. Þú ert enginn
öldungur ennþá svo ekkert
liggur á. Næst þegar hann lítur
þig hýru auga skaltu reyna að
senda honum jafnhýrt augnaráð
á móti. Hver veit nema...
Hefur þú gaman af ljóðum,
Pétur?
Sjónvarpið var ágætt í gær í
rafmagnsleysinu!
36. tbl. Vikan 63