Vikan


Vikan - 20.09.1979, Síða 45

Vikan - 20.09.1979, Síða 45
Fjölskyldumynd fyrir framtíðina FJÖmi MÖGULEIKINN: FHMMTI MÖGULEHONN: Ljósdraugar og skakkt siónarhorn Besta myndin frá atvinnu- Ijósmyndaranum Það er mikill misskilningur að aðeins mikið áhugafólk um ljósmyndun geti tekið góðar myndir, viðvaningar geta tekið ótrúlega góðar myndir. En þeir gera sig frekar en hinir seka um ýmis tæknileg mistök, sem oft eru gegnumgangandi í myndum sem þeir taka. Nokkur þeirra sjáum við á myndinni sem Jói fraendi tók á Kodak Instamatic, en sú vél sem hér um ræðir er mjög einföld, engar stillingar eru t.d. á fjarlægð eða ljósopi. Myndin er i fyrsta lagi tekin frá röngu sjónarhorni, sem gerir það að verkum að það litur út fyrir að fjölskyldan okkar sé að detta út úr myndinni hægra megin. Mörgum finnst tilbreyting i því að taka myndir horn í horn, þó þær myndir fari yfirleitt mjög illa í myndaalbúm- um, en hér er um augljós mistök að ræða. Það næsta sem við rekum augun í, er undarlegur Ijós- draugur vinstra megin á mynd- inni. Þetta er endurvarp leiftur- ljóssins af málmhlut sem stóð á hillunni. Gætið þess að beina ekki leifturljósinu að slíkum málmhlutum, gluggum eða myndum með gleri, því fyrir utan að eiga á hættu að fá slíka Ijósdrauga inn á myndina þá er einnig algengt að persónurnar verði með „rauð augu”. Að lokum sjáum við að eitthvað skyggir á myndina að neðanverðu, en það er hulstrið utan af myndavélinni. Það er algengt að fólk sem á myndavélar með áföstu hulstri athugi ekki, að lokið getur verið fyrir linsunni, þó það sjáist ekki þegar verið er að taka myndina. Þvi þarf fólk að ýta hulstrinu vel niður, þegar smellt er af. Síðasti möguleikinn sem við ákváðum að reyna var að láta atvinnuljósmyndara með tæki af fullkomnustu gerð taka myndina. Fyrir valinu varð Ljósmyndaþjónustan s.f. sem Mats Wibe Lund rekur, en þar hafa verið haldin ljósmynda- námskeið fyrir fólk sem áhuga hefur á ljósmyndun og nú í haust hafa verið haldin þar námskeið í loftljósmyndun. Eins og sjá má fer það ekki milli mála, að þetta er besta myndin sem við fengum af fjölskyldunni okkar. Þetta er dýrasta myndin sem við tókum, en fólk fær líka eitthvað fyrir snúð sinn, fullvissuna um að Ijósmyndin verði vel tekin og að lýsing og önnur tækniatriði séu í lagi. Að vísu þarf að gera sér grein fyrir því, að mikill auka- kostnaður fylgir myndatökunni, það þarf að panta stækkanir, kaupa ramma og annað slíkt, en á móti kemur ánægjan í margföldum mæli. — Nú bjóða líka tækninýjungar upp á annað og meira en eina litla ljósmynd. Hægt er að láta stækka myndir upp í málverkastærð, á striga eða timburfleka og jafnvel er hægt að láta myndina líta þannig út að hún sé máluð! Að lokum er fólki, og þá sér- staklega barnafólki, bent á, að velja tíma til fjölskyldumynda- töku þannig að öllum henti. Velja hann með tillliti til svefn- tíma barnanna og vinnutíma, því það eykur bæði ánægju og gæði myndarinnar, að allir séu vel upplagðir og friskir meðan á myndatökunni stendur. 38. tbi. Vikan 45

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.