Vikan - 30.01.1986, Blaðsíða 6
R
^I^Píll er nauðsyn, segja þeir hjá Bílgreinasam-
bandinu, og ekki síður þeir hjá rikisvaldinu, sem
sífellt mjalta bileigendur meira og meira sem tekju-
lind og láta lítið koma i staðinn.
Það er staðreynd að í okkar strjálbyggða sam-
félagi, þar sem tiltölulega langt er milli ferða
almenningsfarartækja, er bíll nauðsyn. Það fer
einfaldlega of mikill timi i að hagnýta sér
almenningsfarartæki. Þau eru oft á tímum sem
henta okkur ekki — eða kannski má snúa þessu við
og segja að þau séu ekki i boði á þeim tímum sem
okkur henta. Þar að auki eru oftast allir meiri háttar
aðdrættir óhugsandi með þeim.
Þess vegna þurfum við að eiga bila, hvort sem
okkur líkar betur eða verr. Hins vegar erum við
mörg þannig sett að við höfum ekki efni á að kaupa
okkur nýja bíla — fyrir utan það að mörgum þykir
snjallt að láta einhvern annan taka fyrsta afskrifta-
skellinn og vilja heldur kaupa notaðan, vel með
farinn bil en nýjan.
Þegar nýr bíll er keyptur er að mörgu að gá því
enginn vill kaupa köttinn I sekknum. Enginn skyldi
hlaupa upp til handa og fóta þótt bíll sé auglýstur
til sölu ,,af sérstökum ástæðum". Það eru nefni-
lega allir bílar seldir af sérstökum ástæðum, þó
ekki sé nema vegna þess að seljandann langar að
kaupa annan bíl þó sá sem hann á sé I toppstandi.
Stundum er líka auglýst að billinn seljist á
hagstæðum kjörum og góðu verði ,,ef samið er
strax". Hugsið ykkur þá hvað gerist ef sá sem ligg-
ur svona mikið á að fá peningana losnar ekki við
bilinn fyrr en dálitið seinna en strax — eða þannig.
Sá sem ætlar að kaupa notaðan bíl ætti að byrja
á að gera sér grein fyrir nokkrum atriðum. Hve
stóran bil á að kaupa? Hvað má hann kosta? Hve
miklu má hann eyða? Þarf endilega að fara saman
sparsemi I eldsneytisnotkun og I almennu viðhaldi?
Reynið að gera ykkur rökvísa grein fyrir því hvaða
viðhaldi má búast við á þeirri tegund (tegundum)
sem helst kemur til greina og hvaða hlutfall er milli
eldsneytiskostnaðar við hana og viðhaldsins.
Stundum kemur i Ijós að með nokkrum vísindum
má búast við talsvert minni viðhaldskostnaði á
eldsneytisfrekari bil, þannig að það vegi nokkuð á
jöfnu.
Hvaða dekkjastærð er undir bílnum? Hvað kosta
dekk á hann? i hvaða tryggingaflokki er hann og
hvert verður iðgjaldið? Býður eitt tryggingafélagið
lægri iðgjöld eða betri kjör en annað?
Það er þannig eitt og annað sem taka verður
með i reikninginn þegar bílgerð er valin. En þegar
valið hefur verið er rétt að fara að fylgjast með
6 Vikanð. tbl.