Vikan - 30.01.1986, Blaðsíða 8
nýupptekin. Ef ekki er hægt að leggja fram
verkstæðisreikninga þar að lútandi, af þvi kannski
að seljandinn hafi fengið „kunningja" sinn til
verksins, ætti kaupandi skilyrðislaust að heimta
þessa fullyrðingu skráða á afsal. „Kunningja-
upptekin" vél getur reynst fast að því handónýt.
Lítum nú innan I gripinn. Slitin sæti og sliguð
segja sina sögu um akstur, meðferð og hirðu.
Sama er að segja um teppið á gólfinu og jafnvel
motturnar. Eru gúmmiin á fótstigunum slitnari en
ætla mætti miðað við kílómetrateljarann? Hvernig
er innan á hurðunum? Sjást einhvers staðar merki
um leka með rúðum? Er klæðningin i toppnum heil
og óskemmd? i stuttu máli: Að innan ætti billinn að
bera merki um hirðusemi, þrifnað, viðhald og ekki
meira slit og jask en eðlilegt má telja miðað við það
sem sagt er að billinn hafi verið notaður. Lyktin
inni í bilnum getur líka sagt sina sögu. Er myglulykt
eða rakaþefur I honum? Eða þungur ilmvatnsilmur
sem gæti yfirgnæft rakaþef? Griptu I rúðuhalarana
i leiðinni. Eru þeir allir i lagi? Sérstaklega er þetta
mikilvægt sé um rafknúnar rúður að ræða. Bilaður
halaramótor kostar oftast dýra viðgerð og ama-
sama.
Vel á verði gegn
hvers konar leka
Næst er að opna vélarhólfið. Þar á allt að vera
hreint, þurrt og þokkalegt. Ekkert þarf þó að vera
óeðlilegt við að nokkurt ryklag liggi utan á vélinni,
en hún á ekki að vera þakin þykku, seigu olíulagi.
Hirðumaður um bíla gerir líka hreint þarna og
kemur i veg fyrir að allt hlaupi í olíukökk. Líttu eftir
leka, bæði á vélinni sjálfri og eins á kælikerfinu.
Lekar eða smitandi vatnshosur er ódýrt og fljótlegt
að gera við en iekur vatnskassi er kostnaðarsöm
viðgerð. Sé leki eða smit á vélinni sjálfri, reyndu þá
að ganga úr skugga um hvaðan það kemur. Ótrú-
lega algengt er að ventlalokspakkning sé látin
danka lengur en hún gerir gagn. Það er litil viðgerð
og fljótleg að skipta um hana.
Gættu líka að því hvort hrúður hefur safnast á
pólana á rafgeyminum. Þeir — og geymirinn allur
— eiga að vera hreinir og þurrir. Er nóg vatn á
sellunum? Skoðaðu bremsuvökvageyminn, hann á
að vera fullur. Hvernig er með vatnskassann — er
nóg vatn á honum? Sé svo ekki getur það bent til
að einhvers staðar sé leki. Vatnið á að fljóta yfir
elementin og vera hreint, hvorki með ryði i né olíu-
brák. Þetta síðastnefnda bendir til skemmda á vél-
inni og/eða heddpakkningunni og boðar dýra
viðgerð. Farðu samt varlega i að taka lokið af
vatnskassanum ef vélin er heit, það getur komið
gos úr honum og farið yfir þig.
Skoðaðu olíukvarðann. Ef allt er i lagi á olian að
ná upp að strikinu sem sýnir að oliubiðan sé full. Ef
hún er það ekki getur verið eitt af þrennu: Bíllinn
brennir oliu, lekur olíu eða eigandinn er ekki nógu
hirðusamur. (Athugið að sumar bílvélar, einkum
þýskar, EIGA að brenna dálítilli olíu.) Vél sem ekki
á að brenna oliu en er farin að gera það er líklega
farin að lasnast. Ef vélin lekur er það oft með
ventlalokspakkningunni, sem fyrr segir (ódýr
viðgerð), eða með sveifarásnum (dýr viðgerð).
Óalgengara er að leki sé með oliupönnunni, oliu-
siunni eða jafnvel botntappanum, en vert að gefa
þessu gaum lika. Eru lekapollar undir bílnum? Af
hverju stafa þeir? Er það vatn, vélarolía, girolía,
drifolía? Allt þetta skiptir máli og verður að skoða
af mikilli alvöru áður en til kaupa kemur. Yfirleitt
eru þeir vísbending um lélegt viðhald og hirðu.
En áfram með skoðun olíukvarðans. Þótt vélar-
olían sé dökk getur allt verið með felldu. Hún
dökknar yfirleitt fljótt. Taktu hana milli fingranna
og prófaðu hana. Ef hún virðist kvoðukennd, svo
ekki sé talað um agnir í henni, sýnir hún að sjaldan
hefur verið skipt um olíu og oliusíu, en hvort
tveggja eykur slit vélarinnar. En ef dökk olia er
mjúk, samfelld og hál er venjulega ekki ástæða til
að hafa frekari áhyggjur af því. Ef vatnsdropar eru I
oliunni er hins vegar ástæða til að gæta vel að því
þá er eitthvað öðruvísi en á að vera. Það þýðir að
vatn kemst i olíuna og boðar dýra viðgerð. Hrein,
Ijós olía þýðir annaðhvort að skipt hefur verið um
olíu mjög nýlega (berðu saman við smurbókina)
eða bíllinn brennir oliu eða lekur, svo stöðugt er
verið að bæta nýrri olíu á. Athugaðu þetta atriði
vel áður en lengra er haldið.
Það er full ástæða til að taka þessa oliuskoðun
mjög alvarlega þar sem vélarolian er eitt þeirra
atriða sem mestu ráða um endingu vélarinnar. Sá
sem gætir vel að olíunni, passar að hafa hana alltaf
næga OG SKIPTIR um oliu og siu með skynsam-
legu millibili, getur vænst góðrar endingar af vél-
inni i bílnum sínum. Þetta er tiltölulega ódýr aðgerð
sem þó skiptir miklu máli og hér í okkar breytilegu
veðráttu er rétt að hafa olíuskipti þéttar en gefið er
upp I leiðbeiningabókum framleiðandans um bíl-
inn. Þetta, ásamt því að lita vel og vandlega eftir
þvi að kælivatn og kæling sé i lagi, er einhver besta
og ódýrasta líftrygging sem hægt er að kaupa vél-
inni.
i næsta blaði höldum við áfram að skoða kjör-
gripinn okkar og endum með þvi að taka ákvörðun
i málinu.
8Vikan5.tbl.