Vikan


Vikan - 05.02.1981, Síða 23

Vikan - 05.02.1981, Síða 23
— Nei, hún er í hárgreiðslu eða í Bronsh^j hjá frænku sinni. — Jæja, það skiptir ekki máli. Ég ætlaði bara að segja takk fyrir lánið á snúrunni. Ég tók við snúrunni og frú Larsen fór aftur. í sama mund hringdi síminn.|Ég lagði snúr- una frá mér, gekk inn og tók upp tólið. — Það er bara ég, Thomasen, heyrðist sagt áköfum rómi. Erna er búin að gefa mér leyfi til að fara á veiðar á morgun svo ég ætlaði að láta þig vita. Þú ert til í að koma9 Héraveiðarnar byrja á morgun og ég ætla að hafa bjór og sjúss með svo við getum reglulcga notið dagsins. Þetta var aldeilis freistandi boð. Maður verður að vera mjög kugaður til að standast svona boð. Svo eg þakkaði pent. — Ef mér tekst að fá Marí- önnu til að sleppa mér, bætti ég við fyrir siðasakir. — Það tekst áreiðanlega, sagði Thomasen, en mundu nú að hafa byssuna með! Ekki eins og í fyrra . . . þá mundirðu svo sem eftir bjórnum og brugginu, en byssan, hún . . . — Já, þar hafði ég aldeilis legið í því. — Ég fer inn í stofu og tek hana niður af veggnum á stundinni! sagði ég. Svo lagði ég á og gekk inn í stofu og skyndilega fann ég gaslykt. í flýtinum við að sækja flöskuna hafði ég gleymt Þýð.: Anna að kveikja á gasinu á gaselda- vélinni og nú streymdi gasið um allt, í stað þess að brenna undir katlinum. Ég fór áleiðis að eldhúsinu til að redda því og um leið var aðaldyrunum hrundið upp. Ég tók snúruna (Marianna þolir ekki að allt sé út um allt) og með hana og byssuna upp á arminn gekk ég niður í for- stofu. Það var Maríanna. Hún leit eldsnöggt á byssuna og veinaði. Svo fleygði hún sér upp um hálsinn á mér og grét í mikilli geðshræringu. — Þetta var grín! hrópaði hún. — Ég gerði þetta bara til að komast að því hvort þú læsir þessa miða frá mér sem ég skrifa þér. Ég hélt ekki að þú ætlaðir að skjóta þig af sorg út af því að . . . . Hún kom auga á snúruna. — Þú hefur líka reynt að hengja þig! öskraði hún skelfingu lostin. Siðan tók hún eftir gaslyktinni. — Ó nei! Það líka! æpti hún og hjúfraði sig upp að mér. — Elskan mín! Ástin mín! Ástin mín! Hvað í fjáranum átti ég að gera? Annað en að standa þarna eins og nátttröll? En út úr öllu þessu kom þó það, að daginn eftir fór ég með Thomasen á héraveiðar, með veiðistöngina með mér. iM Skop 6. tbl. Vikan 23

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.