Vikan - 07.02.1985, Page 59
Söngvarinn
Prince.
Einn vinsælasti sjónvarpsþátturinn í Englandi um
þessar mundir kallast Spitting Image og er sýndur í
ITV sjónvarpsstöðinni. Hann er nokkurs konar sam-
bland af Prúðuleikurunum og Not The Nine O’clock
News, pólitískum gamanþáttum í BBC. Spitting Image
er pólitískir gamanþættir en í staöinn fyrir að taka skot
úr fréttamyndum og láta leikara sjá um afganginn
leika brúður aðalhlutverkin. Brúðumar eru skopstæling
af þekktum persónum í þjóðlífinu og þykja með
eindæmum vel gerðar.. . og kvikindislegar svo ekki sé
meira sagt.
Höfundamir heita Peter Fluck og Roger Law og hafa
komið víða við í bresku þjóðfélagi, aUt frá því að hanna
fyrstu plötuumslög Jimi Hendrix í að stunda reglu-
bundna rólega vinnu hjá blaðinu Sunday Times Maga-
zine. En nú em þeir á svoUtið annarri hiUu og njóta
lífsins á kostnaö náungans.
„Við reyndum að hafa háðið eins beinskeytt og mögu-
legt er. Við höfðum reyndar ekkert á móti því að skjóta
af og tU yfir markið,” segja þeir félagar, Fluck og Law.
„Það oUi okkur jafnvel vonbrigðum hvað fólk tók þessu
öUu vel strax í byrj un! ”
Aðstandendur ITV töldu betra að hafa vaðið fyrir
neðan sig þegar þættimir byrjuðu og ákváðu að rit-
skoðun skyldi fara fram fyrir hvem þátt. En þess
reyndist ekki þörf og nú er þættinum sjónvarpað alger-
lega eftir handriti þeirra Flucks og Laws. Englendingar
kippa sér ekkert upp við það þótt augun í Margaret
Thatcher færist nær og nær og kinnamar á CaUaghan
verði stærri og stærri. Á snögum í vinnustofu þeirra
hanga Anna prinsessa, Dennis Thatcher, Hitler og
tenniskóngurinn John McEnroe. Joan CoUins og
Mugabe eru í faðmlögum og súkkulaðUagahöfundurinn
George Michael hangir um hálsinn á Nancy Reagan.
Höfundamir halda því jafnvel fram að Díana prinsessa
hafi breytt um hárgreiðslu þegar hún sá hvað hár-
greiðslan á brúðunni í Spitting Image fór henni miklu
betur!
Leiðtogi breskra námamanna,
Arthur Scargill.
Reglulega
illkvittnislegar
brúður!
Peter Fluck (til vinstri) og Roger Law, höfundar Spitting Image.
Leikarinn John Gielgud. Paul McCartney
Linda McCartney.
Söngkonan Tracey Ullman.