Vikan


Vikan - 17.01.1980, Blaðsíða 39

Vikan - 17.01.1980, Blaðsíða 39
í júlí rákust tveir veiðimenn á illa farnar líkamsleifar hátt uppi í Stórahornsfjalli í Wyoming. Skilríki í peningaveski sönnuðu að þetta var líkið af Tammy Mathre, 19 ára gamalli stúlku frá Clear Lake, Iowa. Einnig fundust slitrur af dagbók sem sögðu nákvæmlega hvernig hún hafði soltið í hel eftir að hafa slasast ífjallgöngu ári áður en líkið fannst. varð ég að játa ósigur minn. Fætumir neituðu að bera mig. Þetta er i fyrsta skipti sem Tammy minnist á meiðsli sin: — Ég hef reynt að koma einhverju lagi á fætur mína. Þeir eru rauðir og bólgnir. Ég hef ekki mikla von um að þeir (björgunarmennirnir) komi i dag þó þeir hafi nú þegar flogið fimm sinnum eða oftar hér yfir og séð eymd mina. Hvað er að þeim? Hafa þeir engar mannlegar tilfinningar? Innfærslan í dagbókina 19. ágúst lýsir þó meiri von: — Ef veðrið verður líka gott á morgun getur verið að mér hafi aukist svo kraftur á mánudaginn að ég geti lagt af stað. Næsta dag skrifar Tammy: — Ég eyddi heilum sólarhring i að reyna að hlúa að fótum mínum. Mér liður lika betur i þeim í dag þó tærnar séu dofnar. Ég er orðin hrædd um að það verði að taka þá af ef ég kemst ein- hvern tima til baka. Skriftunum lýkur þó á örvæntingar- fullri setningu: — Bjarga þeir aldrei fólki héðan af Stórahorni? Ég vil ekki deyja en verð að sætta mig við það. Mánudagurinn rann upp, en Tammy lagði þó ekki af stað eins og hún hafði ætlað sér. — Hvorki fætur mínir né annað likamsástand getur þoiað slika ferð, skrifar hún. — Ég kemst rétt eftir vatni. .. Ég mun biða dauða mins hér. Hann á eftir að snjóa meira, vindar blása, kuldi og hungur. Hvers vegna ætti ég að gera mér far um að leita dauðans þegar hann vitjar mín hvort sem er hér? Og ég veit að hann gerir það. Ég vona bara að hann dragi það ekki alltof lengi. Ég veit eins vel og að ég ligg hér og skrifa að hér mun ég farast... — Ég þrái að Guð leysi mig undan þjáningu minni. Ég er andlega niður- brotin, kjarkur minn er brostinn ... En hin heita trú Tammyar verður örvæntingunni yfirsterkari. Innfærslur hennar i dagbókina næstu tvo dagana lýsa á átakaniegan hátt ýmist von hennar um björgun eða hvernig hún sættir sig við örlög sín. Fimmtudaginn 24. ágúst skrifar hún: — Nú hef ég reynt að leita hjálpar 1 heila viku. Þær (flugvélamar) fljúga oft yfir, en enginn kemur. — Ég hef ekki neytt matar i 27 daga. Satan hefur rifið tjaldið mitt i tætlur og tvær síðustu næturnar hef ég sofið undir berum himni . . . Ég held þó trú minni þrátt fyrir að dagar og nætur virðist endalausir . . . Ég finn það fast- lega á mér. Hann lætur mig ekki deyja hérna á fjall... — Ég bið þess af öllu hjarta að mér verði bjargað . . . Ég trúi því að Guð svari og bænheyri mig... Nassta dag, föstudaginn 25. ágúst, skrifarTammy: — Guð gefur mér kraft á hverjum degi og vonir minar styrkjast í stað þess að dofna . . . Ég er viss um að mér verður bjargað á laugardagsmorgun... Hún hafði rangt fyrir sér. Það kom enginn á iaugardaginn . . né heldur sunnudag eða mánudag... Hún skrifar næst I dagbókina á hádegi mánudaginn 28. ágúst. Skriftin er fremur ólæsileg: — Guð hjálpaði mér I gegnum nótt- ina. Ég bjó mig undir snjókomu, það snjóaði þó ekki en kuldinn var bitur . . . Leitarflugvél flaug nokkrum sinnum yfir ... en nú er hún farin ... þessi flugmað- ur hlýtur að vera af þeirri manngerðinni sem bjargar engum nema hann sé dauður... — Nú hef ég verið hér i 30 daga, matarlaus. Ég bið tii Guðs að hann taki fljótt af skarið, hvort sem vilji hans er að ég deyi eða bjargist. Ég ti orðin svo þreytt. Þrir dagar liðu. 31. ágúst skrifar Tammy i siðasta sinn i dagbókina sína. Siðasta innfærslan er átakanleg ástarjátning til foreldra hennar. — Elsku mamma og pabbi. Þið getið ekki imyndað ykkur hvað ég þrái ykkur heitt. Ég þrái að fá að vera með ykkur og elska ykkur af öllu hjarta. Ég sakna ykkar svo mikið... — Mig langar svo til að lifa á meðal ykkar . . . mig langar til að vinna fyrir mér og fara kannski I snyrtiskóla eftir eitt eða tvö ár. .. En heitasta bæn min er sú að okkur auðnist að lifa saman sem fjölskylda... — Ég elska ykkur svo heitt. Mér finnst hjarta mitt vera að bresta þegar ég hugsa um að hvila í hlýjum faðmi ykkar. Ég vona og bið að okkur gefist annað tækifæri. — Ó, Guð, hvað ég elska þessar manneskjur heitt. Neitaðu ekki dóttur þinni um þessa bón hennar. Ég bið þig í nafni sonarins, sýndu mér miskunn ... Það er álitið að Tammy hafi dáið einum eða tveimur dögum seinna, af hungri og kulda. Lík hennar varð villtum dýrum að bráð... Tammy segir i dagbókinni að það hafi verið vilji Guðs að hún skrifaði hana: — Þegar þeir loksins finna mig ... þá fá þeir sönnun fyrir þvi að mig brast aldrei kjarkinn ... Og henni tókst einmitt að sanna það. Dagbókin er ótrúlegt dæmi um mannlegt þol og viljann til að lifa — jafnvelþóaðaUtstríðiámótiþví. * f FÉLA6 ÍSLENZKRA HLJÓMLISTARMANNA útvegar yður hljóðfœraleikara og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri Vinsamlegast hringið í 20255 milli kl.14-17 3. tbl. Vikan 3«
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.