Vikan - 20.09.1979, Blaðsíða 20
Jónas Kristjánsson skrífar
frá Grikklandi: 6. grein
Aþena nútímans er
best á kaffihúsum
Fortfðin reynir á fæturna
Aþena nútímans er Ijót borg, nánast
hræðileg borg, enda byggð í miklu hasti
á síðustu áratugum. Þar er hvergi að
finna samræmi í húsagerðarlist. Og
umferðaröngþveitið er vægast sagt
gífurlegt. Það tekur stundarfjórðung að
aka kringum hótelið Grande Bretagne í
borgarmiðju.
Menn koma heldur ekki til Aþenu til
að horfa á nútimann. Menn koma til að
horfa á fornar rústir frá þeim tima, er
Aþeningar kunnu hið fullkomna
samræmi I húsagerðarlist og þekktu ekki
umferðaröngþveiti.
Við göngum upp á Akrópólis og
dáumst að Parþenon og öðrum hofum
klettavirkisins. Við göngum um hina
fornu Agóru með Stóum sínum annars
vegar og hreyknu hofi Þeseion hins
vegar. Við förum jafnvel í Keramikos,
kirkjugarð fornaldar.
Auðvitað förum við líka í merkasta
fornleifasafn veraldar, Þjóðminjasafnið.
Við förum jafnvel líka i Benakisafnið og
Býsanska safnið. Þetta er margra daga
vinna. Þjóðminjasafnið eitt er raunar
viku verk, ef vel ætti að vera.
Dásamleg uppfinning, loft-
kæling
Þetta reynir á fætur og svitakirtla.
Við reynum að nýta morguntímann
strax eftir opnun og kvöldtimann rétt
fyrir lokun, þegar hitinn er þolanleg-
astur. Frá hádegi til klukkan fimm
hættir venjulegur Islendingur sér ekki í
slikar gönguferðir.
Þegar þessu þrammi lýkur klukkan
ellefu að morgni eða sjö að kvöldi,
'<omast aðeins tvær hugsanir fyrir i
öfðinu. Hin fyrri er TAXI og hin síðari
lOFTKÆLING. Þá snýst lífsbaráttan
eingöngu um þetta tvennt.
Við hremmum leigubíl i offorsi. Viö
bítum á jaxlinn meðan við höllum okkur
aftur í kolsvört og brennheit plastsætin
og teljum mínúturnar inn að hóteli.
Uppi á herbergi er loftkælingin sett á
fullt. Síðan vöknum við til lifsins i svalri
sturtu.
Kaffíhúsin eru fyrsfa fíokks
Hvað á svo að gera við tímann frá
ellefu fyrir hádegi til fimm eftir hádegi?
Þama er siestan sjálfsögð eftir hádegis-
matinn eins og annars staðar við
Miðjarðarhafið. Ekki síst ef næturlífið I
Plaka var stundað nóttina áður eða
verður stundað næstu nótt.
Samt er nógur timi aflögu, sem betur
má nota til annars en að híma á hótel-
herbergi. Þá er upplagt að ganga á vit
hins hversdagslega mannlífs í hinni Ijótu
og streittu Aþenu nútimans. Það gerum
við með því að fá okkur hægan sess í
skugga á gangstéttarkaffihúsi.
Aþeningar bregða sér á kaffihús af
minnsta tilefni. Þar er gert út um
viðskipti. Þar mæla menn og konur sér
mót. Þar lesa menn blöðin og ráða
krossgátur. Þar horfa menn á náungann.
*0 Vlkan 3«. tbl.