Vikan

Tölublað

Vikan - 05.06.1986, Blaðsíða 56

Vikan - 05.06.1986, Blaðsíða 56
umst niður og kínverskur drengur leysti af okkur skóna. Því næst voru okkur fengnar ópíumpípur og ópíumtöflur sem við létumst reykja og sofna út frá. Þegar við vorum orðnir einir kallaði Pearson á mig og við læddumst inn í annað herbergi þar sem fleira fólk lá sof- andi. Loks heyrðum við á tal tveggja manna. Við földum okkur bak við dyrahengi og hlustuðum. Þeir ræddu um Wu Ling. „Hvar eru skjölin?" spurði annar. „Lester taka þá,“ svaraði hinn, sem var kín- verskur. „Hann setja þá þar sem löggið ekki fmna, hann segja það.“ „Já, en þeir setja hann inn,“ sagði sá fyrri. „Iss, hann segja sig sleppa fljótt, löggið ekki vita hvað hann gera.“ Þeir sögðu eitthvað fleira í þessum dúr en gengu síðan í áttina til okkar svo að við flýttum okkur aftur þangað sem við áttum að liggja. „Ég held að það sé best að við komum okkur héðan,“ sagði Pearson. „Það er ekki nógu heilsusamlegt andrúmsloft hér.“ „Hárrétt, herra minn,“ sagði ég. „Þessi skrípaleikur hefur þegar staðið nógu lengi." Eftir að hafa greitt fyrir ópíumið héldum við á brott óskemmdir. Þegar hafnarhverfið var að baki dró Pearson djúpt andann og sagði: „Guði sé lof að við erum lausir úr þessu." „Svo sannarlega," samsinnti ég, „og ég fæ ekki betur séð en við verðum fljótir að hafa uppi á skjölunum eftir þetta grímuball." Og það reyndist hárrétt hjá mér og málinu lauk farsællega," lauk Poirot máli sínu. „En hvar voru skjölin?" spurði ég. „í jakkavasa hans að sjálfsögðu." „í hvers jakkavasa?" „Nú, Pearsons auðvitað.“ Þegar Poirot sá hvað ég varð undrandi hélt hann rólega áfram frásögninni: „Pearson var skuldum vafmn rétt eins og Charles Lester. Hann var einnig fjárhættuspilari. Hann fékk þá hugmynd að stela skjölunum frá Kínverjan- um. Hann hitti hann í Southampton og kom með honum til London en fór með hann beint á ópíumbúlluna. Það var þoka þennan dag þannig að Kín- verjinn hafði enga möguleika á að sjá hvert var farið með hann. Ég held að Pearson hafi oft reykt ópíum og þar af leiðandi kynnst margs konar fólki. Hugmynd hans var að einhver af Kínverjunum myndi leika Wu Ling og taka við greiðslu fyrir skjölin. Það kom hins vegar babb í bátinn þegar einhver af félögum Pearsons fékk þá hugmynd að það væri einfaldara að drepa Wu Ling og henda líkinu í Thames. Það var gert án vitundar Pearsons. Hann gerði sér grein fyrir því að einhver kynni að hafa séð hann í lestinni með Kínverjanum, morð er vissulega ólíkt alvarlegri glæpur en mannrán. Hann hugðist því losa sig úr vandanum með því að láta einhvern af félögum sfnum leika Wu Ling á hótelinu við Russeltorg. Þessi ráða- gerð byggðist auðvitað á því að líkið fyndist ekki of fljótt. Wu Ling hafði sennilega sagt honum frá því að hann ætlaði að hitta Charles Lester á hótelinu. Pearson sá þarna tækifæri til að leiða athyglina frá sér og koma málum þannig fyrir að Charles Lester yrði síðasti maður sem sést hefði með Wu Ling á lífi. Sá sem átti að leika Wu Ling á hótelinu átti að segja Lester að hann væri þjónn Wu Lings og tæla hann eins fljótt og kostur var til hafnar- hverfisins. Þar var honum væntanlega byrlað eiturlyf í einhverjum drykk og því hafði hann aðeins óljósar hugmyndir um það sem gerðist eftir það. Þegar svo Lester frétti af morðinu á Wu Ling varð hann hræddur og neitaði að hann hefði nokkurn tíma komið á ópíumbúll- una. Þetta var nákvæmlega það sem Pearson vildi en þrátt fyrir það var hann ekki ánægður. Nei, hann var órólegur yfir því hvernig ég tók á málunum og til þess að sannfæra mig endan- lega um sekt Lesters setti hann þetta undarlega grímuball á svið. Það átti sem sé að draga mig á asnaeyrunum. Honum var skemmt eins og púkanum á fjósbitanum. Ég lét hann fara fagn- andi heim en daginn eftir bankaði Miller lögregluforingi upp á hjá honum. Skjölin fund- ust í vasa hans og þar með var draumurinn búinn. Hann hafði ekki við neinn að sakast nema sjálfan sig. Kjáninn reyndi að leika á Hercule Poirot. Það var aðeins eitt vandamál varðandi þetta mál.“ „Hvað var það?“ spurði ég forvitinn. „Það var að sannfæra Miller lögreglufor- ingja. Þvílíkur hálfviti og þverhaus! Og þegar svo málið lá ljóst fyrir eignaði hann sér sigur- inn.“ „Þar fór í verra,“ sagði ég. „Nú, jæja, ég fékk mínar sárabætur. Hinir forstjórarnir í Burmanámufélaginu verðlaun- uðu mig fyrir góðan árangur með 14000 hlutum í fyrirtækinu. Ekki sem verst. En ef þú ætlar að fjárfesta, Hastings, þá skaltu umfram allt fara varlega. Trúðu ekki öllu sem stendur í Mogganum. Forstjórar Percupine-olíufélagsins gætu verið náungar á borð við Pearson." ■ VIK A N STJÖRNUSPÁ HRÚTURINN 21. mars- 20. apríl NAUTIÐ 21. apríl - 21. mars TVÍBURARNIR 22. maí- 21. júní KRABBINN 22. júní - 23. júlí Nýjungar og ókunnugt fólk verður áberandi í kringum þig þessa vik- una. Sumt af því sem gerist verður þér minnisstætt en annað er létt- vægara og fellur fljótlega í gleymsku eins og gerist og gengur. Taktu tillit til óska roskins fólks. Þú átt í talsverðri innri baráttu og gengur erfiðlega að sjá menn og málefni í réttu ljósi á meðan. Ófyrirséðir atburðir leiða þig ef til vill á rétta braut en hugsaðu ráð þitt vel og vandlega áður en þú tekur ákvarðanir sem kunna að reynast afdrifaríkar. Þú færist ekki lítið í fang og líkur eru á að eitthvað af því sem þú hefur á prjónunum komist í höfn. Engu að síður máttu búast við að þurfa á þrautseigju að halda og gleymdu ekki að hafa þá með í ráðum sem hagsmuna eiga að gæta. Framundan er góð vika fyrir fjöl- skyldufólk. Vinir og kunningjar munu láta sjá sig og þótt margt kunni að verða um manninn í kringum þig þarftu ekki að óttast að menn njóti sín ekki. Ferðalag, þó ekki væri nema um helgina, er líklegt til að heppnast vel. LJÓNIÐ 24. júlí - 23. ágúst Þér finnst þú ekki njóta sann- mælis og gremjan sýður í þér. Trúlega getur þú sjálfum þér um kennt að miklu eða öllu leyti. Hirðir þú ekki um að leiðrétta rangfærslur er varla við því að búast að aðrir taki af þér ómakið. MEYJAN 24. ágúst - 23. sept. VOGIN 24. sept. - 23. okt. Varastu yfirlæti, það fer í taugarn- ar á mörgum. Þótt vel takist til hjá þér ertu engu bættari með að hrópa það út um öll torg. Sértu sannfærður um eigið ágæti ætti það að nægja þér ágætlega. Gleddu gamlan vin með heimsókn. Þú teílir á tæpt vað og þínum nán- ustu mun blöskra bíræfnin. Bjart- sýnin dugar þér vel sem hingað til en ekki sakar að láta ofurlitla fyr- irhyggju fljóta með. Gerðu ekki ósanngjarnar kröfur til samstarfs- manna þinna. SPORÐDREKINN 24. okt. - 23. nóv. Þú fréttir af leiðinlegu atviki og ættir ekkert að vera að láta það berast lengra að sinni. Þetta kem- ur illa við marga og þú gætir reynst seinheppinn ef þú færir þetta í tal í íjölmenni. Þú hefur meiri áhrif en þig grunar. BOGMAÐURINN 24. nóv.-21.des. STEINGEITIN 22. des. - 20. jan. VATNSBERINN21.jan.-19.febr. FISKARNIR 20. febr. - 20. mars Stærilæti annarra angrar þig en það skrýtna er að ýmsum finnst þú sýna töluverðan hroka sjálfur. Reyndu að vera blátt áfram og til- gerðarlaus, þú tapar ekkert á því. Láttu ekki vel meintar ráðlegging- ar sem vind um eyru þjóta. Kostaðu kapps um að vera hress og sýna þeim sem þú umgengst mest hlýlegt viðmót. Það kemur sér vel fyrir þig áður en langt um líður að hafa sýnt nærgætni og þú þarft á velvilja og hjálpsemi að halda fyn- en varir. Þögn þarf ekki alltaf að vera sama og samþykki. Það sem þú telur að sé í lagi er hreint ekki klappað og klárt. Ræddu málin og sýndu lip- urð. Það er mun vænlegra til árangurs en þvermóðskan sem þú ert í þann veginn að fyllast. Nú njóta fiskarnir sín. Sköpunar- gleðin er í hámarki og um að gera að nýta hana sér og sínum til hags- bóta. Haltu þínu striki þótt eitt og annað kunni að bera að höndum sem ekki er beinlínis á dag- skránni. Lífsorkan er ótrúlega mikil. 56 VIKAN 23. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.