Vikan - 05.02.1981, Side 47
Myndlist
orðinn eins góður og Kurt Ard. Seinna
sá ég að Gísli hafði rétt fyrir sér. Þetta
voru ósköp viðvaningslegar myndir hjá
mér. Þó fór ekki svo, að ég fengi ekki
myndir eftir mig í Vikunni. Ég þekkti
Stefán Aðalsteinsson, sem skrifaði smá-
sögur fyrir Vikuna, og hann bað mig að
teikna við sögurnar. Það voru fyrstu
myndir minar á prenti.
En vilji minn til myndgerðar fór
vaxandi. Ég sótti kvöldnámskeið hjá
Sigurði Sigurðssyni og Sverri Haralds-
syni og þótti báðir góðir. Satt að segja
fékk ég óhemju áhuga á Handíða- og
myndlistaskólanum, en hafði það ætíð á
bak við eyrað að verða hæfari prent-
myndasmiður. Sú hugsun varð aldrei
djúpstæð hjá mér á þessum árum að
gerast myndlistarmaður. En ég fékk frí
frá námi i Rafgraf hálfan daginn, fyrir
vpú'ilia Hilmars eiganda og Þorsteins
Oddsonar, sem fyrr er getið. Þar með
hóf ég nám við forskóla Handíða- og
myndlistaskólans, samtímis fjórða náms-
ári i prentmyndagerð.
Hvað olli þessum mikla áhuga þínum
á prentmyndagerð?
Vildi feta I fótspor Eiríks
Smith
Ég vissi um frábæran listamann í
faginu, en það var Eiríkur Smith list-
málari. En mig langaði að feta í fótspor
hans og verða toppmaður í prentmynda-
gerð. En þó fór svo að ég hætti í prent-
myndagerð um leið og ég lauk sveins-
prófi. Um leið innritaðist ég í framhalds-
deild Handíða- og myndlistaskólans sem
þriðja árs nemandi og var þar í fjögur ár.
Á sama tíma sótti ég kvöldnámskeið í
Myndlistaskólanum hjá Hring
Jóhannessyni og Ragnari Kjartanssyni.
Einnig leirmótun hjá Ásmundi Sveins-
syni.
Það hefur verið nóg að gera?
Já, enda var þetta frjósamt tímabil.
Hringur kveikti hjá mér neistann í
teikningum en Sigurður í málverkinu,
„sjáðu tóninn hér — sjáðu — langt þvi
frá að vera réttur — sjáðu”.
Hvað skeður svo?
Ég stundaði á sínum tíma frjálsar
íþróttir með Ármanni. Þjálfarinn minn
þar var Arthúr Ólafsson listmáiari, sem
nú starfar í Svíþjóð. Við vorum einnig
saman í Handiða- og myndlistaskól-
anum. Um tíma höfðum við saman
vinnustofu í Mýrarhúsaskólanum, en
þar var hann teiknikennari. Báðir
höfðum við mikinn áhuga á
framhaldsnámi í myndlist og litum þá
yfir pollinn.
Með Gullfossi til
Kaupmannahafnar
Einar Hákonarson var þá við nám í
Vallandsskólanum i Svíþjóð. Hann gaf
6. tbl. Vikan 47