Vikan - 05.06.1986, Blaðsíða 11
Það er ekki á hverjum degi sem farþegar Arnarflugs hafa tvo flugstjóra við stjórn-
völinn. Vikukonur á leið til Amsterdam urðu þess heiðurs aðnjótandi fyrir skömmu
enda vorum við alsælar að hafa tvo með samtals átta „strípur" þarna frammí.
Ástæðan fyrir þessu var að annar þeirra, Guðmundur Magnússon, hafði ekki flogið
Boing 737 vél félagsins um nokkurt skeið og reglur kveða á um að Guðmundur þurfi
að fljúga nokkrar ferðir í „vinstra sætinu“. Mekkinó Björnsson flugstjóri var því í
sæti aðstoðarflugmanns með Guðmundi.
Þessir ungu, mætu menn hafa svo sannarlega reynslu sem flugstjórar og eiga auk
þess ýmislegt sameiginlegt. Þeir eru báðir í yngri kantinum sem flugstjórar, Guðmund-
ur þrjátíu og fimm ára og Mekkinó þrjátíu og þriggja. Hjá Arnarflugi hafa þeir starfað
í níu ár og þar af sem flugstjórar í fimm ár. Samanlagður starfsaldur þeirra er sem sé
átján ár og flugstjóraferill þeirra spannar yfir tíu ár. Það gerist vart hjá mörgum flug-
félögum að svo ungir menn hafi svo langa reynslu við stjórn í „vinstra sætinu“.
Ekki er nóg með að þeir eigi sameiginlegt að vera ungir flugstjórar heldur eru kon-
ur þeirra beggja starfandi flugfreyjur hjá Flugleiðum. Sannkallaðar flugfjölskyldur.
En er ekki hundleiðinlegt, eins og einhver komst að orði, að sitja í þessum þrönga
klefa allt að ellefu klukkustundir í senn? Nei, þeir eru svo sannarlega ekki á því. Jafn-
framt sem þetta er starfið þeirra er það líka áhugamálið. Það er ekki öllum gefið að
eiga sér starf sem áhugamál. Við getum víst flest tekið undir það. Amarflug er yngt
flugfélag og við látum fjúka hér með skondna sögu um atvik sem henti á fyrstu árum
félagsins, þegar fiestir starfsmenn voru enn yngri að árum.
í ótiltekinni erlendri flughöfn, þar sem Arnarflugsþota hafði nýlega lent, full af far-
þegum, kom um borð sá sem kallaður er station manager. Hann svipaðist um eftir
flugstjóranum en sá engan sem hann gat ímyndað sér að væri flugstjóri. Hann sneri
sér því að næstu flugfreyju og það þarf ekki að taka það fram að hún hafði rétt skrið-
ið yfir tvítugsaldurinn. Flestir í áhöfninni voru sem sagt á milli tvítugs og þrítugs.
Það þarf ekki að orðlengja það, hann spurði í sakleysi sínu: “Where is the captain?"
„The captain? This is the captain," sagði flugfreyjan og benti á Önund Jóhannsson
sem stóð inni í eldhúsi og hámaði í sig brauð. Önundur var aðeins tuttugu og níu ára
og elstur af áhöfninni. Manninum féllust gjörsamlega hendur og hann kom ekki upp
orði. Hann hafði aldrei orðið vitni að öðru eins. En þetta er nú aðeins útúrdúr.
Mekkinó Björnsson, byrjaði sem fiugþjónn,
nú eftirlitsflugstjóri.
Guðmundur Magnússon eftirlitsflugstjóri, eins
og faðir hans var til fjölda ára hjá Flugleiðum.
23. TBL VI KAN 11