Vikan - 05.02.1981, Blaðsíða 31
mmmammmaaa
Plakatið
Eftir stríðið varð Reagan formaður
hagsmunasamtaka kvikmyndaleikara og
gegndi því embætti i sex ár samfleytt.
Þar þótti hann standa sig framúrskar-
andi vel og kjör leikara stórbötnuðu á
þessum tíma. Síðar, eða árið 1959, þegar
málefni þessa verkalýðsfélags kvik-
myndaleikara voru komin í hnút, var
hann enn á ný kjörinn forseti. Hann vék
sér ekki undan kallinu og félagið fór í
verkfall undir forystu Reagans og vann
verulegan sigur.
Ronald Reagan er þannig fyrsti forseti
Bandaríkjanna sem verið hefur i verka-
lýðsfélagi, hvað þá formaður þess.
eiga unga ieikkonu frá Chicago, Nancy
Davis. Nancy hafði þá leikið i átta
kvikmyndum við góðan orðstír en er
hún varð eiginkona hætti hún að leika.
„Aðrar konur geta kannski verið á
tvenns konar vettvangi og staðið sig
jafnvel á báðum,” sagði hún, „en ég get
það ekki.” Þau eiga tvö börn, Particiu
Ann (Patti), sem fædd er 1955, og
Ronald (Skipper), fæddan 1961.
Lengi vel framan af fylgdi Ronald
Reagan demókrötum að málum. En árið
1960 hófst hann fyrst verulega handa i
stjórnmálum og bafðist fyrir forsetaefni
repúblikana, Richard Nixon. Og
tveimur árum seinna, þcgar Nixon var 1
framboði sem fylkisstjóri í Kaliforníu,
var Reagan aftur einn fremsti stuðnings-
maður hans, en þá hafði hann lika vent
sínu kvæði í kross og var orðinn
repúblikani.
AF
HVÍTA TJALDINU
í HVÍTA HÚSIÐ
Árið 1940 gekk hann að eiga leik-
konuna Jane Wyman. Þau eignuðust
dóttur ári seinna, Maureen, og 1945
tóku þau að sér fósturson, Michael. Jane
og Ronald skildu árið 1948.
Fjórum árum seinna gekk hann að
Fagnað mafl fjölskyldunni. Frá
vinstri: Ronald yngri, Patti, Nancy,
Ronald aldri, Michaal mafl soninn
Cameron, Collaan kona Michaels,
Maureon.
1965 tilkynnti Reagan framboð sitt til
fylkisstjóra í Kaliforniu 1 komandi
kosningum. Fyrst í stað var hlegið að
þessum stjórnmálaleikara, eins og hann
var kallaður, en þegar á hólminn kom
vann hann glæsilega og aftur 1970. 1976
tókst hann á við Gerald Ford um
útnefningu sem forsetaefni repúblikana
— og tapaði. En hann hélt baráttunni
áfram og ekki til einskis — hann er
kominn af hvita tjaldinu 1 Hvíta húsið.
Ronald litli Raagan I þriflja bakk I bamasköta. Hann ar yst til vinstri i
annarri röfl — styflur hönd undir höku.
Iþröttafréttaritari hjá WHO útvarpsstöflinnl I Das Moinas.
6. tbl. Vikan 31