Vikan - 05.02.1981, Side 34
Sigurður Hreiðar tók saman
Eina og Eiríkur var ÞjMrakur biskup «andur tM Islands að boöa mormOnatrti og ains og Eiriki var honum misjafnlaga tskifl. Þatta er atriði úr
Paradísarheimt — Þjóflrekur rœflir mklin vifl hóp bœnda é Þingvöllum.
Um skip og menn
Skipið heitir Nevada og er á lengd
350 fet, 58 faðmar, á vídd 50 fet, 8
faðmar, það stóð í sjó 22 fet, borðhæð
ofan sjó 27 fet og ber 2000 tons; það er
járnskip og fjarskalega sterkt og líka
prýðilegt. Það er þrídekkað og er ekkert
af góssi á þeim, allt það skelfingar góss
undir því neðsta dekki. Maskínan stór
og mikilfeng, upp úr henni stóðu 2 járn-
boltar, 4 álna langir og digrir sem
strokkur, og gengu þeir upp og niður
með kasti, eins og þeir væru ekki þyngri
en físisveppur; dekkið er sums staðar
steinlagt, allar rár og möstur klædd með
járn, skipið æðir áfram með mikilli fart,
þó það sé stormur og stórsjór á móti og
kastar frá sér sjónum; því er stýrt með
maskinu, og þarf ekki meiri átök en
liðlegt hesputré.
Fólk á skipinu var 590 manns, 490
farþegar, 100 fylgdi skipinu, og allt þetta
fólk hafði 6 ýmisleg trúarbrögð og
annaðhvort hefur einn trúarflokkurinn
verið réttur á trúnni ellegar enginn.
Frelsarinn segir, að það sé ekki nema
einn vegur til eilífs lífs og hann
þröngur; ég hefi ekki meiri orð um það
KVENFOLK ER
EKKERT AÐGERA
NEMA MAT-
REIÐA, VASKA
OG SAUMA
Hér kemur þriðji og síðasti hlutinn með upprifj-
un á sögu Eiríks á Brúnum, mannsins sem er
fyrirmynd að svo mörgu í sögunni Paradísar-
heimt. Hér segir frá ferð hans og fjölskyldu
hans til Spanish Fork og lífinu þar, trúboðsferð
Eiríks heim til íslands og loks fráhvarfi hans
frá mormónatrú og því er hann snýr alfarinn
aftur heim á fornar slóðir.
nú. 40 manns voru á fyrstu káetu, er
ætluðu til Nýju Jórvikur vestur yfir
Atlantshaf, en þeir verða að borga fyrir
mat og rúm á hverjum degi 40 krónur,
og mun ykkur þykja það ótrúlega mikið,
en þar er ekki á borðum tálkn og söl og
bræðingur við. 1 12 daga tutlast úr
buddunni 480 krónur vestur yfir sundið.
Á annari káetu voru 70 manns og áttu
þeir að gjalda fyrir rúm og mat 144
krónur. Á þriðju káetu 380 manns, og
þar vorum við tslendingar og fór fullvel
um okkur; við fengum þrisvar á dag nóg
af hveitibrauði og kexi, kjöti og kartöfl-
um, smjöri, kaffi og the, stundum graut
með sírópi út á. Þetta þótti okkur nú
viðunanlegt, og þurfa ekki að borga fyrir
á parti. Við lágum við okkar rúmföt
sjálf, rúmin voru úr við, en borð og
bekkir á miðju dekki í 15 faðma löngum
sal. Á skipinu var vertshús, sjúkrahús,
tukthús; skipsmenn léku ýmsa leiki á
hverjum degi til skemmtunar uppi á
efsta dekki. Á hverjum degi er öllum
skipað upp á dekk einn klukkutíma. Þá
eru sópuð öll verelse og svo sáldrað
þurru sagi um allt gólfið. Eitt barn úr
trlandi dó á hafinu og var látið í poka og
kastað fyrir borð.
34 Vikan 6. tbl.