Vikan - 05.06.1986, Blaðsíða 28
Eini víponin frá stríðsárunum sem ég veit um
með vissu enn sem komið er. í honum er flest
„original" nema stýrismaskínan (þó er hún
til), stýrishjólið, drifin og að kominn er í hann
12 volta alternator. Bílinn á Hörður Sigurðs-
son bifreiðarstjóri. Þessi vípon er lengdur milli
hjóla og með hús frá Kirkjulækjarkoti. Það er
nú ónýtt að kalla. - Þetta er einn þeirra bíla
sem m'ikill fengur væri að uppgerðum. en að
sama skapi synd ef honum væri fargað. Best
væri ef hann væri gerður upp með húsi og
öllu saman því einmitt þessi hús eru partur
af bílasögu okkar Islendinga.
Einn mesti höfðingi meðal fjallabílanna var
GMC setuliðstrukkur með tveimur afturhás-
ingum, sem Guðmundur Jónasson lét byggja
yfir einhvern tíma fyrir 1960 og kallaður var
Jólatréð, liklega af því hann var vel Ijósum
búinn og Ijómaði allur þegar búið var að
kveikja á þeim. Húsið á honum var nýtísku-
legra en á flestum öðrum þeim sem hér hafa
verið nefndir til sögu og I augum margra bjó
þessi bíll yfir alveg sérstökum „sjarma". Aust-
fjarðaleið mun hafa keypt bílinn af Guðmundi
en síðustu árin hefur hann staðið vélarlaus
og vanhirtur austur á Egilsstöðum. Kunnáttu-
menn. sem hafa skoðað hann þar, telja enga
frágangssök að gera hann upp og víst er að
mikill skaði væri ef honum væri fargað nú
þegar mönnum er að verða Ijós hvílíkt minja-
gildi þessar hjólakempur hafa. - Hér er hann
sýndur eins og hann er nú þar sem hann
stendur fyrir austan, en einrlig eins og hann
var meðan hann var og hét. Sérstakur fengur
erað myndinni af.honum þarsem hann stend-
ur með Fordrútunni sem Guðmundur var æði
oft með sjálfur. og með eldri„gemsanum"sem
einnig er þarna með I för.