Vikan - 07.02.1985, Blaðsíða 14
greiðslustúlkan í Litlu hryllingsbúðinni. Þegar leikkonan Edda
Heiðrún Backman stendur svo í fullu fjöri fyrir framan mann er lítið
sem minnir á hana Auöi, fyrir utan bleikar, vel lakkaðar neglur!
,,Ariel! Geturðu hjálpað mér með naglalakkið?" hrópar Edda í
kjallaranum á Islensku óperunni. Ariel Pridan er snillingurinn frá
ísrael sem stjórnar Auði annarri með miklum tilþrifum. Ariel bregst
vel við þessari bón Eddu þó hann taki það strax fram að hann sé
ekki sérfræðingur á þessu sviði! - .
,,Er þér ekki sama þó hann Leifur sitji hérna við borðið og hlusti
á okkur?" spyr Edda síðan og á við Leif Hauksson sem leikur Bald-
ur. ,,Hann getur kannski komið með góða punkta. Viðtöl eru ekki
mín sérgrein, þú skilur!" segir Edda og hlær. Það er greinilegt að
það hlæja allir með Eddu, hún hefur svo liflega framkomu. Sumir
segja þó að hún sé kröfuhörð: ,,Ef ég er kröfuhörð við aðra þá er
ég það líka við sjálfa mig. Mér finnst hlutirnir alltaf þurfa að vera
því sem næst fullkomnir!"
Hlutverk Eddu í Hryllingsbúðinni er ekki það fyrsta sem hún leik-
ur sem atvinnuleikari. Hún lék í fyrra í Hart í bak í Iðnó og síðan í
Gæjum og píum og Milli skinns og hörunds í Þjóðleikhúsinu.
Því er ekki að neita að það er talað um Eddu Backman um þess-
ar mundir. Þegar ég nefni það við hana að fólk hafi áhuga á henni
hlær hún létt. ,,Er það?" segir hún hægt, horfir rannsakandi á mig
og veit ekki alveg hvernig hún á að taka svona yfirlýsingu.
Nemendaleikhúsið hefur oft vakið athygli almennings og þess
vegna er ekkert skrítið þó mörgum finnist Edda Backman koma
kunnuglega fyrir sjónir. Hún lék þar eftirminnilegt hlutverk í
finnska leikritinu PRESTFÓLKIÐ eftir Minnu Chant. Þó erfitt sé að
ímynda sér að hin feita, djúpraddaða þjónustustúlka presthjón-
anna og blondínan Auður eigi eitthvað sameiginlegt finnst Eddu
gaman að bera þær saman:
Ljósmyndir: Ragnar Th.
Texti: Hrafnhildur
14 Vlkan 6. tbl.