Vikan - 30.01.1986, Qupperneq 17
I
I
liggur í augum uppi að við
fáum oft upplýsingar frá
ýmsum mönnum og við leitum
eftir upplýsingum. Forsenda
þess að ná árangri í þessu starfi
er að eiga gott samstarf við al-
menning.”
— Kemur það fyrir að fólk
hringi og gefl upplýsingar en
vilji ekki segja til nafns?
,Já, það kemur fyrir. Eins
óskar fólk oft eftir því að nafn
þess sé trúnaðarmál milli þess
og lögreglumannsins. I slíkum
tilfellum virðir lögreglumaður-
inn slíkt og nafnið fer hvergi
inn áskýrslur.”
— Lekur ekkert af upplýs-
ingum hjá ykkur?
,,Ekki svo mér sé kunnugt
um.”
Við dulbúumst ekki
— Nú starfið þið óein-
kennisklæddir. Þekkist þið
ekki alltaf?
,,Við þekkjumst, hugsa ég,
flestir, að minnsta kosti hjá
ákveðnum hópi manna, enda
er það í sjálfu sér ekkert
leyndarmál hverjir vinna hjá
okkur. Nöfn okkar allra eru til
dæmis í símaskránni og við
erum opinberir starfsmenn.
Það er lika álitamál hvað við
höfum mikla þörf fyrir að dylj-
ast, en hins vegar erum við ekk-
ert að láta bera á okkur meira
en nauðsyn krefur, en við
dulbúumst ekki,” segir Helgi
og hlær.
— Þú nefndir að 1. deild
kæmi til með að rannsaka morð-
mál. Er RLR skipt í margar
deildir?
,Já, það er deiidaskipting
hjá okkur. Ég nefndi að 1.
deild færi með rannsókn á
morðmálum en auk þess eru
rannsökuð þar ýmis slysamál og
ýmis sérrefsilagabrot, svo eitt-
hvað sé nefnt. I 2. deild eru
rannsökuð ýmis fölsunarbrot,
svo sem ávísanafals, skjalafals
og fleira. I 3. deild eru rann-
sökuð þjófnaðarbrot, mál er
varða börn og unglinga, brun-
ar, nauðganir og fleira. 4.'
deild er ný deild hjá okkur og
þar eru rannsökuð stærri skatta-
og efnahags- og viðskiptabrot.
Sú deild rannsakaði til dæmis
svokallað „okurmál” sem
mjög hefur verið í fréttum að
undanförnu. Þá má nefna
tæknideild sem, eins og nafnið
bendir til, sér um alla tækni-
vinnu, ljósmyndum, vettvangs-
uppdrætti, fmgrafaratöku og
svo framvegis. Einnig er sérstök
boðunardeild sem sér um að
flytja' menn og sækja og svo er
skráningardeild sem sér um
skráningu rannsóknargagna hjá
RLR.”
— Er rannsóknarlögreglan
aldrei vopnuð?
,,Nei, við erum ekki vopn-
aðir.”
— Eruð þið með stækkunar-
gler?*
,,Nei, menn ganga ekki
með stækkunargler á sér. Hins
vegar nota tæknideildarmenn
oft stækkunargler við starf
sitt.”
— Eruð þið þá ekki með
neitt á ykkur?
,,Við höfum að sjálfsögðu
penna og vasabók, svo og skil-
ríki sem sýna að við erum rann-
sóknarlögreglumenn. Annað er
ég til dæmis ekki með á mér.
— Segðu mér eitt, Helgi.
Eru símahleranir stundaðar hér
á landi?
,,Nei, til að koma við síma-
hlerun þarf að fá úrskurð hjá
dómara.”
— En nú finnst manni rök-
rétt að slíkt geti verið nauðsyn-
legt?
„Það kann að vera að sú
staða komi upp að það kunni
að vera nauðsynlegt en ég tel að
slíkum úrræðum eigi ekki að
beita, nema ærnar ástæður séu
til þess og lagaskilyrði til þess
eru þau að um mikilsverð saka-
mál sé að ræða eða að öryggi
ríkisins krefjist þess.”
— Nú þurfið þið stundum
að fá úrskurði vegna leitar í
húsum?
,Já, stundum þurfum við