Vikan - 30.01.1986, Blaðsíða 38
HEFURÞUBi
stjórn Á ma
STREITUNNI?
Tilfinningastreita er annað natn á sál-
rænum óþægindum í sambandi við
gremju, ógnun eða breytingar. Við upplif-
um venjulega streitu þegar okkur finnst við
vera hjálparvana eða okkur skortir sjálfstraust.
Vísindamenn álíta að langvarandi streita
geti stytt líf okkar. Streita er oft sett í sam-
band við alvarlega sjúkdóma, svo sem
hjartasjúkdóma og magasár. Með öðmm
orðum getur streita orðið okkur að fjör-
tjóni.
Sumir komast betur í gegnum erfið-
leika lífsins en aðrir. Þetta er vegna þess að
þeir hafa tamið sér betri aðferðir og þekkja
byrjunarstig óhóflegrar streitu.
Hér á eftir fer smápróf til að hjálpa þér
að kanna streitustöðu þína. í prófmu eru
ábendingar um sérstaka streituvaldandi
þætti í daglegu lífi og bent er á 9 úrræði í
sambandi við streitu.
Streitupróf
Scttu hring utan um A, B eða C svörin við hverri
spumingu í svaralistanum.
1. Atvinna mín er venjulega:
a. Skemmtileg.
b. Heillandi.
c. Hundleiðinleg.
2. Þegar ég finn fyrir spennu, þá vana-
lega:
a. Hunsaéghana.
b. Tek ég mér smáhvíld.
c. Fæ ég mér í glas eða sígarettu.
3. Þegar ég fer að sofa, þá venjulega:
a. Sofna ég strax.
b. Les ég áður en ég fer að sofa.
c. Ligg ég vakandi og hugsa.
4. Líf mitt er venjulega:
a. Mjög skipulegt.
b. Spennandi.
c. Fullt af eindögum.
5. Um venjulega helgi:
a. Hvíli ég mig heima.
b. Fer ég eitthvað út.
c. Á ég erfltt með að slaka á.
6. Oft:
a. Líðurmér vel.
b. Geri ég eitthvað sem mér finnst
skemmtilegt.
c. Fæ ég höfuðverk.
7. Þegar ég er ekki að vinna:
a. Slaka ég oft á við sjónvarpið.
b. Hvfli ég mig oft við áhugamál eða
geri líkamsæfingar.
c. Slaka ég á yfirglasi.
8. Þegar ég er úti að keyra, þá venjulega:
a. Keyri ég á löglegum hraða.
b. Stoppa ég til að hvíla mig ef mér
finnst ég þurfa.
c. Verð ég reið(ur) út í aðra bílstjóra.
9. Þegar ég hitti ókunnugt fólk, þá:
a. Er ég venjulega afslöpp-
uð/afslappaður.
b. Er ég dálítið óstyrk(ur) en venju-
lega fljót(ur) að ná mér.
c. Verð ég að fá mér í glas.
10. Þegar ég verð reið (ur) er ég venjulega:
a. Fljót(ur) að jafna mig.
b. Til í að tala um málið.
c. I vondu skapi lengi.
Svör
Svörin, sem merkt eru með bókstafnum A, sýna
rólega og afslappaða manngerð í góðu jafnva'tri. F.f
flest svör þín falla í þennan flokk bendir allt til þess
að þú spjarir þig vel í baráttunni við streituna og létt-
lyndið hjálpar þér.
B-svörin fela í sér fjörmeiri manngerð. Hár stiga-
fjöldi á þessum flokki bendir til að þú leitir útrásar á
streitu þinni með athöfnum eða áhugamálum. Þú
vinnur gegn ncikvæðri streitu (til dæmls leiðinlegri at-
vinnu) með jákvæðri streitu (áhugamáli).
C-svörin benda til neikvæðrar streitu eða að þú
kunnir ekki að bregðast við henni. Þess vegna bendir
allt til að því fleiri C-svör scm þú hefur því stressaðri
sértu. Ef þú ert með 6 eða fleiri C-svör getur heilsa
þín verið í hættu. Hftirfarandi uppástungur gcta
dregið úr eða eytt alveg hinum hættulegu áhrifum
streitu:
1. Borðaðu næringarríkar máltíðir.
2. Hreyfðu þig I hóft.
3. Reyktu ekki.
4. Drekktu í hóft eða alls ekki.
5. Sofðu nóg.
6. Lxrðu afslöppun.
7. Styrktu vinaböndin.
8. Reyndu að auka sjálfstraustið.
9. Skipuleggðu líf þitt betur.
Ef þú reynir eftir megni að fara eftir þessum
reglum ætti streitan að minnka og þér mun líða
betur.
38 Vikan 5. tbl.