Vikan - 18.10.1979, Page 4
Þessir gallar fást í tveimur litum, eru frá Pat et Chou og kosta ásamt peysunum 18.990 kr.
Leyfið börnunum
að hreyfa sig
Á dögum sólkonungsins þótti sjálfsagt aö klœða korna-
börn, jafnt sem unga krakka, á sama hátt og fullorðna, i
krínólín og óþjálflauelsföt. Ekkert var hugsað um hina
sjálfsögðu þörf þeirra til að hreyfa sig frjáls og óþvinguð.
Sem betur fer hefur þessi hugsunarháttur gjörbreystuDg
nú er mest lagt upp úr því að hafa barnaföt víð og
þœgileg og þess gcett að þau þoli vel þvott.
Franskir og danskir barnafataframleiðendur nota mikið
hreina bómull og ull I sínar flíkur, en barnafataverslunin
Mömmusál í Miðbœjarmarkaðnum verslar einmitt mikið
með franskar og danskar vörur. Mömmusál var opnuð
fyrir 6 árum og fœst þar klæðnaður á börn allt frá
fæðingu til tólf ára aldurs.
Við sjáum hér nokkur sýnishorn af vörum ’erslunar-
innar, sem glögglega sýna þá stefnu sem ríkir í barna-
fatnaði í vetur. Ljósmyndir tók Jim Smart en Jenný
A rnardóttir, Rafn Stefán Rafnsson og Sara Smart sýna
okkur fötin að þessu sinni.
HS
Danskar flauelsbuxur á 9950 kr„
skyrta á 3.900 kr„ taska á 6.400 kr. og
hettupeysa á 5.950 kr.