Vikan - 30.01.1986, Qupperneq 11
Lostæti
í lausa-
vigt
Geishur, dökkir hnappar,
Ijósir hnappar, púnshnappar,
saltar sprengjur, sveppir,
seigar rottur, grænir froskar,
rúsinur og möndlur. . . Allt
þetta og miklu meira til er
hægt að fá í Dandý, nýrri sæl-
gætisverslun við Laugaveg í
Reykjavík. Og það sem meira
er, slikkeríinu moka menn
með skóflum í poka og þá að
sjálfsögðu þeim molum sem
hugurinn girnist. Krásirnareru
vandlega geymdar í gegnsæj-
um boxum sem kaupandinn
opnar og lokar að lokinni at-
höfn. . . sem sagt sælgætis-
verslun eins og þessar í út-
landinu. Eigendur Dandý,
Már Jónsson og Sólveig
Jónsdóttir, bjóða upp á bæði
erlent og innlent sælgæti sem
þó verður að vera þannig úr
garði gert að það fari ekki illa
þegar skóflan er látin vaða of-
an í. Dandý hefur einnig á
boðstólum sælgæti með nú-
tímasniði, vandlega vafið inn-
an í pappír og geymt uppi í
hillu, en meiningin er að þróa
verslunina áfram í átt til litlu
krambúðarinnar. Sem sagt
lostæti í lausavigt. . .
Vá, þá er maður
búinn að
breiða yfir fiskabúrið.
Ný sjónvarpsstjarna
^5igmundur Ernir Rúnarsson er einn þriggja umsjónarmanna nýja sjón-
varpsþáttarins Á liðandi stundu. Sigmundur þykir standa sig afspyrnuvel i
stjórnandahlutverkinu og segja sumir að ný fjölmiðlastjarna sé fundin. Eftir
mikla leit höfðum við uppi á Sigmundi og hann gaf sér tima til að svara örfá-
um spurningum.
- Hvernig kom það til að þú fórst i að stýra þættinum?
„Það bar skjótt að. Sá sem átti að vera þriðji umsjónarmaðurinn, ásamt
Omari og Agnesi, gat ekki tekið starfið og þá var leitað til min aðeins viku
áður en fyrsti þátturinn var sendur út. Þetta kom mér mjög á óvart vegna
þess að ég er algerlega óvanur sjónvarpi. Þessi þáttur er frumraun i þáttagerð
hjá sjónvarpinu þvi vikulegir þættir i beinni útsendingu frá fleiri en einum stað
i einu hafa ekki verið á dagskrá fyrr en nú.”
- Hvernig leið þér fyrir fyrsta þáttinn?
,,Eg var rólegur framan af degi en nokkrum minútum fyrir útsendingu kom
skrekkurinn af fullum þunga, ég þornaði upp i munninum og fleira i þeim dúr.
En strax og ég var kominn í mitt gamla blaðamannshlutverk og farinn að
spyrja gestina þá gleymdi ég þvi að við vorum í beinni útsendingu, enda bauð
Davið upp á það."
- Ertu hættur sem blaðamaður á Helgarpóstinum?
,,Nei, ég vinn fyrir Helgarpóstinn grein og grein til að halda mér i formi
enda er hið ritaða mál alltaf heillandi."
Þú hefur gefið út Ijóðabækur?
,,Já, Kringumstæður árið 1980 og Óstaðfest Ijóð 1983. Ég hef nú að mestu
lagt Ijóðagerðina á hilluna í bili enda er erfitt að samræma ritstörf og blaða-
mennsku þvi það er ekki hægt að gefa sig af viti i hvort tveggja i senn."
- Hvort hyggstu nú leggja fyrir þig blaðamennsku eða ritstörf?
,,Ég get ekki sagt um það en blaðamennskan er eitthvert það mest spenn-
andi starf sem hugsast getur og það sem heldur mér við hana er bæði það að
ég hef gaman af að skrifa og svo er það félagsskapurinn, ég hef svo gaman af
fólki. Nuna get ég varla hugsað mér að setjast að i einhverju kvistherbergi al-
einn með pikkunni og yrkja."
Við kvöddum Sigmund Erni en forvitnum lesendum til yndisauka má bæta
þvi við að hann er tæplega tuttugu og fimm ára Akureyringur, fæddur í fiska-
merkinu.
Vikan 5. tbl. 11