Vikan

Tölublað

Vikan - 05.06.1986, Blaðsíða 53

Vikan - 05.06.1986, Blaðsíða 53
úr fjarlægð hefði Arthur orðið að velja annan tíma. Þeir mættu ekki nokkrum manni og enginn sá til þeirra. Fljótlega voru þeir komnir að jarðholunni og horfðu niður í hyldýpið. „Heyrirðu hvernig vatnið rennur þarna niðri?“ sagði Arthur. „Horfðu niður, maður - ekki halla þér of langt...“ Mánuði síðar sat Arthur aftur í herbergi herra Rumbolds lögfræðings. „Sorglegt," sagði lögfræðingurinn. „Ég er hræddur um að við fáum aldrei að vita sann- leikann i þessu máli. Hann hlýtur að hafa farið í göngutúr og dottið niður í einhverja af þessum jarðholum. Ég hef heyrt að það sé mikið af þeim þarna í grenndinni.“ „Já, fullt af þeim, sagði Arthur, „og það tæki mánuð að rannsaka þó ekki væri nema eina þeirra gaumgæflega." „Varst þú ekki sjálfur í fríi þegar þetta gerð- ist?“ „Jú, ég var í ferðalagi. Ætli ég hafi ekki ver- ið í um 40 mílna fjarlægð frá slysstað þegar slysið hefur átt sér stað,“ sagði Arthur sem aldrei laug að óþörfu. „Hörmuleg tilviljun," sagði lögfræðingurinn. Þegar leið að lokum samtalsins áræddi Art- hur að heíja máls á því sem honum var efst í huga. „Get ég ekki reiknað með,“ sagði hann, „vegna aðstæðna minna- ja, ég veit að formsat- riðin taka dálítinn tíma - en það kæmi sér vel ef ég gæti fengið dálitla upphæð ..." „Ja, ég er ekki viss um það,“ sagði lögfræð- ingurinn. „En...“ Arthur reyndi að sýnast rólegur. „Þú sagðir sjálfur,“ hélt hann áfram, „að sá sem lifði hinn myndi erfa allt.“ „Getur þú sannað að þú sért sá eini sem eft- ir lifir?“ Það varð löng þögn. „Ég geri ekki ráð fyrir því, ekki sannað það. En það gera allir ráð fyrir - ég á við, hann skildi allt eftir á búgarðinum. Og síðan hefur ekkert til hans spurst." „Samkvæmt lögunum," sagði Rumbold, „líð- ur langur tími þar til maður er úrskurðaður látinn í tilvikum sem þessum. Ef allar líkur benda til að svo sé munuð þér fá leyfi til að láðstafa eigum hans að hæfilegum tíma liðn- um.“ „Hæfilegum tíma?“ sagði Arthur tómlega. „Sjö ár er algengur tími.“ „Sjö ár - en það er fáránlegt, herra Rum- bold, sérstaklega í þessu tilfelli þar sem augljós- lega var um slys .. „Eins og ég sagði áðan,“ sagði Rumbold, „gera lögin ekki ráð fyrir því að þótt maður hverfi sé hann látinn. Og ef Kenneth er látinn er ég hreint ekki viss um að það hafi verið af slysförum." Þegar Arthur hafði endurheimt röddina sagði hann: „Hvað áttu við?“ „Ég segi þér þetta í trúnaði," sagði herra Rumbold, „eins og mér var sagt það. En frændi þinn hefur þjást af ólæknandi rýrnunarsjúk- dómi síðan í stríðinu. Einn af sérfræðingum hans hafði gengið svo langt að segja ólíklegt að hann lifði út árið. Ég er hræddur um að hann hafi tekið þá ákvörðun, sennilega fyrir- varalaust, að fyrirfara sér. Svo að þú skilur...“ Arthur skildi það allt of vel. ■ SAKAMÁLASAGA EFTIR AGÖTHU CHRISTIE Ég lagði bókina, sem ég var að lesa, frá mér og andvarpaði: „Er þetta ekki alveg maka- laust? Það er alveg sama til hvaða ráðstafana ég gríp, það er alltaf yfirdráttur á ávísana- reikningnum rnínum." „Og þér stendur nákvæmlega á sama. Ef ég væri með yfirdrátt á reikningnum mínum kæmi mér ekki dúr á auga,“ tilkynnti Poirot. „Þú ert vel staddur fjárhagslega, er það ekki?“ spurði ég. „Fjögur hundruð fjörutíu og fjögur pund, fjórir skildingar og fjögur penny,“ sagði Poirot og var ánægður með sig. „Skemmtileg tala, ekki satt?“ „Ég er handviss um að bankastjórinn hefur sett hana þarna bara til að þóknast þér. Hann veit ábyggilega að þú vilt hafa samræmi í öllu sem er í kringum þig. Hvernig litist þér annars á að festa svo sem 300 af þessum pundum í Porcupine-olíufélaginu? í auglýsingunum í blöðunum er sagt að það borgi allt að 100% arð á næsta ári.“ „Nei, þakka þér kærlega. Þegar ég §árfesti þá er það aðeins í öruggum fyrirtækjum sem gefa af sér tryggan arð.“ „Hefurðu þá aldrei lagt fram áhættufjármagn í neitt. „Nei, kæri vinur,“ svaraði Poirot alvarlegur í bragði. „Það hef ég aldrei gert. Einu hlutabréf- in, sem ég á, eru 14000 hlutir í Burmanámufé- laginu og þau eru gulltryggð." Poirot hikaði augnablik því að hann vildi að ég hvetti hann til að halda áfram. „Jæja,“ sagði ég hvetjandi. „Ég keypti þau ekki. Nei, ég fékk þau að launum fyrir það hvernig ég notaði litlu gráu frumurnar í kollinum á mér. Á ég að segja þér söguna af því?“ „Já, gjarna." „Þessar námur eru langt inni í Burma, um það bil 200 mílur frá Rangoon. Það voru Kín- verjar sem uppgötvuðu þær á 15. öld og þeir nýttu þær þangað til í múslímauppreisninni 1868. Kínverjarnir unnu aðeins þær æðar í berginu sem innihéldu silfur en skildu allt blý- ið eftir. Þetta kom í ljós um leið og rannsóknar- leiðangur, sem átti að athuga möguleika á námuvinnslu, kom til Burma. Aðalvandamálið var að gömlu námugöngin höfðu fyllst af vatni og úrgangi og allar tiíraunir til að finna móður- æðina reyndust árangurslausar. Nokkur fyrirtæki sendu leiðangra á staðinn en allt kom fyrir ekki þangað til fulltrúi eins fyrirtækisins komst á snoðir um að kínversk fjölskylda átti að hafa undir höndum upplýsingar um námuna sem að gagni kynnu að koma. Um þessar mund- ir var maður að nafni Wu Ling ættfaðir §öl- skyldunnar." „Þetta er svei mér þá eins og í reyfara,“ hróp- aði ég. „Já, finnst þér ekki? En er hægt að skrifa reyfara án þess að í honum séu ljóshærðar feg- urðardísir. Æ, hvaða vitleysa er þetta í mér? Þinn smekkur beinist fyrst og fremst að stúlk- um með brúnt hár. Manstu.. „Svona, svona, áfram með söguna," tautaði ég- „Fulltrúi fyrirtækisins náði sambandi við þennan Wu Ling. Hann var kaupmaður og W naut talsverðrar virðingar í sinni sveit. Hann y 23. TBL VIKAN 53 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.