Vikan


Vikan - 08.11.1979, Page 7

Vikan - 08.11.1979, Page 7
Eftir margra ára rannsóknir segir Birthe Kyng að auðveld börn þróist iðulega ekki eins og þau þyrftu, af því að þau hafi ekki nægileg samskipti við umhverfi sitt. Jákvæð samskipti við umhverfið stuðli að jákvæðri þróun. Þau börn sem ekki mótmæli fái heldur ekki þá leikmöguleika sem eru þeim nauðsynlegir til að þroskast. Það er auðvelt að setja þau fyrir framan sjónvarpið, láta þau fá blað eða bók, því að þau sitji áreiðanlega og láti iítið í sér heyra. Ábyrgð fullorðinna er mikil gagnvart auðveldum börnum Eins og fyrr segir gleymast auðveldu börnin oft. Þau fá að liggja í barna- vagninum, í barnagrindinni, á gólfinu. Verða útundan á dagvistunarstofnunum og í skólum. Þau eru auðveldari fyrir fullorðna fólkið og það er oft fegið að einhver börn láti það í friði. En þar sem auðveld börn eiga erfitt með að krefja umhverfið um athygli verður umhverfið að veita þeim athygli. Það myndi allavega minnka líkurnar á því að þau verði útundan, ekki bara sem börn heldur líka sem fullorðin. Þeir fullorðnu, sem sjá um þessi börn, hafa mikla ábyrgð, bæði þeir sem vinna með börnin inni á stofnunum og þeir sem eru heima fyrir. Það þarf að leika við þessi börn, tala við þau, taka þau sérstaklega að sér og reyna að fá þau til að verða framtakssamari og opnari. Þetta krefst þess að vel sé búið að börnunum inni á stofnunum og að foreldrar hafi tíma og krafta til að sinna þeim. Þetta er hins vegar erfitt, þar sem lítill pólitískur vilji er fyrir hendi til að bæta aðstöðu barna. Börnin hafa lágan forgang þegar um fjárhag er að ræða. liggur hins vegar oft í því að þeir sem umgangast þessi börn og sinna þeim veita erfiðleikum þeirra ekki athygli. Barninu er því ekki hjálpað til þess að komast yfir erfiðleika sina, heldur er því haldið í sama mynstri, sem getur haldið áfram að styrkjast. Það eru oft rólegu, hægu, lokuðu börnin sem borga það háu verði að ekki er búið nægilega vel að þeim, t.d. inni á dag- vistunarstofnunum. Þau eru ekki fær um að krefjast neins né vekja á sér athygli eða taka frumkvæði. Þau verða einfaldlega út- undan. Árásargjörn, virk börn krefjast yfirleitt réttar síns, enda þótt kunni að vera illa búið að þeim, t.d. á dagheimili eða í skóla. Það er oft athyglin ein sem þessi börn vilja fá t>egar þau lenda í árekstrum við fullorðna. Fullorðnir verða oft pirrraðir og reiðir út í þessi börn, en þau hafa að minnsta kosti fengið þaðsem þau þurftu.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.