Vikan

Eksemplar

Vikan - 05.06.1986, Side 16

Vikan - 05.06.1986, Side 16
LÆKNISVITJUN Hér á síðunni birtast svor læknanna Gests Þorgeirssonar, Helga Krist- bjarnarsonar, Jóhanns Ágústs Sigurðssonar, Leifs Bárðarsonar, Óttars Guðmundssonar og Sigurðar Guðmundssonar við spurningum lesenda. Nú eru liðnar nokkrar vikur síðan við hófum þetta nýmæli og hefur það mælst afar vel fyrir. Við biðjum fólk að vera þolinmótt þó að svör við spurningum þess birtist ekki strax. Við reynum að sinna öllum. Við bjóðum lesendum bæði að senda bréf með vandamálum sinum og hringja. Hringja má á þriðjudags- og miðvikudagsmorgnum frá níu til tólf. Bréfin, sem við fáum, verða að vera stutt, skýr og málefnaleg. Við birtum þau gjarnan undir dulnefni en nafn og heimilisfang verður að fylgja. Utanáskriftin er: Læknisvitjun Vikan Frjáls fjölmiðlun hf. Pósthólf 5380 125 Reykjavík DROPIÚR BRJÓSTI SPURNING: Kæru læknar. Mig langar til að fá svar við spurningu sem hefur leitað á mig í nokkurn tíma. Þann- ig er að úr vinstra brjóstinu á mér kemur örlítill hvítglær dropi þegar ég kreisti það, örsjaldan úr því hægra. Ég hélt fyrst að þetta staf- aði af því að ég væri ófrísk en er viss um að svo er ekki vegna eðli- legra blæðinga. Ég hef ekki tekið pilluna í nokkra mánuði. Ég ertil- tölulega nýbúin að fara í krabba- meinsskoðun og þar virtist allt eðlilegt. Er þetta eitthvað sem ég þarf að hafa áhyggjur af og hvað er það þá? Hvert á ég að leita? Með von um góð svör og með fyrirfram þökk. SVAR: Eins og öllum er kunnugt er mjólkurmyndun I brjóstum kvenna eðlileg afleiðing þungunL ar. i þínu tilviki er greinilega ekki um þungun að ræða en þessi glæri eða hvíti vökvi, sem þú lýs- ir, jafngildir þó trúlega lítilli mjólkurmyndun. Ýmsar ástæður geta verið fyrir mjólkurmyndun I litlum mæli eins og hjá þér, til dæmis mikið álag eða streita. Þá geta ýmiss konar lyf haft áhrif á hormónamyndun i líkamanum þannig að mjólkurmyndun örvist. í flestum tilvikum er ráðlegt að útiloka að um óeðl/lega hormóna- myndun sé að ræða. Þvi ráðleggj- um við þér eindregið að leita til læknis sem hefur hormóna- og efnaskiptasjúkdóma sem sérsvið. BEYGLAÐAR TÆR SPURNING: Mig langar til að spyrja einnar spurningar: Er hægt að rétta beyglaðar tær án þess að fara í skurðaðgerð? SVAR: Af spurningu þinni er ekki hægt að ráða hvort þú spyrjir vegna þess að þú hafir óþægindi frá þessu eða hvort um sé að ræða útlitslegt atriði. Ef um er að ræða hið fyrrnefnda, það er að segja að þú hafir einhver óþægindi frá fót- um, ættir þú endilega að fara til læknis þvi að oft má hjálpa upp á sakirnar með tiltölulega einföld- um innleggjum í skó eða jafnvel sérsmíðuðum skóm. Ef þú ert á hinn bóginn að hugsa um útlits- legan þátt er ekki hægt að rétta þetta varanlega á annan hátt en með skurðaðgerð. Það er þó úti- lokað að dæma endanlega um þetta án þess að fá að skoða mis- smíðina. MEGRUN SPURNING: Ég er þrítug kona, 1,60 á hæð og 105 kg. Ég hef reynt ótal megr- unarkúra en ávallt mistekist og þyngist frekar en hitt. Maðurinn minn hótar að skilja við mig ef ég léttist ekki. Eru til einhver lyf sem hægt er að nota? SVAR: Fyrir nokkrum árum voru á markaðinum ýmiss konar megr- unarlyf, svo sem ritalin, prelud/n og fleiri. Reynslan af þessum iyfj- um var slæm. Þau voru mikið misnotuð enda voru áhrifin mjög svipuð áhrifum amfetamíns á sjúklinginn. Þar sem iyfin höfðu þau áhrif að matarlyst minnkaði léttust sjúklingar yfirleitt eitthvað meðan þeir tóku þessi lyf en þyngdust svo aftur þegar lyfja- gjöfinni var hætt. Þessi lyf eru þvi ekki lengurgefin fólkisem vill fara I megrun enda gera þau mun meiri skaða en gagn. Megrun er ávallt mjög erfið og langtímaárangur næst einungis með miklum sjálf- saga og ákveðnum fórnum. Þú verður að gera þér grein fyrir því að þú þerð sjálf áþyrgð á megruninni á sama hátt og ein- staklingarnir verða sjálfir að bera ábyrgð á þvi að hætta að drekka og hætta að reykja. Fyrsta skrefið í árangursrikri meðferð er að trúa því sjálfur að maður geti farið I árangursrika megrun. Mjög marg- ir þeirra sem eru of feitir trúa því ekki að þeir geti einhvern timann orðið grannir. Langflestir borða þvi jafnmikið og áður þó þeir seg- ist vera I megrun, borða kannski minna i hádeginu en bæta sér það upp með súkkulaðitertu I kaffi- timanum. Þú verðurað trúa á þinn eigin viljastyrk og vera ákveðin i að temja þér þann sjálfsaga sem þarf. Fyrst skaltu setja þér eitt- hvert markmið. Kjörþyngd þín er 58-60 kg en settu þér markið eitt- hvað hærra, 65-70 kg. Farðu síðan ígegnum mataræðið, hven- ær þú þorðar, hvað þú þorðar og hvernig þú borðar. Útvegaðu þér lista yfir kaloríufjölda i ýmsum matartegundum og fylgdu síðan þúsund kaloría mataræði og borð- aðu fyrst og fremst mat sem er fitusnauður en inniheldur mikið af trefjum. Minnkaðu alla áfengis- neyslu, hættu algjörlega að borða sykur og sætindi. Komdu þér upp föstum matartímum og hættu al- gjörlega að borða milli mála. Sumum gefst vel að gabba sjálfan sig örlítið, nota minni diska, minni hnifapör og koma sér upp slag- orð- um eins og „byrja síðast að borða, hætta fyrst". Þegarmáltið er lokið skaltu taka allan mat af borðinu og drekktu jafnvel 1-2 glös af vatni á matmálstímum þegar þú ert svöng. Reyndu líka að hreyfa þig meira, byrjaðu að fara í göngu- ferðir, synda, hjóla eða eitthvað þess háttar, byrjaðu hægt og auktu hreyfinguna smátt og smátt. Mundu að góðir hlut/r gerast hægt og megrun krefst mikils sjálfsaga og sjálfsafneitunar þar sem þú berð sjálf ábyrgð á þinni eigin líðan. Ef þér tekst þetta hefur þér ekki bara tekist að megra þig heldur einnig að temja huga þinn og þú ert mun þroskaðri mann- eskja en áður. Hafðu samband við lækninn þinn áður en þú byrjar, fáðu hjá honum góð ráð og farðu til hans reglulega í eftirlit. Skemmtilegast er að megra sig með einhverjum öðrum og njóta þá stuðnings af hópeflinu. 16 VIKAN 23. TBL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.