Vikan

Tölublað

Vikan - 30.01.1986, Blaðsíða 16

Vikan - 30.01.1986, Blaðsíða 16
BEITUM ENGUM BELLIBRÖGÐUM — segir Helgi Daníelsson, yfirlögregluþjónn hjáRLR Texti: Kristín Jónsdóttir Eigum við íslendingar okkar Derrick í Kópavogin- um? Mætir hann í afmælið þitt óboðinn, bara svona til að athuga stemmninguna? Hefur hann aðstoðar- mann sinn með sér? Eða — eru kvikmyndir og bækur, sem fjalla um lögreglumál, glæpi og uppljóstranir, bara óraunhæf samsuða sem á ekkert skylt við íslensk- an raunveruleika? Okkur lék forvitni á að kynnast því hvernig íslenska rannsóknarlögreglan starfar, hvað henni leyf- ist, hvaða hjálpartæki hún notar og fleira í þeim dúr. Því fengum við Helga Daníelsson, yfírlögregluþjón hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, til þess að ræða þessi mál út frá meðfylgjandi sögukorni um ímyndað íslenskt glæpamál. Nóvember, sunnudagur, hávaðasöm í meira lagi enda klukkan langt gengin í fjögur. verið að rífast við tvo slánalega Það er hráslagalegt veður, rign- náunga sem ruddust burt I ingarsuddi, enginn á ferli. fússi nokkru áður en lokað var. Björn Jónsson, þjónn á Borg- Þegar Björn kemur að bekkn- inni, gengur álútur út í veðrið, um uppgötvar hann sér til skimar í kringum sig og tekur skelfingar að fyrir þessa konu er stefnuna þvert yfír Austurvöll- ekkert hægt að gera, hún er inn. Um það bil sem hann. hvorki ofurölvi né sofandi, hún klofast yfír druliuna, sem á er látin. Á hlaupunum á lög- sumrin er blómabeð, rekur reglustöðina reynir hann að hann augun í blátt hrúgald á koma skipulagi á hugsanir sín- bekknum bak við Jón Sig. ar: Hverjir voru þessir menn Hann tekur strikið þangað strax sem konan hafði verið að rífast og hann áttar sig á að hrúgaldið við? Hafði hún verið myrt? Af er konan sem hafði gengið út hverju? Afhverjum? Móðurog síðust allra gestanna á hádegis- másandi geysist Björn inn hjá barnum. Konan í bláu káp- löggunni og ryður út úr sér unni var fastagestur á barnum sundurlausum setningum, en þó þekkti hann hana lítið. kemur því loks til skila að á Björn hafði þó tekið eftir Austurvelli sé líkí blárri kápu. henni í dag því hún hafði verið — Helgi, segjum að maður komi þjótandi til lögreglunnar, eins og í þessari sögu, og til- kynni eða haldi því fram að kona liggi látin á Austurvelli. Hvað gerist þá? ,,Ætli fyrstu viðbrögð lög- reglunnar yrðu ekki að fara á staðinn og kanna hvort saga mannsins ætti við rök að styðj- ast. Ef við gefum okkur að þetta hafí gerst eins og í sögunni hér að framan og látin kona liggi á Austurvelli yrði hún að sjálf- sögðu þegar flutt á slysadeild. Haft yrði samband við RLR og menn þaðan færu á vettvang og byrjuðu að rannsaka málið. Hvernig sú rannsókn færi fram í smáatriðum er erfitt að tíunda hér. Meðal þess sem gert er er að kanna dánarorsök. Það þarf að taka skýrslu af Birni Jónssyni þjóni, svo og öðrum þeim er voru á barnum ásamt konunni í umrætt sinn og ekki síst þessum tveim slánalegu ná- ungum sem voru að rífast við hana. Þá þarf að sjálfsögðu að kanna vettvang mjög rækilega. Ég hcf aðeins nefnt nokkuð af því sem þarf að hyggja að við rannsókn slíkra mála. Fram- haldið ræðst að sjálfsögðu af því hvað dánarorsök leiðir í ljós.” — Ef við gefum okkur að í Ijós kæmi að hér hefði verið framið morð, er þá ákveðnum mönnum eða deild innan RLR fengið málið í hendur? ,,Hjá okkur er sérstök deild, svokölluð 1. deild, sem hefur með rannsókn á slíkum málum að gera. Þessi deild mundi taka við rannsókn málsins ásamt tæknideild og það yrði síðan að ráðast af umfangi þess hve margir menn ynnu að rann- sókninni.” — Eru notuð segulbönd við yfirheyrslur? ,, Að jafnaði er það ekki gert. Það er rætt við viðkomandi og ‘skrifuð skýrsla sem hann síðan undirritar. I þeim tilfellum, sem segulbönd eru notuð, er það alltaf með fullri vitneskju þess sem talað er við. Við erum bundnir mjög ströngum regl- uni varðandi yfirheyrslur og gerum ekki neitt til að koma aftan að fólki í þeim efnum, beitum engum bellibrögðum eins og menn sjá til dæmis í kvikmyndum.” — Farið þið á skemmtistaði og kaffihús í sambandi við rannsókn mála? , Já, það kemur oft fyrir að við þurfum að fara á slíka staði vegna rannsóknar mála.” — Hafið þið „kontakt- menn” ? ,,Ég veit ekki hvort rétt er að tala um að við eigum „kontaktmenn”, hins vegar 16 Vikan 5. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.