Vikan


Vikan - 17.01.1980, Blaðsíða 36

Vikan - 17.01.1980, Blaðsíða 36
VIKAN og Félag húsgagna- og innanhússarkitekta: Jónas Sólmundsson húsgagna- og innanhúss* arkitekt Fyrstu íslensku stálhúsgögnin, teiknuð 1932. Höfundur: Jónas Sólmundsson. mín á þessu fyrirbæri er sú að lægð sé í húsgagnaframleiðslu, enda er við ramman reip að draga þar sem er innflutningur á erlendum húsgögnum, yfirleitt ekki í háum gæðaflokki, þannig að það er skiljanlegt að unga fólkið taki gömul og vönduð húsgögn fram yfir. Á meðan þetta ástand varir fáum við hvíld og getum búið okkur undir átök á þessu sviði. Unga fólkið hefur betri menntun og meira formskyn en foreldrar þess þannig að segja má að bjart sé framundan hjá íslenskum húsgagnateiknurum. Þetta sama fólk kann að meta fallega og ein- falda hluti en það er einmitt það sem félagsmenn í félagi okkar eru að reyna að skapa. Fúnkís-stíllinn var einfaldur en slakaði aldrei á kröfum um gæði — hann hreinsaði bara til. Við þurfum álíka hreinsun aftur. Annars þarf ég ekki að kvarta, ég hafði strax nóg að gera 1930 ... „Arið 1928 fór ég út til Þýska- lands til náms í húsgagnagerð eftir að hafa lokið sveinsprófi hér heima. Ég dvaldi í 2 ár ytra og varð vitni að einhverri mestu byltingu sem orðið hefur i hús gagnagerð og það hafði að sjálf- sögðu mikil áhrif á mig. Meðal þeirra breytinga sem áttu sér stað var að fúnkís-stíllinn var að ryðja sér til rúms. Allt óþarfa skraut skyldi niður lagt, línur allar vera beinar og horn skörp. Notagildið skyldi sitja í fyrir- rúmi númer eitt, tvö og þrjú. Strax eftir heimkomuna stofn- setti ég smíðastofu og hóf að smíða húsgögn í fúnkís-stíl. Ekki get ég sagt að þessum nýja stíl hafi verið vel tekið hér heima né framtakið orðið vinsælt. En það varð breyting á. Húsgagna- hönnuðum gafst sérstakt tæki- færi á svokallaðri „íslenskri viku”, en þá var íslenskur varn- ingur settur í alla stærstu verslunarglugga bæjarins og þar á meðal húsgögn. Vakti þetta mikla athygli. Á Iðnsýningunni 1932 voru íslensk húsgögn áber- andi en ekki þótti fúnkís-stíllinn okkar sniðugur þá frekar en fyrri daginn, allt var þvert og engar krúsidúllur, við vorum meira að segja spurðir að því hvers vegna hjólin undir te- borðunum væru ekki ferköntuð! Fólki þótti það vera í stíl við annað. Fyrsti innanhússarkitektinn sem nam fræðin var Jón Halldórsson, en hann kom frá námi árið 1905. Hann stofnaði fyrirtækið Jón Halldórsson og co sem síðar varð Gamla kompaníið. Næstur kemur Friðrik Þorsteinsson og þá Garðar Hall og ég. Þetta voru mennirnir sem fyrstir lærðu að teikna húsgögn í skóla að því er ég best veit. Þó má ekki gleyma því að margir smiðir teiknuðu sjálfir þau húsgögn sem þeir smíðuðu. Innanhússarkitektar Það er lægð í húsgagna gerð koma svo einn af öðrum eftir þetta og fjölgar mikið eftir seinni heimsstyrjöldina. Til að byrja með teiknaði maður og smíðaði jöfnum höndum en þegar fram liðu stundir varð þróunin sú að fleiri og fleiri fóru út i að teikna eingöngu og láta síðan aðra um smíðarnar. í gamla daga voru teikningar miklu meira mál en nú gerist, miklu stærri og stundum eins stórar og hlutirnir sem smíða átti. Ég lenti aldrei í þvi að sitja uppi með teikning- ar vegna þess að enginn vildi framleiða. Ég var með eigin smíðaverkstæði, smíðaði eftir mínum eigin teikningum og var því ekki upp á aðra framleið- endur kominn. Hvað varðar fjöldaframleiðslu á húsgögnum þá fór ég aldrei neitt að ráði út í slíkt. Mest vegna þess að ég tók að mér innréttingar og breyting- ar í Landsbankanum þegar hann var stækkaður og eftir það tók hvert stórverkefnið við af öðru þannig að lítill tími gafst til húsgagnaframleiðslu. M.a. útfærði ég salinn þar sem borgarstjórn heldur fundi sína viðskeifulaga borð. En nú eru undarlegir tímar. Unga fólkið safnar gömlum húsgögnum og tekur þau fram yfir það sem nýtt er. Skýring 36 Vikan 3. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.