Vikan - 08.11.1979, Page 18
dag er sami drykkurinn og blandaður var í
Atlanta í maí árið 1886.
Þessi uppskrift er leyndarmál og enn
hefur engum tekist að endurskapa
drykkinn fullkomlega þrátt fyrir miklar
tilraunir. Það sem að okkur snýr hér á
íslandi er að við fáum send að utan tvö
undirstöðuefni, annað svart og hitt glært,
sem við blöndum með vatni og sykri og
fáum út úr því svokallað síróp sem síðan er
sett á flöskurnar, blandað með kolsýru-
vatni og þá er komið kóka-kóla. Leyndar-
málið um kóka-kóla liggur sem sagt í
þessum undirstöðuefnum sem við fáum
send að utan. Við höfum töluverða sér-
stöðu miðað við önnur lönd þar sem venju-
lega gengur þetta þannig fyrir sig að verk-
smiðjurnar fá sirópið sent til sin, en vegna
fjarlægðar erum við látnir sjá um að þlanda
það sjálfir. Það er ekki algengt. Það er að
mestu vitað hvaða efni eru í þessum undir-
stöðuþáttum sem við fáum í hendurnar. Að
einhverjum hluta eru þetta kirsuþerjaefni,
sítrónuefni o.fl.
Þetta hefur allt verið efnagreint en það
sem gerir herslumuninn er að menn vita
ekki í hvaða röð þessu er blandað saman og
á hvaða stigi blöndunarinnar vissir hvatar
eru settir út í. Það veldur því að menn hafa
ekki enn getað endurskapað kóka-kóla
fullkomlega. Aðrir kóla-drykkir byggja á
sömu efnablöndu en blöndunarröðin gerir
útslagið og veldur því að enginn annar
kóla-drykkur nær þessu sérstaka bragði
sem kók hefur. Pepsi-cola er talið hafa
komist næst því að ná bragðinu, eftir
miklar tilraunir, en dæmið gekk aldrei
alveg upp þannig að þeir hættu við allt
saman og sneru sér að því að finna sitt eigið
sérstaka bragð. Þeir hafa haldið sig við það
síðan.
Ekkert eitur
— Nú hafa lengi verið raddir uppi um
það, og meira að segja verið skrifaðar um
það heilu bækurnar, að nafnið kóka-kóla
segi eitthvað um innihaldið, og er þá átt við
að efni eins og kókaín hafi upphaflega verið
í drykknum og m.a. valdið hinni miklu út-
breiðslu sem hann hefur náð. Er ekki líklegt
að lyfsalinn gamli í Atlanta hafi sett ein-
hver lyf út í drykkinn, ef hann á annað
borð var að búa til lífselexír, og það hafi
síðan verið tekið úr drykknum? Bendir ekki
nafnið til þess?
— Nafnið, kóka-kóla, hefur enga
þýðingu fyrir innihald þess. Það er ekkert
efni í því sem heitir cola og ekkert sem heitir
coca. Að visu er það satt að þessu hefur
verið haldið fram og meira að segja svo
kröftuglega að fyrirtækið sá sig tilneytt til að
gefa út heila bók um sögu kóka-kóla, tilurð
þess, innihald, m.m., til þess að hrinda
þessum sögusögnum og það tókst. Hið
rétta í málinu er, ef ég man rétt, að það var
skrifstofustjóri félagsins sem fann upp
nafnið kóka-kóla og sagði hann það
eingöngu vera vegna þess hversu vel það
hljómaði, reyndar var það sami maðurinn
og teiknaði kók-flöskuna sem viðfræg er
orðin og hefur verið með þessu lagi síðan
1915. Áður hafði drykkurinn veriðseldur á
venjulegum flöskum og aðeins í Suður-
ríkjunum, en eftir að nýja lagið kemur á
flöskurnar fer kóka-kóla að skera sig úr og
byrjað er að auglýsa það um þver og endi-
löng Bandaríkin og verður það sem
Kaninn kallar „nation-wide” drykkur.
Íslenskt kók er
óðruvisi
— Landinn hefur oft haldið því fram að
íslenska kókið væri það besta í heimi og
vitnar þá gjarnan í fjölmargar ferðir sem
hann hefur farið út í hinn stóra heim þar
sem kókið hefur verið allt annað og verra.
Er íslenska blandan eitthvað frábrugðin
öðrum?
— Það er satt, margur maðurinn heldur
því fram að okkar kók sé betra en útlent og
það er ýmislegt til í því. En í stórum
dráttum felst mismunur á kókbragði
eingöngu í því vatni sem notað er í það.
Margar þjóðir, sem ekki hafa eins gott vatn
og við, verða að hreinsa vatnið margoft
áður en það verður nothæft I blönduna og
við margendurtekna hreinsun geta ýmis
aukabragðefni slæðst með. Við höfum
aftur á móti ferskt vatn, sem við getum
notað beint, og stöndum þvi betur að vigi.
En það er nú þannig að þegar við
byrjuðum framleiðslu hérlendis þá
miðuðum við þrýstinginn á kókinu við
þann þrýsting sem var á gosdrykkjum hjá
Agli Skallagrímssyni, en sá þrýstingur var
meiri en kóka-kóla félagið leyfði. Við
færðum okkur því neðar í þrýstingi en þá
byrjuðu kaupendurnir að kvarta — þeir
vildu kók með gosi sem hvæsti þegar
tappinn var tekinn af. Fólkið vildi fá gos í
andlitið jægar það bar glasið að vörum.
Þessi óánægja varð svo megn að við
fengum leyfi til að bæta aðeins meiri kolsýru i
litlu kókflöskuna, nóg til að það
frussaði aðeins, og þá varð fólkið ánægt. í
stærri flöskurnar er aftur á móti blandað
eftir gamla laginu og þess vegna er bragðið
að því aðeins flatara, eða eins og af útlendu
kóki. Ég tek, persónulega, flata bragðið
fram yfir gosið og það eru margir gamlir
starfsmenn hjá okkur sem vilja ekki drekka
litla kók nema hún sé búin að standa
aðeins. Þetta eru menn sem muna eftir
gamla kókinu og hvernig það bragðaðist.
— Auglýsingar?
— Kóka-kóla auglýsir eftir ákveðnu
mynstri, er með ákveðin slagorð fyrir
ákveðin tímabil sem eru eins um allan
heim. Þeim fylgja sömu myndirnar en
hvert land hefur svo sína sérstöku útgáfu af
hugmyndinni. Lengi vel var slagorðið „It’s
the real thing” sem við þýddum „Það er
drykkurinn” sem er alls ekki nógu góð
þýðing. En það er oft svo erfitt með
enskuna, að ná hugmyndinni sem liggur að
baki orðunum og e.t.v. ekki hægt nema
með nokkrum setningum eða þá heilli
ritgerð. Við reynum að bera okkur saman
við önnur Evrópulönd í þessu sambandi.
Nú er slagorðið „Coke adds life to it” sem
við þýddum með „Kók eykur ánægjuna”
og það er likast til betri þýðing.
— Eitt af þeim skilyrðum sem Kóka-kóla
félagið setur fyrir framleiðsluleyfi er að
drykkurinn sé ekki auglýstur á öfga-
kenndan hátt og þvi er reynt að fylgja.
Ýmis önnur atriði eru í samningnum, svo
sem að nafnið kóka-kóla sé ekki á neinn
hátt notað sem truflandi þáttur í daglegu
lífi og stjórnmálum þess lands þar sem það
er framleitt, og svo mætti lengi telja. En á
móti kemur að félagið býður upp á
fullkomna þjónustu. Ef eitthvað bilar hjá
okkur þá er bara að taka upp símann og að
örskotsbragði er maður frá þeim mættur á
staðinn og kippir öllu í liðinn.
Kóka-kóla ofurst-
arnir
— En af því að við erum að tala um
auglýsingar þá má geta þess að besta
auglýsing sem kóka-kóla hefur nokkurn
tíma fengið var í seinni heimsstyrjöldinni,
þegar Bandaríkjamenn voru heldur illa leiknir
við Pearl Harbour. Þá fengu stjómendur
félagsins Roosevelt forseta til að fallast
18 Vikan 45. tbl.