Vikan - 30.01.1986, Qupperneq 43
í skugga borg- Snillingur og Harðsvíraðir Ljúf
arastyrjaldar nautnamaður kolanámumenn ástarsaga
CAL
Leikstjóri: Pat O'Connor.
Aðalhlutverk: John Lynch og
Helen Mirren.
Sýningartimi: 93 mín.
AMADEUS
Leikstjóri: Milos Forman.
Aðalhlutverk: F. Murray Abraham
og Tom Hulce.
Sýningartimi: 130 mín.
THE MOLLY MAGURIES
Leikstjóri: Martin Ritt.
Aðalhlutverk: Sean Connery,
Richard Harris og Samantha
Eggar.
Sýningartimi: 123 mín.
FALLING IN LOVE
Leikstjóri: Ulu Grosbard.
Aðalhlutverk: Robert De Niro og
Meryl Streep.
Sýningartimi: 102 min.
Cal (John Lynch) er ungur,
kaþólskur Noröur-íri. Hann tekur
þátt í ofbeldisverkum IRA þrátt fyrir
aö hann sé á móti öllu ofbeldi. Eitt
skipti er hann bílstjóri þegar lög-
reglumaður er drepinn. Eftir þetta
morö vill hann hætta en þaö er hæg-
ara sagt en gert.
Á bókasafni tekur hann eftir því aö
sú er afgreiðir er ekkja hins myrta
lögreglumanns. Hann hrífst af henni
og tekur aö venja komur sínar á
safniö. Marcella (Helen Mirren)
tekur ekki eftir þessum unga manni,
enda sjálf nokkru eldri.
Aöstæðurnar haga því þannig aö
Cal fær vinnu hjá tengda-
föður Marcellu og flyst í sama
hús. Hann tekur fljótt eftir því aö hún
er ekkert ánægö hjá tengdafor-
eldrum sínum. Kvöld eitt eru þau ein
í húsinu og þrátt fyrir aö Marcella
reyni að verjast ákafa Cal fer svo um
síöir aö hún verður ástkona hans, án
þess þó aö vita hver hann í raun er.
Takast ástir meö þeim sem fyrir-
fram er dauðadæmt ævintýri.
Cal er áhrifamikil kvikmynd sem
um leið og hún lýsir örlögum tveggja
einmana manneskja lýsir þeim
ógnum sem fólk á Norður-Irlandi
býr viö í skugga þeirrar endalausu
styrjaldar sem þar geisar. John
Lynch er ágætur í hlutverki sínu en
samt er þaö Heien Mirren sem meö
frábærum leik á alla samúö áhorf-
andans. Cal er raunsæ lýsing á
ástandinu á Noröur-Irlandi og
gleymist seint þeim sem hana sér.
Saman hafa leikstjórinn Milos For-
man og Peter Schaffer gert
ógleymanlega kvikmynd um snill-
rnginn Mozart og höfuöandstæöing
hans, Antonio Salieri. Amadeus
byggist aö mestu leyti á þeim sögu-
sögnum sem voru í gangi snemma á
19. öld um aö Salieri heföi orðið
Mozart aö bana vegna sjúklegrar af-
brýöisemi.
Myndin byrjar á geðveikrahæli
þar sem Salieri dvelur flestum
gleymdur og heldur hann því fram
viö prest, sem kominn er til aö taka
viö syndajátningu frá honum, aö
hann hafi drepiö Mozart.
Salieri er hirðskáld Austurríkis-
keisara. Þegar hann heyrir tónlist
Mozarts finnur hann til smæöar sinn-
ar sem tónskáld. Þaö sem fer samt
verst meö hann er að Mozart er duttl-
ungafullur flagari og sjálfstraustið
uppmálaö. Salieri getur ekki skiliö
aö svo lítilf jörlegur maöur skuli fá aö
gjöf þá náöargáfu aö geta samið tón-
list sem gerir hans eigin tónlist aö
ómerkilegu tónaflóöi.
Smám saman eykst öfund Salieris
í garö Mozarts sem kemur meö hvert
snilldarverkið á fætur ööru. Salieri,
sem á yfirborðinu þykist vera vinur
Mozarts, kemur því til leiöar ásamt
vinum sínum aö verk Mozarts eru
litiö leikin.
Brátt tekur aö sækja á hann sú
hugmynd aö hann muni ekki fá frið
fyrr en Mozart sé allur og skipu-
leggur hann morðiö á Mozart í smá-
atriðum...
Þaö reynir mikið á aöalleikarana
tvo og F. Murray Abraham og Tom
Hulce sýna báöir stórbrotinn leik.
The Molly Maguries gerist í
Pennsylvaniu seint á nítjándu öld.
Myndin fjallar um uppreisnargjarna
kolanámumenn sem þola ekki aö
ekkert er gert til aö bæta aðbúnaö
þeirra sem er vægast sagt mjög
slæmur. Til aö reyna aö hafa uppi á
höfuðpaurum uppreisnarmannanna
er Richard McKenna (Richard Harr-
is) lögreglumaöur sendur í dular-
gervi til aö komast inn í raöir kola-
námumannanna. Þeir taka honum í
fyrstu meö varúö en meö aö sýna þó-
nokkurt hugrekki er hann tekinn í
þeirra hóp.
Hann kemst fljótt aö því aö foringi
kolanámumannanna er Kehoe (Sean
Connery). McKenna getur ekki
annaö en hrifist af vonlausri baráttu
þessara fátæku kolanámumanna.
Kehoe, sem treystir McKenna meir
og meir, lætur hann fá hættuleg verk-
efni sem hann leysir vel af hendi en
um leið lætur hann yfirmenn sína
vita og eru kolanámumennirnir yfir-
bugaöir hver af öörum. Eftir mikil
átök ná yfirvöldin í Kehoe og sett eru
upp réttarhöld yfir helstu foringjum
kolanámumanna. Þar komast þeir
aö því aö McKenna hefur allan tím-
ann leikiö tveimur skjöldum og
þrátt fyrir aö hann hafi á tímabili
hrifist af hugsjónum kolanámu-
mannanna þá er hann trúr sínum
yfirmönnum.
The Moily Maguries er dramatísk
kvikmynd og áhrifamikil. Leik-
stjórinn, Martin Ritt, er sér-
træðingur í slikum myndum.
Leikarar fara yfirleitt vel meö hlut-
verk sín þótt aö mínu mati standi
leikur Sean Connery upp úr.
Robert De Niro leikur Frank
Raftis verkfræöing, hamingjusam-
lega giftan og tveggja barna fööur.
Meryl Streep leikur Molly Gilmore,
eiginkonu læknis. Einnig hún er
hamingjusöm í hjónabandinu.
Dag einn rekast þau óvart hvort á
annað oftar en einu sinni. Bæði eru í
jólagjafaleiðangri. Endar sá dagur
meö aö þau víxla óafvitandi pökkum.
Þau hittast af tilviljun aftur og
vaknar þá áhugi þeirra og magnast
viö aukna viökynningu. Þau gera sér
bæöi grein fyrir aö þau eru á hálum
ís og reyna aö slíta sambandinu.
Þaö tekst en með afleiðingum sem
hvorugtsáfyrir...
Ekki veröur fariö nánar út í sögu-
þráöinn því þótt ekki sé hægt aö telja
hann mjög merkilegan þá er hárfínn
þráöur í samskiptum þessara
tveggja persóna sem skemmtilegra
er aö fylgjast meö án þess aö vita
nokkuð um framhaldið.
Þaö er geysilegur atvinnumanna-
blær yfir Falling In Love. I raun er
ekki hægt aö finna veikan punkt í
myndinni, hvar sem litiö er. Handrit-
ið, sem hvorki er frumlegt né sterkt
á yfirboröinu, býr yfir mörgum smá-
atriöum sem eru glimrandi. Þaö
færa þau sér vel í nyt, De Niro og
Streep. Samleikur þeirra er meö
miklum ágætum og þrátt fyrir aö
leikurinn virðist átakalaus hjá þeim
þá eru þaö einmitt þessir frábæru
leikarar sem gefa myndinni þennan
sjarmerandi blæ sem hún býr yfir.
Áhorfandinn fyrirgefur þeim allt því
hann veit aö inni viö beinið eru þetta
heilsteyptar persónur sem f jallaö er
um.
Vikan 5. tbl. 43