Vikan - 05.06.1986, Side 22
UMSJÓN: HILMAR KARLSSON
OOSKAHS-
VERÐLAUM
ISLENSKUR
TEXTI
>hn Book.
Það hefði mátt telja örugga fjárfestingu
að fá Dudley Moore og Eddie Murphy
saman í kvikmynd. Og undir eðlilegum
kringumstæðum ætti sú formúla að stand-
ast. Þrátt fyrir þetta örugga dæmi er Best
Defence misheppnuð gamanmynd sem
aðalleikaramir vilja sjálfsagt gleyma sem
fyrst.
Dudley Moore leikur misheppnaðan
eðlisfræðing sem vinnur að því að hanna
hinn fullkomna skriðdreka. Honum er í
raun nákvæmlega sama hvort tekst að
fullgera hann eða ekki. Aftur á móti kemst
hann óvænt yfir formúlu sem virðist leysa
öll vandamálin. Allir samstarfsmennirnir
halda að hann hafi af snilld sinni sjálfur
fundið upp formúluna og Dudley karlinn
er ekkert að fiýta sér að leiðrétta þennan
misskilning. Hann hefur nefnilega haft
áhuga á íturvaxinni samstarfskonu sinni
sem hingað til hefur ekki virt hann við-
lits. Nú breytist viðmót hennar heldur
betur svo Dudley á fullt í fángi með að
verjast.
Upp komast svik um síðir en Dudley
karlinn á samt dálítið í pokahorninu sem
á eftir að koma á óvart. Inn í þennan
söguþráð fiéttast svo atriði þar sem þessi
fullkomni skriðdreki er prófaður í fyrsta
skipti fyrir alvöru. Og þar sem stjórn
skriðdrekans er í höndum Eddie Murphy
fer allt úrskeiðis eins og við er að búast.
Helsti galli Best Defence er að hand-
ritið er að mestu leyti laust við að vera
fyndið og ærslin í aðalleikurunum tveimur
bæta lítið. Úr verður kvikmynd þar sem
allt er reynt til að fá áhorfandann til að
hlæja, en í besta falli brosir hann út í ann-
að.
OFURHUGAR HÁLOFTANNA
★★
THE AVIATOR
Lcikstjóri: George Miller.
Aðalleikarar: Christopher Recve, Rosanna
Arquette og Jack Warden.
Sýningartími 93 min.
Christopher Reeve hefur hvað eftir
annað reynt að losna við Superman-
imyndina. Hefur hann leikið ungan rit-
höfund, prest sem verður kardínáli og
núna siðast flugmann úr fyrri heimsstyrj-
öldinni í The Aviator. Þar leikur hann
Edgar Ascompe sem sér ásamt félaga sin-
um um póstflug. Þetta gerist fyrir daga
farþegafiutninganna og er hann því lítt
hrifinn þegar honum er skipað að taka
einn farþega með sér. Farþeginn kallar sig
Tillie og er sautján ára dóttir stærsta eig-
anda fyrirtækisins sem hann vinnur hjá.
Samband þeirra er mjög stirt til að
byrja með. Vegna mistaka missir vélin
olíu yfir háum Ijallgarði og þau verða að
nauðlenda. Bæði sleppa heil á húfi cn
kenna hvort öðru um óhappið í byrjun. í
raun telur Edgar sig vera óheillamann i
fiuginu því þctta er ekki í fyrsta sinn sem
hann þarf að nauðlenda.
Þetta gerist um vetur og það er ekki
aðeins kuldinn sem sækir að jveim. Hungr-
aðir úlfar eru á næstu grösum og ná þeir
að særa Edgar alvarlega. Edgar og Tillie
eru nú farin að meta hvort annað og
Tillie viðurkennir meira að segja að hún
sé orðin ástfangin af honum. Eftir mikla
hrakninga ná þau loks til byggða og er
bjargað.
Leikstjóri The Aviator er Ástralíumað-
urinn George Miller sem á að baki hina
ágætu mynd The Man from Snowy River,
mynd sem magnaðar náttúrulífssenur gera
að stórvirki. Það eru því mikil vonbrigði
hversu allar náttúrulífssenur eru kauðaleg-
ar í The Aviator þegar haft er í huga hver
leikstjórinn er. Aðalleikararnir bæta ekki
ástandið. Christopher Reeve og Rosanna
Arquette eru lítt sannfærandi. Þó er hægt
að mæla með myndinni við þá sem vilja
sjá gamaldags rómantik og er myndin
þrátt fyrir ýmsa galla aldrei leiðinleg.
ERFIÐ LÍFSBARÁTTA
★★★
PLACES IN THE HEART
Leikstjóri: Robert Benton.
Aðallcikarar: Sally Field, Ed Harris, Danny
Glovcr og Lindsay Crouse.
Sýningartimi: 109 min.
í fyrra hlaut Sally Field óskarsverðlaun
i annað skiptið, að þessu sinni fyrir leik
sinn í Places in the Heart. Er hún vel að
þcint verðlaunum komin. Hún sýnir góð-
an leik í myndinni, leik sem er langt frá
því að vera yfirborðskenndur heldur sýnir
hún okkur á nærfærinn hátt konu sem
stendur á tímamótum í lífi sínu.
Þegar eiginmaður Ednu Spalding, sem
er lögreglustjóri í smábæ í Texas, er drep-
inn verður Edna að horfast í augu við þá
staðreynd að hún verður að sjá fyrir sér
og börnum sínum. Hún er í byrjun alveg
hjálparvana, kann ekki einu sinni að fylla
út ávísun. Eljótlega er henni tilkynnt að
hún skuldi mikla Ijárupphæð í húsinu sinu
og best sé fyrir hana að selja.
Negri einn, sem hefur viðdvöl hjá
henni, segir henni að jörð hennar henti
vel fyrir bómullarræktun. Negrinn hverfur
á braut cn kemur aftur i fylgd lögreglu.
Hann hafði sem sagt rænt Ednu. Hún
segir hann saklausan og ræður hann í
vinnu við að rækta bómull. Einnig tekur
hún leigjanda, ungan mann sem er blind-
ur. Þetta er svo sannarlcga skrýtinn hópur,
en saman tekst þeim að komst yfir margs
konar crfiðleika sem verða á vegi þeirra.
Takmarkið er að verða fyrst til að tína
bómullina og fá fyrir það verðlaun sem
gætu bjargað Ednu frá að selja hús sitt.
Places in the Heart er vel gerð kvik-
mynd sem lýsir á raunsæjan hátt lífi
smábænda á kreppuárunum í Bandaríkj-
unum. Óveðursatriði er þar vcl gcrt og
áhrifamikið. Áður hcfur verið minnst á
leik Sally Field. Ekki er hægt að yfirgefa
myndina án þess að minnast á leik John
Malkovivich í hlutverki blinda mannsins.
Þessi ungi leikari, sem vakið hefur mikla
athygli undanfarið, er sérlega sannfærandi
og sýnir mikinn tilfinningahita í leik sin-
um.
GÓÐIR GAMANLEIKARAR I
MISLUKKAÐRI MYND
★
BEST DEFENCE
Leikstjóri: Williard Huyck.
Aðalleikarar: Dudley Moore, Eddie Murp-
hy og Kate Capshaw.
Sýningartími: 93 mín.
^TheAvíator^a
Ihlrd Arttsts fo-s « MAÆ NDJFHD rmsro, *-■■■■•
suns, CHRUTOPHER REEVE • ROWNÍtt ARQUfTTE • JACK VrARDEÁ • TYNE MLY
"THF. AVUTOR" «. * D0MLN1C FROfíTlERE w, t, MARC NORMAN
iKHniihiti ERNE5T GANN * MAŒ NEUFELD THOMAS H. BROOX
tiMM t, CEORGE MIU£R
GERAST EKKI BETRI
★★★★
VITNIÐ (WITNESS)
Lcikstjóri: Peter Weir.
Aðalleikarar: Harrison Ford, Kelly
McGilIis og Alexander Goudunov.
Sýningartími: 108 mín.
Vitnið er sakamálamynd um leið og
hún lýsir einhverju sérkennilegasta fólki
sem byggir Bandaríkin, Amish-fólkinu,
sem býr í hópumn, oft nálægt stórborgum,
en lifir samt einangruðu lífi sem ekki hef-
ur tekið breytingum frá því það kom til
Vesturheims fyrir um það bil tvö hundruð
árum.
Söguþráðurinn er á þá leið að ung ekkja
úr Amish-trúflokknum fer með son sinn
í ferðalag. Á salemi á járnbrautarstöð
verður drengurinn vitni að morði. I ljós
kemur að það er lögreglumaður sem myrt-
ur hefur verið. Rannsókn málsins er í
höndum John Book (Harrison Ford).
Fljótt kemur í ljós að Book er í jafn-
mikilli hættu fyrir morðingjunum og
drengurinn sem er vitnið.
Book tekur það til bragðs að flýja stór-
borgina og leita á náðir Amish-fólksins
meðan hann er að ná sér eftir skotsár er
hann hlaut. Hann kynnist venjum og sið-
um hins sérstaka trúflokks og þrátt fyrir
undrun sína hrífst hann af hinu einfalda
lífi sem fólkið lifir. Lögreglumaðurinn og
móðir drengsins hrífast hvort af öðru.
Verður það til þess að tortryggni Amish-
fólksins gagnvart honum vex. Morðingj-
arnir eru ekki á því að láta Book né
drenginn sleppa og uppgjör er óhjákvæmi-
legt í lokin.
Peter Weir og handritshöfundum hefur
sannarlega tekist að skapa hér stórbrotna
kvikmynd. Morðið, sem allt gengur út á
í byrjun, verður að aukaatriði þegar kom-
ið er út í sveitina. Lausnin á morðinu er
komin fljótlega og spurningin er hvenær
morðingjunum tekst að hafa uppi á vitn-
inu.
Lögð er áhersla á að koma til skila
hinu sérstaka andrúmslofti sem skapast
meðal fólks sem lifir samkvæmt venjum
frá sextándu öld og eru gjörólíkar þeim
lífsvenjum sem viðgangast nú til dags.
Harrison Ford hefur, þrátt fyrir að
hann sé einhver eftirsóttasti leikarinn í
dag, ekki fengið að sýna hvað í honum
býr. Allar hans helstu myndir hafa verið
hasarmyndir, þar sem tækniundur kvik-
myndanna hafa nýst betur en leikhæfileik-
ar. Hann sýnir hér næman og vandaðan
leik og tvímælalaust hefur Vitnið aukið
álit manna á honum.
When man first
took to the skies, íí
anewkindofhero t
wasbom.