Vikan - 30.01.1986, Page 30
— En hvernig má það vera að óbrotin mjólkurbúsblók eins og
Martinus hinn danski skyldi skyndilega dag einn fá vitrun um öll lög-
mál tilverunnar?
Finnbjörn hefur að sjálfsögðu greið svör við þessu:
„Það eru bara tíu menn frá upphafi sem hafa skynjað kosmosið eða
alheimsvitundina, bara tíu menn í mannkynssögunni og það hafa líka verið
algjörar afburöaverur eins og Jesús, Búddha, Múhameð og Martinus. Þeir
hafa náð fullkomnum andlegum þroska og skilið allt, fortið, nútið og framtíð,
allt saman. Kristur var til dæmis fær um að gera kraftaverk því hann skildi
eöli sköpunarinnar."
Heimsstyrjöld fyrir aldamót
— En hvenær mun mannkyn allt ná lokatakmarkinu og lifa i para-
dis alskynjunarinnar?
I Ijós kemur að málarameistarinn er þeirrar iskyggilegu skoðunar að okkar
bíði enn ein heimsstyrjöldin, að öllum líkindum fyrir næstu aldamót.
„Mælikvarði á manninn er ekki gáfnafar hans. Þú sérð nú hvert gáfurnar
hafa leitt okkur — kjarnorkusprengjur i öllum hornum. Við höfum ekkert lært
frá dögum Adams. Við erum enn að éta af skilningstrénu, við þekkjum ekki
mun góðs og ills. Við verðum að læra það að við erum það siðferðisstig sem
við stöndum á."
Lesendum til hugarléttis skal þess getið að næsta heimsstyrjöld verður sú
siðasta. Þá loksins förum við að átta okkur á karmanu sem Finnbjörn og
Martinusarnir hafa áttað sig á fyrir löngu. Og eitt enn. Finnbjörn upplýsir ,,að
það sé mjög gott karma að vera fæddur islendingur”, að vera fæddur i sliku
friðsemdarríki veiti okkur mikið kosmiskt forskot.
,,Við Norðurlandabúar stöndum á einna hæsta siðferðisstigi i heiminum.
Viö látum ekki slasaðan mann liggja langtimum saman á götunni. Við kippum
I velferðarspottana og ambúlansinn kemur og hirðir hann. i Indlandi væri til
dæmis sami maður látinn liggja og deyja og enginn skipti sér af. Við erum þó
komin þetta lengra."
— En hvað segir Finnbjörn um hin gamalgrónu hugtök réttlæti og
refsingu?
Svar hans er einfalt: „Flvorugt er til."
— Nú, hvernig má það vera?
„Jú, sjáðu, samkvæmt Martinusi eru glæpir ekki til, bara yfirsjónir eða mis-
tök, sem eru bara eins og hvert annað ólán sem við getum svo bætt fyrir í
næsta lífi. Og eins er þaó með refsinguna, það er það heimskulegasta sem
menn geta gert óvini sínum að drepa hann, það er engin refsing því hinn fær
það bara í hausinn aftur. Það þýðir ekkert að taka fram i fyrir karma-lögmál-
inu."
ísland mjög kosmískt
Og áfram er skeggrætt við þennan óvanalega „andlega" málarameistara.
Hann segir sjálfur að hægt sé að ræða fræði Martinusar i mörg ár sem vissu-
lega væri forvitnilegt en nokkuð umfangsmikið fyrir blaðagrein vora. Þó skal
getið fáeinna fróðleiksmola eins og þess að þvi yngri sem mannvera andast í
þessu lifi því fljótar komi hún aftur. Finnbjörn segir: „Hjón þurfa ekkert að
falla saman þó þau missi litið barn þvi oft fæðist það aftur í næsta skipti."
Og nú er rætt um persónuleg samskipti Finnbjörns og Martinusar (ekki
þess isfirskal: „Hann vai yndislegur maður, einstakt Ijúfmenni og alltaf
glaður. Hann sagði nefnilega að menn gætu ræktað með sér hamingjuna.
Hann elskaði ísland alveg. Hann kom se>. sinnum hingað til fyrirlestrahalds,
fyrst á vegum Grétars Fells. Og hann fékk heimboð bæði til forseta islands,
Ásgeirs Ásgeirssonar, og á prestaþing, sem er mjög merkilegt og þú verður
að taka fram, því að í Danmörku vildi kirkjan ekkert með hann hafa. Já, hann
elskaði okkur, sérstaklega þessa kontrasta hérna, annaðhvort algjört Ijós eða
algjört myrkur."
— Þannig að ísland er mjög kosmiskt land?
„Já, mjög kosmískt."
Síspaugandi gleðimaður
Nú rísum við á fætur og málarameistarinn dregur fram ýmis ómetanleg
gögn, úrklippur og Ijósmyndir. Þess ber að geta að Finnbjörn er ábyrgðar-
maður „köllunarinnar" hér á landi og stöðugt i beinu sambandi við aðal
stöðvarnar, Martinus Institut i Danmörku. Þarna er margt fágætra Ijósmynda,
svo sem af spámanninum i góðra vina fagnaði hér heima og i Danmörku.
Finnbjörn tekur það fram að Martinus hafi verið síspaugandi gleðimaður og
alls enginn meinlætamaður þrátt fyrir að konur, ketmeti, tóbak og vin hafi
verið utan hans veraldar. Hann hafi meira að segja samið doðranta um
sexualisma þar sem hann hélt því meðal annars fram að kynhverfir hefðu hér
sérstöku hlutverki að gegna. Og þarna er líka mynd af Finnbirni sjálfum i
ræðustól i niræðisafmælisfagnaði Martinusar árið 1980. Eftir að hafa lesið það
erindi yfir sagði Einar Ágústsson sendiherra við málarameistarann: Þú verður
sómi islands í kvöld. En svo er þarna myndaröð sem sker eilitið i augu — af
grafhýsi Martinusar spámanns sem verið hefur i uppbyggingu allt frá dauða
meistarans aldna 1981. Finnbjörn er spurður hvort slikt tilstand með dauða
kroppa samrýmist kenningunni um andlega eilifð:
„Jú, Martinus gaf mjög ákveðin fyrirmæli um smurningu og varðveislu
eigin likama því andinn hefur mikil tengsl við efnið og likaminn er alls ekki
dauður þá við hverfum úr honum. Þess vegna er hann til dæmis algerlega á
móti líkbrennslu, hún geti valdið stórkostlegum skaða sem menn eru lengi að
jafna upp.”
Og andlegu spurningarnar halda áfram að hrannast upp, Finnbirni til
óblandinnar ánægju, þvi eins og hann segir sjálfur ,,þá er ekkert svar til nema
vcgna spurningarinnar”. En burtséð frá allri kosmiskri eilifð er sólarhringurinn
naumt skammtaður samkvæmt almanaki Þjóðvinafélagsins og spurningum
fer óhjákvæmilega fækkandi. Þó kemst þessi að i lokin:
— Finnbjörn, er það ekki mótsögn i þínu lífsstarfi að handleika
málningarpensil daglangt árum saman meðan eilífðarspurningarnar
knýja á heilann?
Dauft bros færist yfir andlit meistarans.
„Nei, alls ekki, meðan ég þarf ekkert að einbeita mér að vinnunni þá get ég
hugleitt á meðan. Ég er áhugamaður bæði i alheimsfræðum, stjörnuvisindum
og mörgu öðru. Ef ég hefði þurft að stúdera mikið i vinnunni hefði ég aldrei
komist yfir öll þessi svið."
Nú stendur Finnbjörn á svalaþröskuldinum. Heimsókninni er greinilega að
Ijúka. Eftir mörg þakkarávörp óskum við Finnbirni gleðilegra jóla.
„Já, jólin," segir hann. „i framtíðinni verða jól allt árið, segir Martinus,
þegarvið höfum náð nógu miklum þroska..."
En veröur þá jafngaman að hlakka til jólanna? Að þvi gleymdum við að
spyrja Finnbjörn.
30 Vikan 5. tbl.